Morgunblaðið - 22.05.2008, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 22.05.2008, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2008 29 ari, áhugamaður um tónlist og bók- menntir og vel að sér um flesta hluti. Við félagarnir héldum áfram að hitt- ast reglulega, ræða um hugðarefni okkar og hlusta saman á tónlist. Hóp- urinn hét áfram sínu gamla nafni „Menningin“ og þar var löngum glatt á hjalla. Það er því þyngra en tárum taki að upp úr sextugu fór heilsu Björns að hraka og seinustu árin var þessi glæsilegi maður vart svipur hjá sjón. Þó brá stöku sinnum allt til hins síðasta fyrir gömlu leiftri í augum hans. Þau hjón urðu fyrir þeirri miklu sorg að missa fyrir fáum árum einkason sinn, Sigurð, mikinn öðling sem lést eftir áratuga erfið veikindi. Bekkjarsystir okkar og vinkona, Svanhildur, annaðist bónda sinn með dæmafárri alúð og umhyggju í veik- indum hans. Naut hún aðstoðar sinna nánustu og einnig var dýrmætt að eiga bakhjarl í Þorraseli og á Landa- koti. Við kveðjum nú Björn vin okkar og félaga og trúum að hann hafi í nýjum heimkynnum hitt fyrir vin okkar Þórð Þorbjarnarson og í fyllingu tím- ans munum við allir hittast aftur og finna lausn lífsgátunnar sem við glímdum við að leysa í menntaskóla forðum daga. Innilegar samúðar- kveðjur sendir vinahópurinn Svan- hildi, dóttur þeirra Ingibjörgu Elsu, tengdabörnum og öðrum vanda- mönnum. Blessuð sé minning Björns Björnssonar. Guðmundur Kr. Guðmundsson, Ólafur B. Thors, Tryggvi Ásmundsson. Það var mikið dregið af Birni, vini okkar, þegar við heimsóttum hann á Landakotsspítala tveimur dögum fyrir andlát hans. Hann átti erfitt með öndun vegna skæðrar lungna- bólgu og talgetan var verulega skert. Þrátt fyrir það var glampinn í aug- unum og glettnislegt brosið á sínum stað, þegar slegið var á létta strengi. Skopskyninu hélt hann til síðasta dags. Á sínum yngri árum, áður en heilsubrestur tók sinn toll af þreki Björns, var hann glæsilegur á velli, hár, grannvaxinn og léttur í fasi. Hann var skarpgreindur húmoristi með góða nærveru. Við hjónin áttum því láni að fagna að eiga vináttu þeirra Svanýjar um áratugaskeið. Eigum við margar dýrmætar minn- ingar frá samverustundum með þeim. Þau áttu sér m.a. unaðsreit við Hreðavatn í sumarbústaðnum Lind- arbrekku. Þangað var notalegt að koma frá amstri hversdagsins, bregða sér á bát út á vatnið, renna fyrir silung, grilla á veröndinni og setjast síðan út á pall og hlusta á kvöldkyrrðina, sem ekkert rauf nema söngur smáfuglanna í náttúrunni. Björn var félagslyndur mjög og gleðimaður á mannamótum. En það var ekki bara fullorðna fólkið sem naut samvista við hann, heldur var hann mikill barnavinur. Eiga börnin okkar margar góðar minningar frá sínum yngri árum, þegar Björn brá á leik við þau. Meðal annars átti hann það til að bregða sér í kóngulóarlíki og elta þau um allt hús á leifturhraða, smáfólkinu til ómældrar ánægju. Björn var vel máli farinn, bæði í ræðu og riti. Í starfi sínu við Háskóla Íslands var hann afar vel liðinn af nemendum sínum og áttu þeir jafnan greiðan aðgang að honum, ef á þurfti að halda. Mynduðust þar milli hans og margra þeirra varanleg vináttu- bönd. En lífið er fallvalt og fóru þau Svaný og Björn ekki varhluta af því. Fyrir réttum tveimur árum urðu þau fyrir þeirri þungbæru raun að missa einkason sinn, Sigurð, aðeins 45 ára gamlan. Nokkrum mánuðum síðar lést yngri systir Svanýjar, og nú má hún sjá á bak eiginmanni sínum og lífsförunaut til hálfrar aldar. Í veikindum Björns var Svaný kletturinn, sem hann treysti á. Hann tók styrk sinn frá henni og trúum við því, að það hafi gefið honum þrek til að horfast í augu við það, sem fram- undan var. Við hjónin sendum Svanýju vin- konu okkar, einkadótturinni Ingi- björgu Elsu, og tengdabörnunum Kristínu og Valgeiri, ásamt öðrum ástvinum Björns, okkar innilegustu samúðarkveðjur, um leið og við biðj- um Birni Guðs blessunar á nýjum slóðum. Sigríður Ólafsdóttir. Páll Sigurðsson. Ég sé þær enn í huga mér hvítar bleyjur á snúru í garði við Ægisíðuna og sjávargolan leikur við þær og þen- ur þær út. Það var sumardagur og frændfólk mitt sagði mér að ungi guðfræðineminn í næsta húsi væri búinn að eignast son og hefði hengt upp bleyjur í garðinum og það gætti aðdáunar og viðurkenningar í rödd- inni. Þessi athöfn bar þess merki að hér væri á ferð ungur maður sem ætl- aði að taka þátt í uppeldi sonar síns. Þetta er fyrsta minning mín um Björn Björnsson. Ég sá Björn á samkomu Íslend- inga í Edinborg, þar sem hann var við doktorsnám. Hann var mjög grann- vaxinn og hárið dökkt og mikið en gránaði snemma. Árið 1970 settist ég í barnaverndarnefnd Reykjavíkur fyrir Framsóknarflokkinn, en Björn var formaður hennar. Þá átti hann að baki glæsilegan námsferil og hafði verið skipaður prófessor í guðfræði ári áður, aðeins 32 ára að aldri. Sér- svið hans var siðfræði. Björn hafði verið lærisveinn Þóris Kr. Þórðar- sonar prófessors, sem var mikill áhrifavaldur í lífi hans. Þórir Kr. hafði verið borgarfulltrúi Sjálfstæð- isflokksins í Reykjavík og höfundur að skipulagi Félagsmálastofnunar. Þeir höfðu báðir þá sýn að guðfræð- ingar ættu að taka virkan þátt í sam- félaginu, starfa úti á akrinum. Að doktorsnámi loknu gerðist Björn yfirmaður fjölskyldudeildar Félagsmálastofnunar og síðan fram- kvæmdastjóri barnaverndarnefndar þar til hann var skipaður prófessor. Við Björn sátum í félagsmálaráði í tólf ár. Sem félagsmálamaður var Björn málefnalegur og réttsýnn, í umgengni einstaklega þægilegur, léttur í máli og skemmtilegur. Hann hafði góða og hlýja nærveru. Margir sóttust því eftir að fá hann til starfa. Hann var mjög handgenginn bisk- upnum, séra Sigurbirni Einarssyni, og sat í mörgum nefndum á vegum þjóðkirkjunnar. Síðasta nefndin sem við Björn sátum saman í var Svæð- isstjórn um málefni fatlaðra. Bæði tengdumst við málaflokknum. Björn var ekki margorður um einkahagi sína en þó komst ég ekki hjá því að verða þess vör hversu þungt sjúkdómur Sigurðar sonar hans lagðist á hann. Um 1990 bjó ég ásamt fjölskyldu minni í Uppsölum. Björn átti stundum leið þangað til að heimsækja Ingibjörgu dóttur sína, sem þar var við nám, og fara á nor- ræna kirkjufundi. Þá leit hann einnig við á Frödingsgötunni þar sem við bjuggum. Það urðu ávallt fagnaðar- fundir. Eftir heimkomuna frá Svíþjóð sá ég Björn sjaldan. Það var einn dag að ég var að koma fyrir kvikmynda- vél á háskólalóðinni þegar Björn gekk fram hjá. Af fölu og svipbrigða- lausu andlitinu sá ég að hann var al- varlega veikur. Þunglyndi hafði náð tökum á honum, viðkvæmir stengir í sálarlífinu brostið. Ég sá Björn í síð- asta sinn í haust í Þjóðminjasafninu. Hann var í hópi fólks sem komið var til að skoða Dómsdagsmynd undir leiðsögn Péturs Péturssonar, guð- fræðiprófessors og nemanda Björns. Hann virtist glaður og reifur, eins og sólin brosti á ný undir hausthimni. Blessuð sé minning Björns Björns- sonar. Svanhildi og Ingibjörgu, svo og öðrum í fjölskyldu hans, votta ég innilega samúð. Gerður Steinþórsdóttir. Það var mikið Guðslán að eiga Björn sem vin og bróður og læri- meistara. Ég kom í guðfræðideildina úr þeim áhyggjum að vita ekki hvað ég vildi verða. Það var mikil ham- ingja að finna loksins hvað manni passar; guðfræðin, drottning fræð- anna var þá þarna eftir allt saman. Björn var einn þeirra góðu manna þar sem tóku manni opnum örmum. Hann var ekki aðeins frábær kenn- ari, heldur líka eins og fóstri. Undir eins varð hann vinur. Það þótti mér sjálfsagt þá; en það er ekki svo einfalt að vera bæði kennari og vinur. Þetta gat hann og hafði ávallt skýran mun á vináttu og sínum akademísku reglum. Enginn nemi græddi né galt vegna samskipta við hann. Margt kenndi hann sem enn er minnistætt og kannski var það aðferðin. Að greina á milli, finna kjarnann, láta hismið eiga sig – um þetta snýst háskólauppeldi. Aldrei taka neitt sem gefið. Árin í deildinni voru góð. Þar varð til samheldinn hópur fólks sem naut þess að læra og fara um undralendur fræðanna. Um það leyti byggðu Björn og Svaný á Aragötunni, með Þóri og Bíbi. Þessi tvö heimili voru eins og eitt. Þar bjó höfðingskapur og rausn. Margar voru samverurnar og veislurnar, alltaf opið hús; glatt hús og gjöfult. Síðan urðum við Björn samverka- menn á biskupsstofu. Þar var margt að gera og hann lagði gott til. Hann var auðugur af hugmyndum, glögg- skyggn og tillögugóður. Við fórum oft um landið með fræðslufundi fyrir sóknarnefndir og kirkjufólk. Það var sannarlega gefandi og lærdómsríkt, og einu sinni fengu við þá einkunn frá sóknarnefndarformanni í Þingeyjar- sýslu, er hann sleit fundi og þakkaði okkur komuna, að heimsókn þessara háæruverðugu kirkjuhöfðingja úr Reykjavík skildi mikið eftir. Senni- lega höfum við aldrei verið titlaðir jafn lofsamlega. Þetta voru góðir og gjöfulir tímar. Iðulega vorum við saman á fundum í útlöndum. Allt gekk það vel. Að vinna með Birni var einstakt. Einhvern veginn vissum við alltaf hvað hinn myndi segja; fund- armaður var hann frábær. Hann var líka virtur og vinsæll í hinu útlenda kirkjusamfélagi. Í samfélaginu, hvort það var í guð- fræðideildinni, á prestastefnu, á kirkjuþingi, hvar sem hann átti að- komu í margvíslegum trúnaðarstörf- um og lét til sín taka, nutu sín vel beittar gáfur hans sem eins og skáru í gegn um óreiðuna. Oft var þessi spurning uppi: Hvað segir Björn ? Og þegar hann sagði sitt opnuðust nýjar leiðir. Í Birni bærðist margt. Hugsi var hann alltaf, stundum dimmur í sál- inni, oftar þó bjartur, glaður og reifur og fagnandi. Heitt hjarta átti Björn og vinátta hans og tryggð var einstök. Hann er nú farinn, horfinn. Allt hefur sinn tíma. Guð geymi hann og varðveiti, í nýjum himni og nýrri jörð. Ég mun sakna hans svo lengi sem ég lifi. Þorbjörn Hlynur Árnason. Dr. Björn Björnsson er mér eft- irminnilegur lærifaðir frá námsárum mínum í HÍ. Nokkrum árum síðar urðum við samstarfsmenn á Biskups- stofu þar sem dr. Björn gegndi emb- ætti fræðslustjóra kirkjunnar. Við bundumst góðum vináttuböndum á þessum árum sem héldu alla tíð. Oft ræddum við guðfræði og þá helst tengsl kirkju og þjóðmála. Eng- inn kom að tómum kofanum hjá dr. Birni í þeim efnum. Hann hafði djúp- an skilning á hinni þjóðfélagslegu vídd trúarinnar. Mér er minnisstætt samtal sem við áttum fyrir nokkrum misserum um boðskap páskanna. Hann færði mér þá að gjöf bók eftir þekktan erlendan guðfræðing um upprisu Krists. Hann var vel lesinn og fróður, guðfræði hans gegnheil. Í hugsun hans þótti mér fagnaðarer- indi og lögmál jafnan vega salt í him- nesku jafnvægi. Í 1. kafla bréfs Páls til Filippímanna eru orð sem hann vitnaði oft til og eru mér ofarlega í huga þegar ég kveð hann nú með virðingu og þökk: „Og þess bið ég að elska ykkar aukist enn þá meir að þekkingu og dómgreind svo að þið getið metið þá hluti rétt sem máli skipta og verðið hrein og ámælislaus til dags Krists, auðug að þeim rétt- lætisávexti sem Jesús Kristur kemur til leiðar Guði til lofs og dýrðar.“ Þessi orð tjá með mjög skýrum hætti hvernig kristnum manni ber að lifa. Hann á að láta trú og þekkingu vinna saman svo að dómgreind hans sé tær á hverri tíð og breytnin beri réttlæt- inu vott. Í anda þessara góðu orða postulans minnist ég hans með þakk- læti fyrir það sem Guð gaf honum af þekkingu og visku, kærleika og vin- arþeli. Guð blessi minningu dr. Björns Björnssonar og styrki fólkið hans. Örn Bárður Jónsson. ✝ Elskulegur faðir minn, tengdafaðir og vinur, JOCK KIM TAN (Jimmý), andaðist 14. maí. Minningarathöfn fer fram í Bústaðakirkju föstudaginn 23. maí kl. 15.00. Júlía Tan Kimsdóttir, Alex Tan Kimsson, Kristján Arnar og aðrir aðstandendur. ✝ Sonur minn, bróðir okkar, mágur og vinur, BJARNI SIGURÐSSON, Mýrarási 2, Reykjavík, sem lést miðvikudaginn 14. maí á Landspítalanum við Hringbraut, verður jarðsunginn frá Seljakirkju í dag, fimmtudaginn 22. maí kl. 13.00. Hildur Bjarnadóttir, Svanhildur Sigurðardóttir, Markús Ívar Magnússon, Jónas Sigurðsson, Elsa Nína Sigurðardóttir, Ásta Sigurðardóttir, Gunnlaugur Jón Magnússon, heimilisfólkið Mýrarási 2 og aðrir aðstandendur. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýju og vináttu við andlát og útför elskulegs eigin- manns, föður, tengdaföður, afa og langafa, HJALTA ÞÓRARINSSONAR fyrrverandi yfirlæknis og prófessors, Laugarásvegi 36, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sóltúns fyrir góða umönnun. Alma Anna Þórarinsson, Þórarinn Hjaltason, Halla Halldórsdóttir, Oddur Carl Hjaltason, Ingibjörg Jakobsdóttir, Sigríður Hjaltadóttir, Þórir Ragnarsson, Hrólfur Hjaltason, Gunnlaug Hjaltadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, LEÓS GUÐBRANDSSONAR fyrrv. sparisjóðsstjóra í Ólafsvík, Núpalind 2, Kópavogi. Sérstakar þakkir færum við starfsmönnum deildar 11e á Landspítala, Agnesi lækni, starfsmönnum Karitas og starfsmönnum líknardeildar Landspítala í Kópavogi. Helga Kristín Lárusdóttir, Ásta Lára Leósdóttir, Þorvarður Sæmundsson, Guðbrandur R. Leósson, Gunnhildur Tryggvadóttir, Erla Leósdóttir, Hjörtur Þorgilsson, Ágúst H. Leósson, Sigrún Ellertsdóttir, Þröstur Leósson, Steinunn Tómasdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐMUNDUR JÓNSSON húsasmíðameistari frá Guðnabæ, Akranesi, Fáfnisnesi 4, Reykjavík, lést sunnudaginn 18. maí á líknardeild Land- spítalans í Kópavogi. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni þriðjudaginn 27. maí kl. 15.00. Ingunn Ívarsdóttir, Matthildur Guðmundsdóttir, Vilhjálmur Arnar Aðalsteinsson, Jón Guðmundsson, Ragnheiður Björk Hreinsdóttir, Ívar Guðmundsson, Anna Lára Eðvarðsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.