Morgunblaðið - 22.05.2008, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. MAÍ 2008 33
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9-16.30, jóga kl. 9-10, boccia
kl. 10-11, útskurður og myndlist kl. 13-16.30, Grandabíó kl. 13-
15.
Árskógar 4 | Baðþjónusta kl. 8.15-16, opin smíða- og
handavinnustofa kl. 9-16.30, boccia kl. 9.30, helgistund kl.
10.30, leikfimi kl. 11, myndlist kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla, böðun, myndlist, almenn
handavinna, fótaaðgerð, morgunkaffi/dagblöð, hádeg-
isverður, bókband, kaffi, slökunarnudd.
Dalbraut 18-20 | Postulínsnámskeið kl. 13-16, leiðbeinandi
er Hafdís, Lýður mætir með harmonikkuna kl. 14.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids kl. 13 í Stangarhyl 4.
Félagsheimilið Gjábakki | Rammavefnaður, almenn leikfimi
og málm- og silfursmíði fyrir hádegi, hádegisverður, bók-
band kl. 13, kaffi til kl. 16.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Handavinnustofan opin kl.
9-16, létt ganga kl. 10, hádegisverður, brids kl. 13, jóga kl.
18.15. Á morgun föstudag verður sumarstarfið kynnt.
Félagsstarf eldri borgara, Garðabæ | Gönguhópur kl. 11,
vatnsleikfimi kl. 12.40, handavinnuhorn og karlaleikfimi kl.
13, boccia kl. 14. Hægt er að panta hádegismat í Jónshúsi
með dags fyrirvara, eða í síma 512-1502 fyrir kl. 9, sam-
dægurs.
Félagsstarf eldri borgara í Mosfellsbæ | Ferð að Gvend-
arbrunnum í dag. Lagt af stað frá Hlaðhömrum kl. 13.
Skráning í síma 692-0814.
Félagsstarf Gerðubergs | Helgistund kl. 10.30, umsj. sr.
Guðmundur Karl Ágústsson. Vinna í vinnustofum fellur nið-
ur vegna uppsetningar handavinnu- og listmunasýningar
sem verður opnuð á morgun kl. 10. Sími 575-7720.
Furugerði 1, félagsstarf | Handavinnusamverustund kl.
13.30. Opið hús – uppskerudagur, laugardag, 24. maí kl. 14-
17. Handverk, skemmtiatriði.
Hraunbær 105 | Handavinna og postulínsmálun kl. 9,
boccia kl. 10, leikfimi kl. 11, hádegismatur, félagsvist kl. 14,
kaffi.
Hraunsel | Bingó kl. 13.30.
Hvassaleiti 56-58 | Hannyrðir hjá Jóhönnu kl. 9-16, boccia
kl. 10, böðun fyrir hádegi, hádegisverður. Félagsvist kl.
13.30, kaffiveitingar í hléi. Hársnyrting.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun er sundleikfimi í Grafar-
vogssundlaug kl. 9.30.
Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Sögustund og spjall kl. 9.45,
boccia karlaklúbbur kl. 10.30, handverksstofa og bókastofa
opin, postulínsmálun námskeið kl. 13, boccia kvennaklúbbur
kl. 13, kaffiveitingar. Hárgreiðslustofa sími 552-2488, fóta-
aðgerðastofa sími 552-7522.
Norðurbrún 1 | Smíðastofan og vinnustofa í handmennt op-
in kl. 9-16, Halldóra leiðbeinir kl. 9-12, leirlistarnámskeið
með Hafdísi kl. 9-12, boccia kl. 10.
Vesturgata 7 | Hárgreiðsla kl. 9-16, fótaaðgerðir kl. 9-10,
boccia kl. 9-16, handavinna kl. 10-12, spænska kl. 11.30, há-
degisverður, kóræfing kl. 13, leikfimi kl. 14.30, kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9, bókband, handa-
vinnustofa opin allan daginn, morgunstund kl. 9.30, boccia,
hárgreiðslu- og fótaaðgerðastofur opnar allan daginn,
framhaldssaga kl. 12.30, stóladans kl. 13.15, spilað. Uppl. um
starfsemina í síma 411-9450.
Þórðarsveigur 3 | Bænastund og samvera kl. 10, salurinn
opinn kl. 13, leikfimi, kl. 13.15, félagsvist kl. 14.30, kaffi.
Kirkjustarf
Dómkirkjan | Kvöldkirkjan er opin kl. 20-22. Bænastundir
kl. 20.30 og 21.30, prestur á staðnum. Njótið kyrrðar, kveik-
ið á bænarkerti og eigið kyrrláta stund í helgidómnum.
Háteigskirkja | Samvera með Taizé-sniði kl. 20. Gengið inn í
þögnina, bæna- og íhugunarsöngvar, altarisganga, fyrirbæn
og smurning.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Grunnfræðsla kl. 20,
kennsla um grundvöll kristinnar trúar og opið fyrir fyr-
irspurnir. Einnig er bænastund opin fyrir alla á sama tíma.
At 8pm prayermeeting in English. Everyone welcome.
Laugarneskirkja | Morgunbæn kl. 8, kyrrðarstund kl. 12,
orgelleikur frá kl. 12-12.10. Að stundinni lokinni er máltíð í
boði á kostnaðarverði í safnaðarheimilinu. Helgistund í fé-
lagsaðstöðunni á Dalbraut 18 og 20 kl. 15, sr. Bjarni talar.
dagbók
Í dag er fimmtudagur 22. maí, 143. dagur ársins 2008
Orð dagsins: „Á því munu allir þekkja, að þér eruð mínir lærisveinar, ef þér berið elsku hver til annars.“ (Jh.. 13, 35.)
Ídag efna umhverfisráðuneytiðog Landgræðsla ríkisins tilmorgunverðarfundar á Grandhóteli í tilefni af degi líf-
fræðilegrar fjölbreytni.
“Hugtakið líffræðileg fjölbreytni
fjallar um allan þann breytileika sem
er að finna í lífríkinu. Fjölbreytnina
er bæði að finna innan lífvera og í
tengslum þeirra innbyrðis og við
hvers konar umhverfisþætti vist-
kerfisins,“ segir Kristín Svav-
arsdóttir sem er einn fyrirlesara á
morgunverðarfundinum. „Samein-
uðu þjóðirnar hafa tileinkað daginn
22. maí líffræðilegri fjölbreytni, enda
er hún mikilvæg öllu lífi á jörðinni –
en inngrip mannsins hafa víða áhrif
til hins verra á líffræðilega fjöl-
breytni.“
Dagskrá morgunverðarfundarins
hefst með ávarpi Þórunnar Svein-
bjarnardóttur umhverfisráðherra.
Þá mun Kristín flytja, ásamt Guð-
mundi Halldórssyni, erindið Falin
fjölbreytni – jarðvegur sem hluti
vistkerfis en þau starfa bæði hjá
Landgræðslu ríkisins. Því næst flyt-
ur Bjarni Guðleifsson prófessor við
Landbúnaðarháskóla Íslands erindið
Íslenskur landbúnaður og líffræðileg
fjölbreytni og að endingu mun Snorri
Baldursson hjá Náttúrufræðistofnun
Íslands kynna Stefnumörkun Ís-
lands um framkvæmd Samningsins
um líffræðilega fjölbreytni.
Mikilvægur hlekkur í kerfinu
en lítið rannsakaður
Spurð um erindi sitt segir Kristín
að fjölbreytni lífs í jarðvegi hafi hlut-
fallslega lítið verið rannsakað: „Okk-
ur hættir til að einblína á lífríki
plantna og dýra ofanjarðar, en
gleymum að neðanjarðar er fjöl-
breytt líf sem er mikilvægt fyrir
starfsemi alls kerfisins. Má segja að
lífríki neðanjarðar sé gleymdur
hlekkur í vistkerfum jarðarinnar,“
segir hún. „Það er fyrst á síðustu
tveimur áratugum eða svo að mikil
aukning hefur orðið í rannsóknum á
lífríki neðanjarðar og þá ekki síst að
tengja það við þá starfsemi sem er að
finna ofanjarðar en þessir hlutar
hafa gagnvirk áhrif á hvorn annan.“
Fundurinn í dag er frá 8 til 10. Að-
gangur er ókeypis. Finna má nánari
upplýsingar á www.land.is
Náttúra | Áhugaverð erindi á morgunverðarfundi í dag á Grand hóteli
Líffræðileg fjölbreytni
Kristín Svav-
arsdóttir fædd-
ist í Reykjavík
1959. Hún lauk
stúdentsprófi
frá Mennta-
skólanum við
Hamrahlíð
1979, B.Ed.-
gráðu frá Kenn-
araháskóla Íslands 1982, B.S. í líf-
fræði 1987 frá Háskóla Íslands og
doktorsprófi frá Lincoln University
á Nýja Sjálandi 1995. Kristín starf-
aði sem plöntuvistfræðingur á Nýja
Sjálandi 1995-1999 en hefur síðan
unnið hjá Landgræðslu ríkisins þar
sem hún er sérfræðingur. Eig-
inmaður Kristínar er Sæmundur
Runólfsson framkvæmdastj. og á
hún tvö fósturbörn.
Tónlist
DOMO Bar | Leikin verður fjölbreytt
djasstónlist af fingrum fram frá kl. 21.
Fram koma Haukur Gröndal á saxófón,
Ásgeir Ásgeirsson á gítar, Agnar M.
Magnússon á píanó, Þorgrímur Jónsson á
bassa og Erik Qvick á trommur. Aðgangs-
eyrir 1.000 kr.
Salurinn, Kópavogi | Lokaútskriftartón-
leikar LHÍ eru í kvöld kl. 20 en þá mun
Hákon Bjarnason leika á píanó. Á efnis-
skrá eru verk eftir J. S. Bach, Beethoven,
E. Granados, Chopin, Liszt og Prókofíeff.
Skemmtanir
Players Kópavogi | Hljómsveitin Á móti
sól leikur fyrir dansi á Players föstudags-
kvöldið 23. maí. Sérstakur gestur sveitar-
innar verður Veðurguðinn Ingó sem tekur
nokkra sumarsmelli með Magna og fé-
lögum, m.a. Bahama sem hann á sjálfur
heiðurinn af.
Fyrirlestrar og fundir
Laugarnesskóli | Umboðsmaður barna,
Barnaheill og UNICEF á Íslandi hafa gefið
út tvö veggspjöld með ákvæðum Barna-
sáttmála Sameinuðu þjóðanna í styttri
útgáfu til notkunar í skólastarfi. Í tilefni
af Degi barnsins verða veggspjöldin
kynnt við morgunsöng í Laugarnesskóla
föstudaginn 23. maí kl. 8.45. Allir vel-
komnir.
KNATTSPYRNUHETJAN Diego Maradona brá á leik fyrir ljósmyndara á
kvikmyndahátíðinni í Cannes í fyrradag og sýndi listir sínar með knöttinn í
tilefni af sýningu heimildarmyndar Emirs Kusturica um hann.
Heimildarmynd um Maradona sýnd í Cannes
Kann enn ýmislegt fyrir sér
Reuters
Skógarhlíð 18 · 105 Reykjavík
Sími: 591 9000 · www.terranova.is
Akureyri sími: 461 1099
Súpersól til
Salou
23. maí
frá aðeins kr. 29.990
Allra síðustu sætin
Terra Nova býður síðustu sætin til Salou á ótrúlegum kjörum.
Salou er fallegur bær á Costa Dorada ströndinni, sunnan
Barcelona. Bókaðu flug og gistingu og síðan færð þú
að vita hvar þú gistir.
Kr. 29.990
Netverð á mann, m.v. 2-4 í íbúð í
viku.
Birt með fyrirvara um prentvillur. Terra Nova áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Vik
ufe
rð
- flu
g o
g g
isti
ng
FRÉTTIR
STJÓRNMÁLAFRÆÐISKOR Há-
skóla Íslands stendur fyrir upp-
skeruhátíð í dag, fimmtudaginn
22. maí, milli kl. 15 og 17 í Lög-
bergi, stofu 101.
Þetta er í fyrsta sinn sem upp-
skeruhátíð meistaranáms í al-
þjóðasamskiptum er haldin. Þar fá
útskrifaðir nemendur og út-
skriftarnemar tækifæri til að
kynna viðfangsefni lokaritgerða
sinna. Námið hefur verið starf-
rækt í þrjú ár og hafa sex nem-
endur þegar lokið námi. Níu til
viðbótar munu útskrifast 14. júní
næstkomandi.
Þetta er tilvalið tækifæri til að
kynna sér möguleika á framhalds-
námi í alþjóðasamskiptum við Há-
skóla Íslands og fræðast um al-
þjóðamál, segir í tilkynningu. Að
fyrirlestrum loknum verður boðið
upp á léttar veitingar. Hátíðin er
opin öllum. Hægt er að skrá sig til
þátttöku á stjornmal.hi.is.
Sjá ítarlegri dagskrá á
www.hi.is/ams
Hugðarefni
Íslendinga í
alþjóðamálum
HANDVERKSSÝNING og -sala
verður föstudaginn 23. maí,
laugardaginn 24. maí og mánudag-
inn 26. maí í félagsmiðstöð eldri
borgara á Vesturgötu 7 kl. 13-17
alla dagana.
Til sýnis og sölu verða margvís-
legir handverksgripir, m.a. tré-
skurður, handmálað postulín, búta-
saumur, myndlist og annars konar
almenn handavinna og fleira.
Boðið verður upp á veislukaffi
alla sýningardagana og skemmti-
dagskrá fyrir gesti og gangandi en
á föstudaginn mun Sigurgeir sitja
við flygilinn og dansað verður í
kaffitímanum undir stjórn Sig-
valda.
Á laugardaginn kl. 15 mun kór
félagsstarfs aldraðra, Söngfugl-
arnir, syngja undir stjórn Mar-
grétar Sigurðardóttur og á mánu-
deginum kl. 15 verður sýndur dans
frá dansskóla Jóns Péturs og Köru.
Allir eru velkomnir.
Handverks-
sýning og -sala
Varabæjarfulltrúi
MAGNÚS Þór Hafsteinsson er
varabæjarfulltrúi á Akranesi en ekki
bæjarfulltrúi eins og ranglega kom
fram í Morgunblaðinu í gær. Beðist
er velvirðingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi ályktun frá Bárunni,
stéttarfélagi:
„Aðalfundur Bárunnar, stéttar-
félags haldinn 15. maí 2008 lýsir
áhyggjum sínum varðandi breyt-
ingar á lögum í tengslum við upp-
töku á evrópsku matvælalöggjöf-
inni inn í EES-samninginn um
aukið frelsi á innflutningi mat-
væla, þar sem það getur haft
veruleg áhrif á starfsumhverfi í
matvælaiðnaði hér á landi og at-
vinnu hér á svæðinu þar sem
reknar eru kjötvinnslur og slátur-
hús. Aðalfundur Bárunnar,
stéttarfélags fer fram á að þetta
verði haft í huga við afgreiðslu
málsins frá Alþingi.
Stöndum vörð um hreinar ís-
lenskar landbúnaðarafurðir.“
Áhyggjur af
matvælaiðnaði