Morgunblaðið - 22.06.2008, Blaðsíða 50
Atvinnuhúsnæði
Atvinnuhúsnæði, Hafnarfirði
Til leigu 168 fm atvinnuhúsnæði við
Stapahraun í Hafnarfirði. Mjög góð
aðkoma að húsinu, endabil. Hentar
vel fyrir lager eða léttan iðnað.
Uppl. 896 0121.
Heimagisting í Danmörku
Gisting í fallegum bæ á vestur-
Sjálandi í DK. Góður garður til
útiveru, fitness og nuddaðstaða.
www.jyderup-guesthouse.dk,
0045- 40197519 og 0045- 59208961.
Heilsa
Viðskipti
Skelltu þér á námskeið í
netviðskiptum!
Notaðu áhugasvið þitt og sérþekk-
ingu til að búa þér til góðar tekjur á
netinu. Við kennum þér nákvæmlega
hvernig! Skoðaðu www.kennsla.com
og kynntu þér málið.
Vélar & tæki
Til leigu með/án manns.
Gerum einnig tilboð í hellulagnir og
drenlagnir.
Steinöld ehf, sími 696 6580.
Var ótrúlega auðvelt að léttast
um 22 kg
LR-kúrinn er ótrúlega einfaldur og
auðveldur. Engin örvandi efni notuð.
Uppl. Dóra 869-2024 eða Jónas
865-5747. www.dietkur.is
Nudd
Klassískt nudd.
Árangursrík olíu- og smyrslameðferð
með ívafi íslenskra jurta.
Steinunn P. Hafstað
félagi í FÍHN,
s. 586 2073, 692 0644.
Til leigu vinnuaðstaða
á saumnastofu. Uppl. í síma 861
4380 og 552 5540.
Byggingavörur
www.vidur.is
Harðviður til húsbygginga. Vatns-
klæðning, panill, pallaefni, parket
o.fl. o.fl. Gæði á góðu verði.
Sjá nánar á vidur.is.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Málarar
Vantar þig að láta mála?
Erum með vana menn á okkar
snærum. Reddarinn s. 662 0122,
reddarinn@reddarinn.is
Antík
Hestar
Jeppar
Toyota Rav4, árg. 2003,
ek. 83 þús., beinsk. fimm dyra.
Ný skoðaður. Vetrardekk fylgja, vel
með farinn bíll. Verð 1.290 þús.
Uppls. í s: 692 2112.
Terracan 38"
Toppstand,117 þ. km, leður, bsk.,
filmur, 38" Ground.H á álfelgum, 38"
negld AT á stálfelgum + 37" á álfelg-
um. Verð 2.8 m. Stgr: 2.6 m. Lán getur
fylgt. S: 899 9887.
Hópbílar
Scania Berkhof axial 70 ´01
til sölu vegna breytinga í rekstri.
53 sæti, 12rm lestar, vel búin.
Upplýsingar í síma 840-1540,
verðhugmynd 105.000. evrur.
8 hesta hús til sölu á Heimsenda
WC, hlaða og kaffistofa. Haughús er
undir öllum stíum. Verð 11.900.000.
Uppl. í síma 695-9199.
Gisting
www.floridahus.is
Sumarhús í Orlando
Glæsileg sumarhús til leigu í Orlando
Flórida, mikið úrval eigna. www.flori-
dahus.is, info@floridahus.is
Hjólhýsi
Sumarhús á hjólum,
Landhaus 2006
Færanlegur sumarbústaður, tilbúinn
með "öllum" græjum. Sólarsellur og
fleira. Ásett verð 3,7 m., listaverð um
4,4 m. Til sýnis í Kópavogi.
S. 893 4416 eða aolar@simnet.is
Ný Hobby hús á frábæru verði.
Ýmsar stærðir til af vel útbúnum
húsum. Sjá nánari upplýsingar á
www.bilasalaislands.is og í símum
8961337 og 896 9693.
Pallhýsi
Travel Lite Pallhýsi
Húsin eru vel útbúin fyrir fríið, 3
stærðir, besta verðið (gamla gengið),
Til Sýnis að Oddag. 8, Rek.
S. 663 4646 - 663 4647
Ferðapallhýsi ehf
Travellitecampars.com
Þjónustuauglýsingar 5691100
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Íbúðir til leigu
Til leigu glæsilegar íbúðir, 2ja og 3ja
herb., með eða án húsgagna, í
nágrenni Landspítalans og 2ja
herb. mjög rúmgóð íbúð með sérgarði
úthverfi Reykjavíkur.
Þeir sem áhuga hafa sendi nafn og
nánari upplýsingar á box@mbl.is fyrir
26. júní n.k. merkt : ,, H-21590’’ .
Húsnæði í boði
50 SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Elsku pabbi, sár er
söknuður okkar
systra. Þú sem varst
svo ríkur þáttur í lífi
okkar og fjölskyldna
okkar. Mikið vorum við samt
þakklátar að komast út til þín og
mömmu á Spáni og fá að kveðja
þig. Það er okkur mikils virði í
dag. Við áttum með þér góðar
stundir gegnum árin. Alltaf gast
þú huggað okkur og ekkert var
nógu gott fyrir stelpurnar þínar.
Góðar eigum við minningarnar frá
æskuárum okkar. Fyrst í Ási sem
ég, eldri dóttir þín Stína, minnist
kannski einna helst því litla systir
Eiríkur Ísaksson
✝ Eiríkur Ís-aksson fæddist í
Ási í Ásahreppi 24.
júní 1931. Hann
andaðist sunnudag-
inn 18. maí síðastlið-
inn.
Útför Eiríks fór
fram frá Kópavogs-
kirkju 30. maí sl.
Sigrún var svo lítil er
við fluttumst á
Rauðalæk. Ég man
hvað ég elskaði að
hlaupa á eftir þér um
hagana á vorin þegar
litlu lömbin voru að
fæðast, fara með þér
í fjósið og hjálpa til
við heyskapinn.
Síðar er við flutt-
umst á Rauðalæk
vann ég hjá þér í
Kaupfélaginu og
þegar ég fluttist til
Noregs tók Sigrún
við og vann hjá þér þar. Þú spil-
aðir í kirkjunum fyrir austan í
mörg ár og þegar við vorum litlar
fórum við með þér um hverja
helgi, fyrst Stína og síðan Sigrún.
Mikið var gott að skríða upp í
fangið hjá þér og halla aftur aug-
unum meðan presturinn hélt ræð-
una. Þegar við giftum okkur og
eignuðumst okkar fjölskyldu
fylgdist þú með af miklum áhuga
hvernig barnabörnunum vegnaði
og hvað þau tóku sér fyrir hendur.
Þó að eldri dóttir þín byggi er-
lendis þá voru ófá símtölin á milli
landa. Þú og mamma komuð svo á
hverju sumri út til mín til að
kynnast barnabörnunum og fylgj-
ast með þeim.
Þið fluttust á efri árum í Sunnu-
hlíð í Kópavogi og var þá stutt á
milli ykkar og Sigrúnar og hennar
fjölskyldu. Á mínum daglegu
göngutúrum kíkti ég, Sigrún, í
heimsókn til þín og mömmu og
fékk kaffisopa. Það er erfitt að
hugsa til þess að nú verðir þú ekki
lengur sitjandi í stólnum þegar ég
kem í Sunnuhlíð. Einnig kem ég
til með að sakna þess mikið að fá
ekki símtölin frá þér á hverjum
degi þar sem þú spurðir um hvað
barnabörnin væru að gera í dag
því alltaf þurftir þú að vita allt
sem þau tóku sér fyrir hendur,
áhuginn var svo mikill að vita allt
um þau.
Nú til þín, faðir, flý ég,
á föðurhjartað kný ég,
um aðstoð eg bið þig.
Æ, vert með mér í verki,
ég veit þinn armur sterki
í stríði lífsins styður mig.
Ég veit, að við þitt hjarta
er vonarlindin bjarta,
sem svalar særðri önd,
sem trúin himnesk heitir,
sem huggun sanna veitir.
(Guðm. Guðm.)
Elsku pabbi, við kveðjum þig
með sárum söknuði og þökkum
þér fyrir allt sem þú varst okkur
systrunum. Minningin um þig lifir
í hjarta okkar að eilífu.
Þínar dætur,
Kristín og Sigrún.
Elsku afi, við komum til með að
sakna sárt sumranna með þér og
ömmu. Hvað við bræðurnir hlökk-
uðum til að fá þig og ömmu út til
okkar í sumar. Við hlökkuðum svo
til að sýna þér sumarhúsið okkar
sem þú hafðir aldrei séð. En ekki
fer allt alltaf eins og maður vill.
Við erum samt svo þakklátir fyrir
þann tíma sem við áttum með þér.
Þú varst sá besti afi sem hægt var
að hugsa sér. Við elskuðum þig
svo mikið og söknum þín svo sárt.
Barnabörnin þín í Svíþjóð,
Gunnar, Kristófer,
Rickard og Markús.
Mig langar að
minnast með nokkr-
um orðum vinar
míns, Helga Hálfdán-
arsonar. Ég flutti á Eskifjörð
1979 og kynntist honum fljótlega.
Fyrst að röfla við hann um trygg-
Helgi Víðir Hálfdánarson
✝ Helgi Víðir Hálf-dánarson fædd-
ist á Akranesi 1. apr-
íl 1944. Hann lést á
sjúkrahúsi í Antalya
í Tyrklandi 30. apríl
síðastliðinn og var
útför hans gerð frá
Hafnarfjarðarkirkju
14. maí.
ingar, síðan í gegn-
um vinskap minn
við Gússu. Þurfti ég
oft að hringja, var
þá að draga Gússu
með mér í leikfimi
eða gufu, og var
Helgi alltaf jafn in-
dæll, aldrei ergileg-
ur. Síðan fór hann
bara að fara með
okkur á skíði, í
gönguferðir og var
til langs tíma eini
karlmaðurinn í leik-
fimi með okkur kon-
unum.
Hann var einn af stofnendum
Ferðafélags fjarðamanna og fór
með í margar gönguferðir. Mér er
minnisstætt þegar við gengum á
Kistufellið, hæsta fjall í Reyðar-
fjarðarfjallgarðinum, 1239 metrar
á hæð og mjög erfitt uppgöngu.
Ég held að þá hafi hann nefnilega
ekki gengið heill til skógar. En
hann var svo glaður og ánægður
yfir því að hafa komist upp.
Ég held að Helgi hafi verið
glaður og bjartsýnn að eðlisfari.
Ég segi alltaf að hjón eigi ekki
að vinna á sama vinnustað, en
undantók alltaf Gússu og Helga.
Helgi greindist með krabba-
mein og átti langa og stranga
þrautagöngu sem lauk í Tyrk-
landi, en það sýnir kjarkinn og
bjartsýnina að fara þangað í
ferðalag eins lasinn og hann var í
raun og veru. Eitt sinn er ég
hringdi í þau núna í vor ansaði
Helgi og þóttist hress eins og
alltaf, sagði að þau væru að leigja
sal út í bæ. Ég hváði. Jú, undir öll
þessi líkamsræktartæki sem
Gússa væri búin að sanka að sér.
Svona var hann alltaf tilbúinn til
að slá á létta strengi.
Ég veit að Helgi átti við áfeng-
isvandamál að stríða, en var bú-
inn að vinna bug á því þegar ég
kynntist honum.
Helgi var mikill fjölskyldumað-
ur, umhugað um alla sína, fylgd-
ist með og tók virkan þátt í lífi
þeirra og starfi. Hann var vinur
vina sinna. Við Auðbergur send-
um Gússu, börnum þeirra, barna-
börnum og tengdabörnum okkar
innilegustu samúðarkveðjur.
Katrín Gísladóttir.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar alla útgáfudagana.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is –
smella á reitinn Senda efni til Morg-
unblaðsins – þá birtist valkosturinn
Minningargreinar ásamt frekari
upplýsingum.
Skilafrestur | Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún að
berast fyrir hádegi tveimur virkum
dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför
hefur farið fram eða grein berst ekki
innan hins tiltekna skilafrests er
ekki unnt að lofa ákveðnum birting-
ardegi. Þar sem pláss er takmarkað
getur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar séu ekki
lengri en 3.000 slög (stafir með bil-
um - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virðingu
sína án þess að það sé gert með
langri grein. Ekki er unnt að tengja
viðhengi við síðuna.
Formáli | Minningargreinum fylgir
formáli, sem nánustu aðstandendur
senda inn. Þar koma fram upplýs-
ingar um hvar og hvenær sá, sem
fjallað er um, fæddist, hvar og hve-
nær hann lést, um foreldra hans,
systkini, maka og börn og loks hvað-
an útförin fer fram og klukkan hvað
athöfnin hefst. Ætlast er til að þetta
komi aðeins fram í formálanum, sem
er feitletraður, en ekki í minning-
argreinunum.
Undirskrift | | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Myndir | Ef mynd hefur birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið sé
um annað. Ef nota á nýja mynd er
ráðlegt að senda hana á mynda-
móttöku: pix@mbl.is og láta um-
sjónarmenn minningargreina vita.
Minningargreinar