Morgunblaðið - 22.06.2008, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 22.06.2008, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Halldór MagnúsÞorkelsson fæddist á Álftá í Hraunhreppi í Mýrasýslu 25. apríl 1921. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut að morgni 1. júní síð- astliðins. Foreldrar Halldórs voru hjón- in Ragnheiður Þor- steinsdóttir, f. í Saltvík á Kjalarnesi 13. nóvember 1880, d. 26. nóvember 1955 og Þorkell Guðmundsson, f. í Hjörsey á Mýrum 18. október 1880, d. 22. nóvember 1968. Þau Ragnheiður og Þorkell giftust 1907 og tóku þá við búi á Álftá af foreldrum Þorkels. Þau eign- uðust sex börn en tvö þeirra, Benedikt og Soffía Sigríður, lét- ust í bernsku. Auk Halldórs, sem var yngstur systkinanna, komust þrjár dætur til fullorðinsára, El- ín, gift Valtý Guðjónssyni, bæj- arstjóra, Soffía Kristín, gift Ólafi Sigurðssyni, matreiðslumanni, og Lóa, gift Hallgrími Th. Björns- syni, yfirkennara. Af systk- inunum frá Álftá er Lóa nú ein á lífi. Foreldrar Halldórs bjuggu á Álftá þar til Ragnheiður lést, 1955, en nokkrum árum áður hafði Halldór tekið við búi þar. Þeir feðgar Þorkell og Halldór bjuggu þar áfram þar til þeir brugðu búi vorið 1957 og fluttust til Keflavík- ur, en þar bjuggu þá allar systurnar þrjár. Halldór kvæntist vorið 1960 Gunn- laugu Eygló, dóttur hjónanna Sigfúsar Davíðssonar og Margrétar Eyj- ólfsdóttur á Læk í Holtum, en hún hafði verið ráðskona þeirra feðga síðustu ár þeirra á Álftá. Þau hófu búskap í Keflavík, og bjuggu lengst af á Suðurgötu 48. Síðustu árin bjuggu þau Eygló í Efstaleiti 71. Þau Eygló og Hall- dór eignuðust tvær dætur, Ragn- heiði Þóru, bankastarfsmann, f. 1960, gift Ásgeiri Torfasyni, vél- stjóra og eiga þau soninn Halldór og Halldóru Margréti, skrifstofu- mann, f. 1967, gift Hafsteini Hilmarssyni, húsasmið og eiga þau tvo syni, Hilmar og Gunn- laug. Útför Halldórs fór fram í kyrr- þey. Við lát Halldórs Magnúsar Þor- kelssonar, eða Dóra á Álftá eins og hann var jafnan nefndur vestur á Mýrum, leita margar minningar á hugann. Dóri var yngstur sex barna hjónanna á Álftá, en heimilið þar var annálað fyrir myndarskap og snyrtimennsku. Ég átti því láni að fagna að vera í sveit á Álftá öll mín bernsku- og æskusumur. Sum- ardvölin vestra var mér tilhlökk- unarefni allan veturinn og átti Dóri frændi minn ekki síst þátt í að gera hana svo ánægjulega fyrir mig og ég veit að ég tala fyrir munn margra sem áttu þess kost að vera þar í sumardvöl. Þeir hafa sömu sögu að segja og minnast dvalarinnar með þakklæti. Dóri og Þorkell afi minn brugðu búi árið 1957 og fluttust til Kefla- víkur þar sem Dóri reisti hús að Suðurgötu 48 í félagi við frænda sinn Gylfa Valtýsson. Vorið 1960 kvæntist Dóri Eygló Sigfúsdóttur frá Læk í Holtum, en hún hafði verið ráðskona þeirra feðga síð- ustu árin á Álftá, eftir lát Ragn- heiðar 1955. Eftir að þeir feðgar fluttust til Keflavíkur vann Dóri lengi við járnsmíðar og viðgerðir í Dráttarbraut Keflavíkur og síðar við bílaviðgerðir hjá Sérleyfisbif- reiðum Keflavíkur, SBK, allt fram á miðjan áttræðisaldur. Hann var eftirsóttur starfsmaður, enda mjög lagtækur, útsjónarsamur, stundvís og áreiðanlegur. Útsjónarsemi hans og þrautseigja kom einnig vel í ljós á sínum tíma þegar vatnsafls- virkjun var gerð á Álftá, mikið mannvirki fyrir einn bóndabæ, og aðstæður hinar erfiðustu. Dóri var að eðlisfari nokkuð dul- ur og hlédrægur en bast vinum sínum traustum böndum. Hann var mikið náttúrubarn og aldrei naut hann lífsins eins vel og við veiði- skap á bökkum einhverrar árinnar á Mýrunum. Hann var með af- brigðum fiskinn og virtist hafa sál- fræði laxanna alveg á hreinu. Síðustu árin bjuggu þau Dóri og Eygló að Efstaleiti 71. Þau höfðu alltaf náin samskipti við dætur sín- ar, Ragnheiði Þóru og Halldóru Margréti og sinntu barnabörnum sínum svo vel að eftir var tekið. Dóri frændi minn var góður og natinn heimilisfaðir og hugsaði af- ar vel um sitt fólk. Átti Þorkell afi minn gott ævikvöld hjá honum og Eygló og sýndu þau honum mikla umhyggju og ræktarsemi.Við Hall- dóra, konan mín, ásamt börnum okkar nutum mikillar gestrisni hjá þeim hjónum, bæði fyrr og síðar og áttum við þar margar góðar stundir og var um margt spjallað. Síðustu árin átti Dóri við alvarleg veikindi að stríða, sem hann virtist þó lengi vel hafa í fullu tré við. Tveim vikum fyrir ævilokin vorum við Dóri að rifja upp fjölmörg ör- nefni í hinni víðfeðmu landareign Álftár, með það í huga að bjarga þeim frá gleymsku. Þegar við kvöddumst ákváðum við að hittast fljótlega aftur og ljúka verkinu, þar sem aðeins vantaði herslumun- inn, en þrek Dóra leyfði ekki að við lykjum verkinu þá. Ekki hvarflaði þó að okkur að svo skammt væri til endalokanna sem raun bar vitni. Við Halldóra viljum að leiðarlok- um þakka gömul og góð kynni við þau hjónin og erum þakklát fyrir þær stundir sem við náðum að eiga með Dóra frænda og hans góðu konu. Við biðjum Guð að styrkja fjölskylduna á þessum erfiðu tíma- mótum. Heiðar Þ. Hallgrímsson. Halldór Magnús Þorkelsson ✝ Helga Þorvalds-dóttir fæddist 1. október 1919. Hún lést 8. júní síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru Ólöf Jónsdóttir frá Hlíð í Skaftártungu, f. 10. janúar 1884, d. 5. ágúst 1938, og Þor- valdur Jónsson frá Hemru í sömu sveit, f. 10. ágúst 1885, d. 21. júní 1962. Þau bjuggu á Skúms- stöðum í Vestur- Landeyjum, en þar ólst Helga upp í níu systkina hópi. Hin eru Hild- ur, f. 1912, d. 1933, Sigríður Lóa, f. 1913, d. 1985, Rósa, f. 1916, d. 1940, Tryggvi, f. 1917, d. 1994, Sigurður, f. 1921, Hrefna, f. 1923, Þórunn, f. 1925 og Sveinn, f. 1926, d. 2005. Hálfsystir Helgu sam- feðra er Ragnheiður, f. 1957. Helga giftist Jóni Gesti Bene- diktssyni, frá Suðurkoti í Vogum, f. 23. maí 1904. Dóttir þeirra er Særún, f. 23. febrúar 1949, gift Ragnari Karli Þorgrímssyni, f. 23. júlí 1945. Dætur þeirra eru: Helga, f. 27. janúar 1971, sambýlismaður Birgir Örn Ólafs- son, f. 13. október 1969, börn þeirra eru Edda Björk og Jón Gestur Ben. Ok- tavía Jóhanna, f. 2. september 1972, gift Ivan Kay Frandsen, f. 16. apr- íl 1964, börn þeirra eru Magnea Guð- ríður, Ragnar Karl, Elsa Kristín og Kristján Karl. Guðrún Kristín, f. 7. október 1983, sambýlismaður Sveinn Finnur Helgason, f. 6. nóvember 1981, sonur þeirra er Daníel Örn. Helga flutti rúmlega tvítug til Reykjavíkur og síðar í Voga í Vatnsleysustrandarhreppi þar sem hún bjó öll sín búskaparár. Síðustu fimm árin bjó Helga á Hlévangi, dvalarheimili aldraðra í Keflavík. Útför Helgu fór fram frá Kálfa- tjarnarkirkju 13. júní. Með nokkrum orðum viljum við minnast ömmu okkar Helgu Þor- valdsdóttur. Það er erfitt að minnast æskuáranna í Vogunum án ömmu og afa. Allt líf okkar var samtvinnað lífi þeirra, innan og utan heimilisins. Heimili þeirra var heimili okkar. Að hafa í öruggt skjól að leita þar sem væntumþykja og velferð er höfð í há- vegum, er ómetanlegt. Að búa nálægt ömmu og afa og hitta daglega er mik- ilvægt innlegg í uppeldi hvers barns. Það er okkar trú. Amma var góð og sterk kona. Hún hafði gengið í gegn- um erfiðleika áður en hún kom í Vog- ana en lét það ekki hafa áhrif á líf sitt þar. Hún bjó þeim afa fallegt heimili. Minningarnar eru margar úr Suð- urkotinu. Þar voru allir velkomnir og oft gestkvæmt. Amma hafði gaman af að matbúa og gerði góðan mat og bakkelsi. Amma hafði græna fingur og rækt- aði grænmetið sitt sjálf. Með henni tókum við upp kartöflur og sáðum gulrótum. Hún hafði yndi af blómum og treysti okkur fyrir þeim ef hún þurfti að bregða sér af bæ. Ömmu þótti vænt um dýr og með henni áttum við kindur í litlu húsi nið- ur á túni. Þær voru tenging hennar við sveitina – Landeyjarnar – sem var henni svo kær. Þangað hugsaði hún oft og á seinni árum talaði hún mikið um lífið og tilveruna í heimahögunum. Frá ömmu höfum við okkar sterku tengingu við náttúruna. Amma var alltaf með eitthvað á prjónunum og sá ömmu- og lang- ömmubörnum sínum fyrir ullarsokk- um og vettlingum. Í seinni tíð bættist föndrið við. Eftir að langömmubörnin fæddust hafði hún mikla ánægju af að fylgjast með hvernig þeim vegnaði. Þau voru líka dugleg að heimsækja hana og höfðu gaman af. Þau sakna þess nú að koma ekki við á Hlévangi og hitta langömmu og alla hina sem þar búa. Ekki skemmdu heldur fyrir sætindin sem hún bauð upp á. Amma hafði sér- staklega gaman af að heyra sögur af útreiðatúrum langömmubarnanna, enda hestakona sjálf. Minnisstæð stund er þegar hún kom í heimsókn í hesthúsið fyrir rúmu ári síðan og strauk hestunum um granirnar. Það átti við hana. Amma var sterkur persónuleiki og minnisstæð mörgum. Hún kom til dyranna eins og hún var klædd og sagði sína skoðun. Við minnumst hennar þannig. Við þökkum ömmu fyrir allt sem hún hefur gefið okkur. Blessuð sé minning hennar. Helga, Oktavía Jóhanna og Guðrún Kristín. Nú er Helga móðursystir mín dáin, en hún er ljóslifandi í minningu okkar sem þekktum hana. Hrefna móðir mín (f. 1923) og Helga (f. 1919) voru samrýndar systur. Ég man ferðalög okkar mömmu suður í Voga með rút- unni eða í Volvo Jóns Ben, eigin- manns Helgu. Það var gaman í Vog- um og Suðurkot annað heimili okkar. Við Særún, dóttir Helgu og Jóns, vor- um leikfélagar, bæði í Suðurkoti og þar sem ég ólst upp, Álfhólum í Land- eyjum. Helga og Sæja dvöldu oft á sumrin hjá okkur við heyskap og ann- að. Raka þurfti með hrífu dreif sem hestarakstrarvél skildi eftir og þar lét Helga sig ekki vanta. Það var gaman þegar þær mæðgur voru. Jón Ben kom líka en stoppaði styttra. Helga er fædd og uppalin á Skúms- stöðum í Landeyjum í 9 systkina hópi. Þorvaldur og Ólöf, foreldrar þeirra, keyptu jörðina á kafi í jökulvatni frá Markarfljóti, en þá rann hluti þess í farvegi Þverár og lagðist yfir Út- Landeyjar og Þykkvabæ. Þorvaldur tók þátt í að beisla vatnið sem tókst á endanum. Næstu áratugi voru þar frábærar engjaslægjur en tún lítil. Á veturna flott skautasvell yfir öllu. Sjálfur kynntist ég engjaheyskap í Klasbarðadammi, þar rétt hjá. Þarna voru endalausar breiður af grósku- mikilli gulstör, ilmurinn indæll og fuglakvakið unaðslegt. Síðar var þessu landi spillt með því að þurrka það svo gulstararflóarnir eru ekki svipur hjá sjón. Helga ólst upp við mikla vinnu eins og þá tíðkaðist. Bærinn var torfbær og þar máttu sáttir sitja þröngt. Timburhús úr rekaplönkum var byggt nokkru áður er Helga flutti að heiman. Tvær eldri systur Helgu dóu upp- komnar og sjálf var Helga hætt kom- in af lungnabólgu á fermingarárinu. Hún lá margar vikur milli heims og helju og minntist þess oft, hve Þórður í Eystrihól, nágranni og heimilisvin- ur, hjúkraði henni og vakti heilu næt- urnar. Þetta var fyrir daga sýklalyfja og lungnabólgan mannskæður sjúk- dómur. Helga taldi að heilsuleysi á bænum hafi stafað af því að faðir þeirra lét rækta upp hólinn Gegni, en þar átti að vera huldufólk. Systkinin sóttu farskóla á Skúms- stöðum og nálægum bæjum. Tveir bræðranna, Sigurður og Sveinn, luku síðar iðnmenntun og Þórunn lærði hjúkrun. Helga og Hrefna fóru í hús- mæðraskóla; Helga í Staðarfell í Döl- um og Hrefna í Hveragerði. Það var einhver sú besta menntun sem konum stóð þá til boða. Heimilishald á Skúmsstöðum hvíldi á herðum Helgu eftir að Ólöf, móðir þeirra lést, en Lóa, þá elst systranna, var orðin húsfreyja á næsta bæ, Sigluvík, og Þorvaldur, faðir þeirra, oft heilsutæpur. Árið 1944 kvænist Þorvaldur síðari konu sinni, Guðríði Ársælsdóttur. Helga flytur þá til Reykjavíkur ásamt þremur systkin- um sem þá voru enn heimavið. Helga bjó og vann skamma hríð í Reykjavík uns hún kynnist Jóni Benediktssyni og gerist ráðskona hans og síðar eig- inkona í Suðurkoti í Vogum. Síðustu árin bjó Helga í Keflavík. Við hjónin litum oft til hennar og rifj- uðum upp gamla tíma. Hún var sátt við lífið fram á síðasta dag og hárið ekki farið að grána þó árin væru orðin 88. Blessuð sé minning Helgu. Hinsta kveðja frá Hrefnu og henn- ar fólki. Þorvaldur Örn Árnason Helga Þorvaldsdóttir ✝ SveinbjörnKristinn Eiðsson bifreiðasmiður fæddist á Rauf- arhöfn 20. október 1933. Hann lést á bráðadeild Land- spítalans við Hring- braut 7. júní síðast- liðinn. Hann var sonur hjónanna Eiðs Eiríkssonar og Járn- brár Kristrúnar Sveinbjörnsdóttur. Sveinbjörn var fjórði í röð sex systkina, elstur var Eiríkur sem lést á unglingsaldri, eftirlifandi eru Þorbjörg, Fjóla, Gylfi og Ei- ríkur. Sveinbjörn kvæntist hinn 31. mars 1956 Önnu Sigurrósu Sig- urjónsdóttur. Þau eignuðust fimm börn. Þau eru: María; Sigurjón, maki Edda Björk Rögnvaldsdóttir, þau eiga þrjú börn; Eiður, maki Heiðrún Davíðsdóttir, þau eiga einn son; Auð- ur, maki Erlendur Markússon, þau eiga átta börn; og Guðrún, maki Flosi Pálmason, þau eiga tvö börn. Útför Sveinbjörns fór fram 16. júní, í kyrrþey að ósk hins látna. Elsku afi, nú ertu kominn til himna. Það er svo skrýtið að koma í Akra- landið til ömmu og þar er enginn afi, Aníta Ísold leitar enn að afa sínum, hún er svo lítil og skilur ekki að allt hefur breyst. Við, þessi stóru, eigum margar og góðar minningar um þig að búa til skutlur, teikna báta, bóndabæi og karla eða að lesa 10 litla negrastráka sem þú last með þvílíkri snilld að aldr- ei var hægt að fá leið á. Þú varst duglegur að benda okkur á kosti okkar og fylltir okkur stolti yf- ir að vera af Grasgeira-ættinni, því af því varst þú stoltur. Það var gaman að segja þér frá ein- kunnum okkar í skóla, þú hafðir svo mikinn áhuga á öllu sem við tókum okkur fyrir hendur og fylgdist vel með. Við vissum vel að þú varst veikur og þegar við keyrðum þig reglulega upp á spítala vissum við að það var verið að lækna þig og trúðum að þér myndi batna, því var það reiðarslag þegar mamma sagði okkur að þú vær- ir dáinn. Við höfum aldrei kynnst svona mik- illi sorg, það vantar svo mikið, en afi, við höldum áfram að rifja upp góðar minningar um góðan mann og gleðj- ast yfir þeim tíma sem við fengum að hafa þig hjá okkur. Snert hörpu mína, himinborna dís, svo hlusti englar guðs í Paradís. Við götu mína fann ég fjalarstúf og festi á hann streng og rauðan skúf. (Davíð Stefánsson) Takk fyrir allt elsku afi. Sólveig María, Sveinbjörn Ingi, Daníel Smári, Ívar Bjarki, Embla Rut, Sædís Ylfa, Anna Glódís og Aníta Ísold. Með þessum erindum langar mig að kveðja bróður minn og vin. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V.Briem) Þorbjörg Eiðsdóttir. Sveinbjörn Kristinn Eiðsson Morgunblaðið birtir minning- argreinar alla útgáfudagana. Skil | Greinarnar skal senda í gegn- um vefsíðu Morgunblaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morg- unblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningargreinar ásamt frekari upplýsingum. Skilafrestur | Ef birta á minning- argrein á útfarardegi verður hún að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Ef útför hefur farið fram eða grein berst ekki innan hins tiltekna skilafrests er ekki unnt að lofa ákveðnum birting- ardegi. Minningargreinar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.