Morgunblaðið - 22.06.2008, Blaðsíða 8
8 SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 2008 MORGUNBLAÐIÐ
Hvað á þetta að þýða, bara rakinn dónaskapur að vera úti að aka, spreða bensíni, og það í
þessari blíðu þegar þið eigið að liggja heima í sólbaði.
VEÐUR
Samkvæmt fréttavef BerlingskeTidende hafa dönsk stjórnvöld
samið við sex skip í fiskiflota lands-
ins um að setja upp myndavélar á
dekkinu sem fylgjast með veiðunum
til að hamla gegn brottkasti. Þetta
er tilraunaverkefni og fá skipin sem
taka þátt í verkefninu aukinn kvóta.
Vonast dönsk stjórnvöld til aðbrátt verði komnar brottkasts-
myndavélar í öll fiskiskip ESB.
Hér er um afar merkilega tilraundanskra stjórnvalda að ræða,
sem augljóslega líta á brottkast
danskra
veiðiskipa
sem stað-
reynd, al-
gjörlega
öndvert því
sem íslenzk
stjórnvöld og Landssamband ís-
lenzkra útvegsmanna gera. Á þeim
bæ má ekki einu sinni ræða hugs-
anlegt brottkast.
Nú eru fiskveiðikvótar í Dan-mörku miðaðir við að brottkast
eigi sér stað og telja dönsk yfirvöld
að sjómenn muni hætta brottkasti
ef kvótinn verði aukinn til muna hjá
þeim sem geti sannað að þeir landi
öllu því sem þeir veiða.
Þau skip sem verða uppvís aðbrottkasti eða geta ekki fram-
vísað myndum úr eftirlitsmyndavél-
unum munu fá upprunalega kvót-
ann.
Sennilegt er að gamalkunnurgrátkór LÍÚ hæfi upp raust
sína sem aldrei fyrr, eins og ávallt
hefur gerst þegar svo mikið sem ýj-
að hefur verið að brottkasti ís-
lenzkra sjómanna, ef sjávarútvegs-
ráðherra, Einar K. Guðfinnsson,
viðraði þá hugmynd að við tækjum
okkur Dani til fyrirmyndar í þess-
um efnum. Enda eru afar litlar lík-
ur á að slíkar tillögur eigi eftir að
heyrast frá ráðherranum, eða
hvað?!
STAKSTEINAR
Danir og brottkastið
SIGMUND
!
"
#$
%&'
( )
* (!
+ ,-
. / 0
+ -
12
1
3
4
2-2
* -
5 1
%
6!
(78
9 4 $ (
:
3'45;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@).?
!
!
!
!
*$BCD
!" " #
$
%$&
*!
$$
B *!
" # $%
#
% & '%( '
<2
<! <2
<! <2
"&%$
)*+,- '.
DD2E
<
87
'
#
"
(
"
' $)%*+ #
"
" B
"
2
' ,)-+
#
" .
%/&
/0 '11
'% 2' -')*3
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
FRÉTTIR
Sp
ör
-
Ra
gn
he
ið
ur
In
gu
nn
Ág
ús
ts
dó
tti
r
s: 570 2790www.baendaferdir.is
b o k u n @ b a e n d a f e r d i r . i s
8. - 26. október Nepal
GÖNGUFERÐIR
Eftir að hafa skoðað það markverðasta í og við höfuðborgina Katmandú,
fljúgum við í ótrúlegu útsýnisflugi yfir Himalajafjöllin til Pokhara. Síðan er flogið
næsta dag til bæjarins Jomsom í 2.720 m. þar sem gangan hefst. Á göngunni
munum við upplifa fjölbreytt og hrikalegt landslag og kynnast framandi
menningu Nepala og Tíbeta. Við göngum um neðra Mustang sem fyrir ekki svo
mörgum árum var konungsríki sem var einangrað og lokað fyrir vestrænum
ferðamönnum. Einnig göngum við meðfram Kaligandaki ánni sem myndar
dýpstu gljúfur veraldar á milli sumra af hæstu tindum veraldar, m.a. Annapurna
í 8.091 m og Dhaulagiri 8.167 m. Einnig göngum við á útsýnistindinn Poonhill
3.200 m. Gengið verður á þægilegum hraða til að aðlagast sem best þunnu
loftinu. Göngustígarnir liggja á milli þorpa hinna ýmsu ættflokka í 900 - 3.800
m. Innfæddir sjá um farangur, matseld og að koma upp tjaldbúðum í
næturstað. Gist er á góðum hótelum fyrir og eftir gönguferðina.
Fararstjóri: Helgi Benediktsson
Verð: 358.290 kr. Mikið innifalið!
Gönguævintýri í
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
„VIÐ ERUM með tvær til þrjár giftingar á prjón-
unum og svo hafa nokkrir pantað útför,“ segir
Svanur Sigurbjörnsson, stjórnarmaður í Sið-
mennt og athafnastjóri, spurður út í hvort mikil
eftirsókn sé eftir veraldlegum athöfnum á vegum
Siðmenntar – félags siðrænna húmanista á Ís-
landi. Slíkar athafnir njóta sívaxandi vinsælda, og
þá aðallega meðal þeirra sem ekki tilheyra sér-
stökum trúflokki. Siðmennt hefur þegar gefið
saman tvö pör og í síðustu viku var fyrsta barnið
nefnt. Borgaralegar fermingar hafa hins vegar
verið haldnar í 20 ár.
Veraldlegt ígildi prests í slíkum athöfnum er at-
hafnarstjóri. En hvert er hlutverk athafnarstjóra?
„Hann stýrir félagslegri athöfn og heldur hug-
vekju. Hugvekjan er þá um lífið og tilveruna, oft er
vísað í heimspekinga, jafnvel farið með ljóð og
fjallað um lífsgildin,“ segir Svanur sem sjálfur
stýrði fyrstu útför sem haldin var á vegum Sið-
menntar 9. maí síðastliðinn.
Gifting undir berum himni
Þar sem Siðmennt hefur ekki sömu lagalegu
stöðu og trúfélög getur félagið ekki gengið frá
lagalegri hlið giftinga, og þurfa pör því að fá borg-
aralega giftingu hjá sýslumanni fyrir athöfnina.
Svanur leggur áherslu á að Siðmennt mismuni
fólki ekki eftir kynhneigð og samkynhneigð pör
eru einnig gefin saman – sem hjón. Einnig skiptir
staðsetning athafna litlu máli, og möguleiki á að
halda hana úti við eða í heimahúsi.
Hvað varðar útfarir, þá eru þær t.a.m. haldnar í
útfarakapellum, sem byggðar eru fyrir sameig-
inlegan kirkjugarðssjóð allra landsmanna og opn-
ar fyrir veraldlegar athafnir.
Ekki geta allir kallað sig athafnarstjóra og var
því fenginn reyndur kennari frá systurfélagi Sið-
menntar í Noregi til að halda námskeið í athafn-
arstjórnun, en löng hefð er fyrir slíkum athöfnum í
Noregi. Svanur er umsjónarmaður athafnaþjón-
ustunnar og mun fara víða um land á næstu vikum
og mánuðum til að kynna þennan nýja kost.
Siðmennt nefnir og giftir
ÓLAFUR Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, vonast til þess að undir lok
fjórða kjörtímabils síns, árið 2012,
hafi honum tekist
að sannfæra aðr-
ar þjóðir um hag-
nýtt gildi jarð-
varmaorku.
Þetta kom
fram í viðtali við
forsetann í þætt-
inum Principal
Voices á CNN og
fjallaði um fram-
tíð orkumála.
Ólafur benti á
að á miðjum 8. áratug síðustu aldar
hefði ástandið í Mið-Austurlöndum
gert það að verkum að lífsskilyrðin
hér á landi versnuðu og leita varð
annarra leiða til að fá orku. Íslend-
ingum hefði tekist að fara úr því að
reiða sig á olíu og jarðefnaeldsneyti
yfir í að nýta þá hreinu orku sem
landið byggi yfir. „Ef Ísland gat
gert þetta, miðað við hvernig
ástandið var fyrir 30-40 árum og
hvernig það er núna, þá held ég að
sérhvert land í heiminum geti gert
þetta.“
Hægt er að horfa á viðtalið við
Ólaf Ragnar á svæði Principal Voi-
ces á heimasíðunni CNN.com. Þátt-
urinn verður endursýndur á sjón-
varpsstöðinni klukkan 19 í kvöld og
klukkan sex á sunnudagsmorgun.
Íslenska
leiðin gæti
nýst öðrum
Ólafur Ragnar
Grímsson