Morgunblaðið - 22.06.2008, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 2008 61
Eftir Ásgeir H Ingólfsson
asgeirhi@mbl.is
Í KJÖLFARIÐ á heimsóknum ísbjarna til
landsins heimsækir Inga Huld Tryggva-
dóttir heimaslóðir á ný, með sýningu í
farteskinu sem fjallar einmitt um ólíka
heima sem sjaldan blandast saman. Sýn-
ingin heitir Heimsókn og ber undirtit-
ilinn „Fuglar, fiskar og vesen“ og er
fyrsta sýning listakonunnar hér heima.
„Ég bjó úti í San Francisco í þrjú ár og
kláraði BA-nám þar, líkaði fínt, þar slys-
aðist ég inn í einn grafíktíma og þar var
það ákveðið,“ segir Inga Huld sem lauk
MFA í grafík frá Pratt Institute í New
York árið 2007 og hefur búið og starfað í
borginni síðan, vinnur fyrir listamann í
Brooklyn og hjálpar henni að reka gall-
erí auk þess sem hún hefur unnið að eig-
in verkum, en hún hélt fyrstu einkasýn-
ingu sína í borginni í mars síðastliðnum.
Einhver verður
kvöldmatur
„Þessar heimsóknir geta bæði verið
heimsóknir til góðs vinar eða þegar mað-
ur heimsækir nýjar tilfinningar, lægðir í
huganum, oft neikvæðar og erfiðar,“ seg-
ir Inga um sýninguna. En af hverju fugl-
ar og fiskar – og hvað er vesenið? „Ég er
heilluð af þessu samspili á milli tveggja
heima sem sjaldan blandast saman,“ seg-
ir hún og þykir óvænt heimsókn ísbjarna
til furðu lostinna Íslendinga passa vel við
þema sýningarinnar. „En þessi samskipti
á milli heimanna enda yfirleitt á nei-
kvæðum nótum, einhver verður kvöld-
matur,“ bætir hún við. Það er vesenið,
vesen sem hún segir slæmt fyrir dýrin en
gaman fyrir hana, enda vesen kjörinn
efniviður í list. En hún er vissulega vön
því að ólíkir heimar mætist. „Ég bý í New
York, hér eru alltaf ólíkir heimar að
mætast. Ólíkir kynþættir, ólíkir menn-
ingarkimar,“ segir hún og líkast til eru
þessar heimsóknir ekki svo sjaldgæfar
eftir allt saman.
Fiskitorfur í Utah
„Ég nota ýmsa prósessa aðra en grafík,
en það er svona einn af uppáhalds. En ég
mála, geri innsetningar, og teikna mest
af öllu,“ segir Inga um vinnulag sitt. Og
hún heldur áfram að vinna með þjóð-
aratvinnuveginn, fiskinn. „Ég verð með
1.000 fermetra innsetningu af fiskitorf-
um í Utah í júlí. Svo er ég með sýningu á
Sólon í nóvember og í Flórída í febrúar.
Og svo held ég bara áfram að vinna.“
Óvæntar heimsóknir
Sýningin er í Grafíksafninu, Tryggvagötu
17, hafnarmegin, og verður opin frá kl. 14-
18 fimmtudaga til sunnudaga.
Morgunblaðið/Valdís Thor
Grafíkari Inga Huld fær heimsókn frá ljósmyndara.