Morgunblaðið - 22.06.2008, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 22.06.2008, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 2008 19 Vinsamlegast tilkynnið þátttöku fyrir þriðjudaginn 24. júní með því að senda tölvupóst á netfangið sagacapital@sagacapital.is eða hringja í síma 545 2600. Saga Capital Fjárfestingarbanki heldur morgunverðarfund með Eugen Weinberg, helsta hrávörusérfræðingi Commerzbank, fimmtudaginn 26. júní, frá kl. 8:30-10:00 á Hilton Reykjavík Nordica hóteli. Weinberg, sem stýrir rannsóknum og greiningu á hrávörum hjá Commerzbank, er eftirsóttur fyrirlesari á ráðstefnum víða um heim og tíður fréttaskýrandi t.d. hjá Bloomberg, CNBC og Financial Times. Olíuverð hefur aldrei verið hærra en nú og þetta háa verð hefur bein áhrif á rekstur fjölmargra fyrirtækja, svo sem samgöngufyrirtækja og sjávarútvegsfyrirtækja. Heimili landsins finna líka fyrir hækkandi eldsneytisverði og þessi verðhækkun hefur m.a. áhrif á verðbólgu og verðtryggingu húsnæðislána. Er olíuverðshækkunin komin til að vera eða er þetta bóla sem springur? Hvar liggja fjárfestingartækifæri framtíðarinnar? Weinberg mun í fyrirlestri sínum svara þessum spurningum ásamt því að fjalla almennt um hrávörumarkaði og þá kosti og galla sem fylgja fjárfestingum í hrávöru. Weinberg mun að auki fjalla um markaði með landbúnaðarvörur sem margir spá að muni fylgja í kjölfarið á olíunni og öðrum hrávörum og hækka á næstunni. Ó! 11 64 6 kantinum þegar hún átti að syngja hlutverkið og þar sem hún passaði ekki í téðan kjól var hún látin taka pokann sinn. Úr varð mikið fjölmiðlafár og þótti málið til marks um að útlitsdýrkun samtím- ans væri farin að taka út yfir allan þjófabálk. Ákvörðunin hafði akk- úrat ekkert með rödd Voigts að gera. Enga stæla að þessu sinni! Þegar fundum söngkonunnar og kjólsins bar saman að nýju fyrir skemmstu bað hann hana auð- mjúklega að fyrirgefa sér, kallaði hana sterka konu og eina mestu rödd okkar tíma. „Ég get ekki beðið eftir að þú klæðist mér á ný,“ sagði hann eftirvænting- arfullur. Á endanum sló Voigt til en þó með því skilyrði að kjóllinn yrði ekki með neina stæla að þessu sinni. „Þá fer ég á svið án þín,“ sagði hún röggsöm. Haldi lesendur að blaðamaður sé genginn af göflunum er þeim bent á að horfa á upptöku af fund- inum á YouTube. Hann átti sér í raun og veru stað. Það er greini- legt að Voigt hefur húmor fyrir sjálfri sér. Eftir frumsýninguna í Covent Garden í vikunni tjáði Voigt Reu- ters-fréttastofunni að uppsögnin fyrir fjórum árum hefði valdið sér sárum vonbrigðum og hún hefði verið reið í nokkurn tíma á eftir. Hún viðurkenndi þó að eins og hún var á sig komin á þessum tíma hefði hún eftir á að hyggja ekki passað inn í þessa nútímalegu uppfærslu. Við hlutverki Voigts tók hin „réttholda“ Anne Schwanewilms frá Þýskalandi. Ekki þarf að taka fram að hún smellpassaði í kjól- inn. Sú var tíðin að óperusöngvarar voru eingöngu ráðnir til starfa vegna raddar sinnar. Gætu þeir sungið voru þeir fullgildir í hlut- verk kónga og drottninga óháð því hvort þeir gátu hreyft sig úr spor- unum á sviðinu. Gárungarnir segja að Luciano heitinn Pavarotti hafi síðustu árin heyrt undir leik- myndahönnuðinn en ekki leikstjór- ann í sýningum. Þetta er að breyt- ast. Við lifum á tímum „popperu“ og hinu gamla listformi er í mun að höfða til fjöldans. Fyrir vikið skiptir útlitið ekki síður máli en röddin. Útlitið skiptir máli „Við verðum að horfast í augu við þá staðreynd að óperan er að breytast,“ segir Voigt sjálf. „Það er auðvelt að segja að útlitið eigi ekki að skipta máli og hér áður fyrr skipti það ekki máli. En nú er öldin önnur, hvort sem okkur líkar betur eða verr. Við þurfum að taka mið af sjónvarpinu og bar- áttan um hverja krónu er hörð í afþreyingargeiranum.Vitaskuld skiptir röddin áfram mestu máli en það væri barnalegt að halda því fram að útlitið geri það ekki líka.“ Samkeppnisstaða Voigt í þess- um nýja heimi óperunnar hefur batnað til muna á liðnum miss- erum eftir að hún fór í magahjá- veituaðgerð síðla árs 2004 og grenntist um 61 kg á örfáum mán- uðum. Hún þvertekur samt fyrir að „litla-kjólsmálið“ hafi ýtt henni yfir þröskuldinn. Ákvörðunin hafi verið tekin af heilsufarsástæðum. „Ég vissi að ég var orðin of feit. Konunglega óperan þurfti ekki að segja mér það. Þyngst var ég 159 kg og löngu vaxin upp úr öllum yf- irstærðum. Ég fór í þessa aðgerð vegna þess að mér leið ekki vel, mig verkjaði í hnén og ég náði varla andanum eftir að hafa geng- ið yfir götu. Líka vegna þess að ég kveið því að setjast niður í kvöld- verðarboðum ef stólarnir voru með örmum. Mun ég komast í þennan stól? hugsaði ég kvíðin.“ Svo hratt grenntist Voigt að sumarið 2006 hafði Konunglega óperan samband við hana og bauð henni hlutverkið í Ariadne á Nax- os á ný á yfirstandandi leikári. Ef til vill hafa húsbændur þar haft ofurlítinn móral. „Þegar ég fékk símtalið gat ég ekki annað en hlegið. Hringnum var lokað,“ sagði hún við AP-fréttastofuna í vikunni. Voigt þurfti þó ekki að hugsa sig um tvisvar enda lengi dreymt um að hasla sér völl á óp- erusviðinu í Lundúnum. Mikið lýsi hefur runnið til sjáv- ar síðan Voigt söng Ariadne síðast og hún viðurkennir að hafa þurft að nálgast hlutverkið með öðrum hætti nú. „Ég þurfti að aðlaga mig tæknilega og beita mér öðruvísi þar sem ég er svo miklu léttari núna. Líkaminn styður ekki eins við röddina nú og áður.“ Meira silfruð en gyllt Hún segir þyngdarmissinn samt ekki hafa bitnað á röddinni. „Ég held að röddin hafi ekkert breyst. Hún er alveg jafn stór og áður en ef til vill svolítið bjartari, meira silfruð en gyllt.“ Voigt fær misjafna dóma fyrir frammistöðu sína í bresku blöð- unum í vikunni. Óperurýnir The Guardian segir hana hafa verið „frekar yndislega“ í hlutverki Ari- adne. Hann hælir leik hennar á hvert reipi en segir röddina hafa misst örlítinn glans. Á móti komi hins vegar að hún virðist hafa öðl- ast meira frelsi til djúprar og sannfærandi túlkunar. Gagnrýnandi Telegraph er ekki eins hrifinn. Segir Voigt eiga í erf- iðleikum með að túlka sjálfs- vorkunn og depurð persónunnar og hvað sönginn varðar hafi hún ekki náð sér á strik fyrr en í lokadúettinum. Gagnrýnandinn hneykslast aukinheldur á fjaðra- fokinu kringum uppsögn og megr- un dívunnar. Í HNOTSKURN »Deborah Voigt fæddist ár-ið 1960. Hún óx úr grasi skammt frá Chicago en flutti 14 ára gömul til Placentia, Kaliforníu. »Þegar kjólamálið spurðistút var Voigt stödd á hóteli í Genf. Síminn stoppaði ekki og hún lét því endurskrá sig undir nafninu frú George Harrison. „Ég er mikill Bítla- aðdáandi.“ »Voigt segir þungar söng-konur njóta minni skiln- ings en þungir söngvarar. Einn gagnrýnandi benti á að hún væri of þung en tenórinn sem söng á móti henni væri með axlir á við varnarmann í ruðningi. „Hann gleymdi hins vegar að taka fram að maginn á honum var eins og á konu sem gengin er níu mánuði,“ segir Voigt hneyksluð. »Voigt segir líkamann ekkistyðja eins vel við röddina eftir að hún grenntist.Áður Voigt var þyngst 159 kg. „Ég kveið því að setjast niður í kvöldverð- arboðum ef stólarnir voru með örmum. Mun ég komast í þennan stól?“ inu „Einn fyrir alla, allir fyrir einn“ er mikilvægt að ljóst sé að öll ríkin leggi fram eðlilegan og sanngjarnan skerf til aðgerða. NATO þróaði þess vegna kerfi til að meta liðsafla sem ríkin legðu til mikilvægra aðgerða með hliðsjón af þjóðartekjum þeirra. Útreikningar af þessu tagi hafa þann kost að niðurstöður þeirra gefa ákveðna vísbendingu um skiptingu byrðanna en einnig hefur verið sýnt fram á að ekki er að öllu leyti hægt að sýna skiptinguna með því að nota gröf og töflureikna. Hvernig á að ákveða hvað sé sanngjarnt framlag 50 milljóna þjóðar borið saman við það sem fjögurra milljóna þjóð legg- ur fram? Hvernig berum við framlag léttvopnaðs fótgönguliðs saman við það að leggja til mikilvæg tæki eins og þyrlur eða tankflugvélar sem geta séð herþotum fyrir eldsneyti á lofti? Hvaða tímabil er notað við útreikn- ingana? Ein af leiðunum til að ná fram meira jafnræði í framlögum og skipt- ingu byrðanna er að öll ríkin leggi fé í sameiginlegan sjóð í samræmi við þjóðarframleiðslu. Hefðin er að NATO styðjist við þá reglu að sér- hvert aðildarríki borgi allan kostn- aðinn af eigin framlagi til aðgerðar sem bandalagið stendur fyrir. Á síð- ustu árum hefur þessari stefnu NATO verið breytt í þá veru að leyfa sameiginlega fjármögnun á vissum verkefnum og ýta þannig undir þátt- töku í að auka getu liðsins á vígvell- inum, til dæmis á sviði læknisþjón- ustu, reksturs flugvalla fyrir her- menn og birgðir eða við upplýs- ingaöflun. Skipting byrða er viðkvæmt mál, bæði fyrir NATO og alþjóðasam- félagið, og stundum verður mönnum heitt í hamsi. Ef við slökum á og at- hugum heildarmyndina er ljóst að ekki er eingöngu um það að ræða að ríkin ráði yfir viðeigandi getu vegna verkefnisins. Þau þurfa líka að eiga peninga og hafa til þess pólitískan vilja að nota þá. Ekki er til nein ein lausn sem leys- ir vandann vegna skiptingar byrð- anna. En margt sem nú er unnið að á vettvangi NATO ætti að geta komið að gagni: aðgerðir á sviði umbreyt- ingar til að fjölga í sameiginlegum röðum herafla sem kemur að gagni á vígvelli; viðleitni til að efla fjölþjóð- legt framtak; aukin áhersla á að treysta á sameiginlega fjármögnun til að aðstoða við að útbúa og beita hervaldi; og rækileg könnun á því hvernig hægt sé að deila byrðum í al- þjóðasamfélaginu öllu með meira jafnræði í huga. Samstaða ekki bara slagorð Bandalag á borð við NATO ræður, andstætt mörgum „bandalögum hinna viljugu“, yfir kerfi pólitísks samráðs, þrautreyndum skipulags- aðferðum, öflugu stjórn- og eftirlits- kerfi og hefur til að bera lögmæti sem ýtir undir að þjóðir leggi fram skerf til aðgerða þess. Samstaða í bandalaginu er ekki bara slagorð. Tilfinningin fyrir því að menn verði að standa við loforð sín og skuldbind- ingar gagnvart öðrum bandamönn- um, sem eigin öryggi allra byggist á þegar upp er staðið, hvetur mjög til að byrðunum sé skipt í anda jafnræð- is. Ef til vill er ekki hægt að skipta byrðunum á fullkomlega sanngjarn- an hátt en bandalag um öryggi, eins og NATO er, gerir okkur án nokkurs vafa kleift að nálgast það takmark meira en gerlegt væri með nokkrum öðrum hætti. Í HNOTSKURN »Atlantshafsbandalagið varstofnað 1949 til að verjast ágangi kommúnistaríkjanna og voru Íslendingar meðal 12 stofnþjóða. Aðildarríkin eru nú 26 og 24 að auki eiga náið samstarf við bandalagið. »Lengst af átti bandalagiðsem slíkt enga aðild að stríði. Það var ekki fyrr en Júgóslavía leystist upp í blóð- ugum átökum á tíunda ára- tugnum að NATO-hermönn- um var beitt í átökum. Jaap de Hoop Scheffer er fram- kvæmdastjóri Atlantshafsbandalags- ins. ©Project Syndicate 2008
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.