Morgunblaðið - 22.06.2008, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 22.06.2008, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 2008 43 ✝ Margrét Borg-hild Hafstein fæddist í Reykjavík 29. janúar 1919. Hún lést á Hrafnistu í Reykjavík 9. júní síðastliðinn. Margrét var dótt- ir hjónanna Marinós Jakobs Havsteins sýslumanns (1867– 1936) og Þórunnar Eyjólfsdóttur hús- freyju (1877–1961). Systkini hennar voru Elín Elísabet Hafstein húsfreyja (1904–1957), gift Þórhalli Árnasyni fulltrúa (1891–1966), Jörgen Pétur Haf- stein lögfræðingur (1905–1930), Jóhanna Laura Hafstein talsíma- vörður (1906–1969), gift Þórarni Björnssyni skipherra (1903–1967) (skildu), gift Gunnari Guðmunds- syni kaupmanni (1917) (skildu), gift Davíð J.K. Löve (skildu), Hannes Þórður Hafstein (1908– húsfreyja (1891–1925). Margrét og Skapti eignuðust fjögur börn. Þau eru: 1) Elín Ebba, húsfreyja, f. 3. ágúst 1941, gift Jóhannesi Víði Haraldssyni flugstjóra, f. 2. júní 1939. Þeirra synir eru Skapti, f. 8. júlí 1971, og Haraldur, f. 2. júní 1973. 2) Þórunn Sóley húsfreyja, f. 17. nóv. 1943, gift Runólfi Sigurðs- syni flugvélstjóra, f. 7. maí 1939. Þeirra synir eru Skapti Þór, f. 8. júní 1970, Sigurður Arnar, f. 6. júlí 1973, og Frosti Jón, f. 27. jan. 1981. 3) Pétur Hafstein vélvirki, f. 21. jan. 1945, var kvæntur Huldu Guðbjartsdóttur, f. 3. sept. 1945, d. 21. sept. 2005. Þeirra börn eru Svava, f. 10. febr. 1966, Margrét, f. 1. jan. 1968, Gerður, f. 11. des. 1969, Guðbjartur, f. 11. des. 1969, Hulda Sóley, f. 6. okt. 1973, og Ið- unn, f. 23 ágúst 1974. 4) Jón, lög- giltur skjalþýðandi, f. 7. júní 1951, kvæntur Svövu Einarsdóttur kennara, f. 30. okt. 1953. Þeirra börn eru Margrét Sóley, f. 24. maí 1978, Auður Anna, f. 4. des. 1979, Þórunn Helga, f. 17. des. 1984, og Skapti f. 12. júlí 1989. Útför Margrétar fór fram frá Áskirkju 18. júní. 1933), Katrín Krist- jana Hafstein, hús- freyja í Kaupmanna- höfn (1909–1991), gift Carl Gustav Wolffbrandt lyfja- fræðingi (1904– 1985), Eyjólfur Jóns- son Hafstein stýri- maður (1911–1959), kvæntur Sigrúnu Eyjólfsdóttur (1920– 1982), Þórunn Jón- assen Hafstein, blaðamaður og síðar húsfreyja (1912– 1998), gift Sveini Þórðarsyni, skólameistara á Laugarvatni og síðar prófessor í Red Deer, Al- berta í Kanada (1913–2007). Margrét giftist 2. nóvember 1940 Skapta Jónsyni skipstjóra, f. 2. ágúst 1914 í Hrísey, d. 23. maí 1986. Foreldrar Skapta voru Jón Sigurðsson, vélfræðingur og útgerðarmaður í Hrísey (1883– 1940), og Sóley Jóhannesdóttir Það er merkileg kona gengin með Margréti B. Hafstein sem nú er fall- in frá 89 ára að aldri. Fyrir konu af hennar kynslóð var lífshlaup hennar um margt ævintýralegt. Eftir margra ára dvöl í fjarlægum lönd- um með tilheyrandi flakki kunni hún best við sig heima. Heimili hennar stóð okkur barnabörnunum ætíð opið og þangað sótti ég mikið. Fyrir börn var þetta hálfgerð æv- intýraveröld með sérkennilegum styttum skornum út í tré, strút- seggjum og risaskjaldbökuskel. Ekkert var heilagt af þessum mun- um og fengum við að róta og rann- saka að vild. Amma var myndarhúsmóðir og tók það hlutverk alvarlega. Enginn skyldi fara frá henni svangur og oft vorum við leyst út með pari af ull- arsokkum eða öðru nytsamlegu. Hún var hógvær og lítillát kona sem ekki vildi láta á sér bera. Við skynj- uðum þó hvílíkur viskubrunnur hún var og á góðum stundum náðum við að fá sögur frá lífshlaupi hennar. Ég var óþreytandi í að heyra sögur frá ömmu, þetta var allt svo spennandi. Oft hvarflaði það að mér að þetta væri efni í heila bók þó að aldrei fengi ég hana til að viðurkenna það. Amma fylgdist alla tíð vel með og gaman var að rökræða við hana bæði um dægurmál og pólitík. Fjöl- skyldan var henni mikilvæg og þó að afkomendum fjölgaði og væru dreifðir víða um heim þá gat ég ver- ið viss um að fá nýjustu fréttir af hverjum og einum hjá henni. Það hvíldi friður og ró hjá ömmu og hún hafði notalega nærveru, mörg barnabarnanna leituðu til hennar og fundu þar öruggt skjól. Langt fram á fullorðinsár áttum við systkinin til að gista hjá henni þeg- ar við stunduðum framhaldsnám í Reykjavík. Þá var dekrað við okkur og fengum við ómælda umhyggju og athygli. Það var alltaf tími fyrir barnabörnin og dýrmætt fyrir okk- ur í uppvextinum að fá tækifæri til að vera vinir ömmu og læra af reynslu hennar. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Gerður Pétursdóttir. Margrét B. Hafstein Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is Vaktsími: 565 5892 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Kistur • Krossar • Sálmaskrár • Duftker • Blóm • Fáni • Gestabók • Erfidrykkja • Prestur Kirkja • Legstaður • Tónlist • Tilkynningar í fjölmiðla • Landsbyggðarþjónusta • Líkflutningar Suðurhlíð 35 Fossvogi • www.utforin.is Vaktsími: 581 3300 & 896 8242 • Sólarhringsvakt Komum heim til aðstandenda ef óskað er Bryndís ValbjarnardóttirSverrir Einarsson ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS Það sem hafa ber í huga varðandi andlát og útför Hermann Jónasson Jón G. Bjarnason ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra BALDURS ÓLAFSSONAR, Tindaflöt 6, Akranesi. Herdís Viggósdóttir, Guðrún Elísabet Baldursdóttir, Árni Pétur Jónsson, Arndís Baldursdóttir, Gylfi Sigurðsson, Stefán Freyr Baldursson, Sigríður Guðjónsdóttir, Jón Viggó Gunnarsson, Helga Bryndís Kristjánsdóttir, Ingvi Gunnarsson, Sonja Dögg Pálsdóttir, Sigurður Gunnarsson, Aude Busson og afabörn. ✝ Hjartanlegar þakkir til allra þeirra sem auðsýndu okkur hlýhug, samúð og vináttu í veikindum og við fráfall móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, GUÐRÚNAR ÁGÚSTSDÓTTUR frá Æðey. Sérstakar þakkir til starfsfólks Heimahlynningar, líknardeildar Landspítalans í Kópavogi og á Landa- koti fyrir hlýju og frábæra umönnun. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Nína Heide, Sævar Kristmundsson, Birgitte Heide, Pétur Einarsson, Reynir Heide, Elísabet Gunnlaugsdóttir, ömmubörn og langömmubarn. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra, sem sýndu okkur hlýhug og samúð við fráfall og útför okkar elskuðu móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, OLGU MÖRTU HJARTARDÓTTUR, Norðurbrún 1, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Norðurbrún 1, deildum A-6 og B-4 á Landspítala Fossvogi og deild L-1 á Landakoti. Guð blessi ykkur öll. Heiðar V. Viggósson, Margreta Björke, Júlía Katrín Björke, Helgi Arnar Alfreðsson, Olga Ingrid Heiðarsdóttir, Halldóra Björk Heiðarsdóttir, Halldór Björke Helgason. ✝ Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elsku- legs föður míns, tengdaföður, afa og langafa, KRISTJÁNS TRYGGVASONAR, Brekkugötu 15, Akureyri. Sérstakar þakkir fá félagar í Blindrafélaginu. Guð blessi ykkur öll. Alda Kristjánsdóttir, Gísli Ármannsson, Kristján Þór Gíslason, Íris Ósk Gísladóttir, Natalía Rós Friðriksdóttir. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, PÁLL PÁLSSON (Páll á Borg) Hraunbæ 103, Reykjavík, lést á Líknardeild Landakotsspítala föstudagskvöldið 20. júní. Útför auglýst síðar. Inga Ásgrímsdóttir og fjölskylda. ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi, sonur og tengdasonur, TÓMAS JÓNSSON, Þrastarhólum 6, Reykjavík, lést á Borgarspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 18. júní. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Guðrún Þórdís Axelsdóttir. Kveðjum daga, mót nýjum tökum, nær og nær á fáki spökum, komumst við að ferðarlokum, lítum í kring og dokum. Lítum til hafs í djúpum firði, sem er nokkurs virði, og ekki skal í fyllingu áð, fyrr en heim er náð. Sindrar á glæstan fjallahring, sólin skín allt um kring, heimkoman er fögur mynd, þar seytlar lítil lind. „Veistu það Kalli, að ég geymi þvottapokann minn úti í glugga. Þegar flugvélarnar fljúga yfir henda flugfreyjurnar alltaf kara- mellum ofan í pokann, brosa til mín og vinka mér.“ Þessa sögu sagði Gútti frændi minn mér barn- ungum. Og ég trúði honum. Hann var kvennaljómi, já og gleðigjafi. Gútti var sannur Fáskrúðsfirð- ingur. Hann fylgdist með mönnum og málefnum þar eystra þótt löngu væri brottfluttur. Þar voru hans æskustöðvar, þangað lágu hans taugar. Farfuglarnir voru rétt búnir að hreiðra um sig á sumrin þegar Gútti kom austur að heim- sækja okkur fjölskylduna, þá yf- irleitt með Birgi bróður sínum. Mér var það alltaf mikil tilhlökkun að fá þessa góðu frændur mína í heimsókn. Það var gott að vera í návist Ágúst H. Sigurðsson ✝ Ágúst HeiðarSigurðsson (Gútti) frá Bræðra- borg fæddist á Fá- skrúðsfirði 23. októ- ber 1938. Hann lést á krabbameinsdeild Landspítalans 24. maí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Bústaðakirkju 2. júní. Gútta. Hann var svona raulari. Söngl- aði lagstúfa og skellti jafnan gríni inn í. Ég minnist ógleyman- legs útreiðartúrs inn á dal og út á leiru með Gútta á vornóttu einni. Við sungum svo að undir tók í fjöllunum. Það var auðvelt að hrífast með. Við minntumst oft á þessa ferð okk- ar síðar. Gútti hafði sterkar skoðanir og ríka réttlæt- iskennd. Þegar þessi tvö mál lágu saman var erfitt að vera á móti honum í rökræðum. Og mikið höf- um við rökrætt. Það var Gútta hæfileiki að koma auga á kómískar og spaugilegar hliðar augnabliks- ins. Hann hreif fólk með sér, létti lund þess og uppskar hlátur fyrir. Ég veit að ég get talað fyrir munn margra þegar ég segi að flestum þótti vænt um þennan samferða- mann sinn sem Gútti var. Ég set þessi fáu línur hér á blað, þakk- látur fyrir gefandi samfylgd Gútta. Ástvinum öllum votta ég mína dýpstu samúð. Hvíl í friði, kæri frændi, Karl Emil Pálmason.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.