Morgunblaðið - 22.06.2008, Blaðsíða 45

Morgunblaðið - 22.06.2008, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22. JÚNÍ 2008 45 ✝ Hjartans þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýju og vináttu við andlát og útför ástkærs eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, OLGEIRS KRISTINS AXELSSONAR kennara og prentara, Fannborg 8, Kópavogi, sem lést á líknardeild Landakotsspítala mánudaginn 9. júní. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á líknardeild Landakotsspítala fyrir auðsýnda alúð og umönnun. Ester Vilhjálmsdóttir, Valgerður K. Olgeirsdóttir, Unnar Már Sumarliðason, Kolbrún Olgeirsdóttir, Ingvar Ólafsson, Edda Olgeirsdóttir, Sigríður Olgeirsdóttir, Sigurjón Gunnarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elsku- legrar móður okkar, tengdamóður, ömmu, langömmu og langalangömmu, RAGNHEIÐAR EINARSDÓTTUR, Ransý. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunar- heimilinu Eir fyrir frábæra umhyggju og umönnun. Ragnar Tómasson, Dagný Gísladóttir, Gunnar Tómasson, Guðrún Ólafía Jónsdóttir, Ragnheiður Tómasdóttir, Jón Pétursson, Guðríður Tómasdóttir, Guðni Pálsson, Einar Sverrisson, Guðrún Bjarnadóttir, ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubarn. ✝ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞORSTEINS SIGURÐSSONAR, til heimilis á Hrafnistu, Reykjavík, fyrrum bónda á Brúarreykjum, Borgarbyggð. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Hrafnistu fyrir góða umönnun. Kristjana S. Leifsdóttir, dætur, tengdasynir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Hjartans þakkir færum við öllum þeim sem auðsýndu okkur samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför föður okkar, ÞÓRÐAR ÞÓRÐARSONAR, Danna, sem lést fimmtudaginn 29. maí í Danmörku. Guðmundur Þorkell Þórðarson, Elenora Ósk Þórðardóttir. ✝ Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, STEFANÍU ÓLAFAR STEFÁNSDÓTTUR Laufbrekku 4, Kópavogi Innilegar þakkir fær starfsfólkið á hjúkrunar- heimilinu Sunnuhlíð fyrir góða umönnun. Guðbrandur Ingólfsson, Björn Ingólfsson, Steinunn Erla Friðþjófsdóttir, Þuríður Ingólfsdóttir, Jóhannes Pétursson, barnabörn og barnabarnabörn.Hann fór bláfá- tækur frá sínu þorpi sem Grafarnes hét, en heitir í dag Grundarfjörður. Með tvær hendur tómar kom hann áttavilltur suður til Reykjavíkur til að leita sér að vinnu. Mikið atvinnuleysi var á þessum tíma í byrjun sjötta ára- tugarins og erfitt að hafa fyrir líf- inu almennt. Þessi maður hét Jakob Júl- íusson, og með drifkrafti og elju- semi og mikilli vinnu alla sína tíð skapaði hann ásamt konu sinni Guðnýju Sigurjónsdóttur glæsi- legt heimili og þrjár myndarlegar dætur. Fyrir átti hann tvo drengi. Jóhanna Júlíusdóttir systir hans var móðir mín en hún lést fyrir 14 árum, og voru þau mjög samrýnd og með sama húmorinn og gátu talað saman endalaust. Mér er minnisstætt þegar Kobbi kom til okkar á Hverfisgötuna, þá var slegið á létta strengi og gert grín að öllum málefnum, og hleg- ið. Kobbi var einstakur húmoristi og mjög orðheppinn, en einnig mikill skapmaður, og gat fyrst við Jakob Cecil Júlíusson ✝ Jakob Cecil Júl-íusson fæddist á bænum Sæbóli, Kvíabryggju á Snæ- fellsnesi 5. júlí 1932. Hann lést á heimili sínu, Löngufit 12 í Garðabæ, aðfara- nótt 6. maí síðastlið- inn og fór útför hans fram frá Garðakirkju 15. maí. minnsta mótlæti, sem kemur sennilega úr æsku, faðir hans var skapmaður en jafnframt mikill sögumaður og húm- oristi eins og Kobbi og móðir mín. Ég var að skoða gamlar blaðaúrklipp- ur og sá mynd af Kobba flaka steinbít og undir myndinni stendur Kobbi Júl að flaka steinbít og Halldór Ásgrímsson, þáverandi sjávarútvegsráðherra, horfir á, og Kobbi spyr hvort þessi steinbítur sé úr hans kjör- dæmi. Þetta voru þessi týpísku tilsvör eða gullkorn sem hann kom með. Eitt sinn var hann staddur á Hverfisgötunni og Simmi sonur hans var lítill og það var kona sem bjó á miðhæðinni sem var í heim- sókn, og Simmi segir við konuna: „Heyrðu kona af hverju ertu með svona ljótar tennur?“ og það var allt mjög vandræðalegt og kom upp leiðindaþögn. Til að bæta gráu ofan á svart segir Kobbi: „Heyrðu Simmi minn, ef þú sérð eitthvað athugavert við fólk þá áttu ekki að segja frá því,“ og andrúmsloftið versnaði til muna. Það kom högg á mig þegar Ragnar bróðir minn tilkynnti mér andlát frænda míns á þriðjudags- morgni. Ég átti ekki von á þessu vegna þess að ég hitti hann fyrir rúmum mánuði og þá leit hann vel út. Enginn veit sína ævi fyrr en hún er öll. Með andláti Jakobs Júlíussonar eru öll systkinin farin yfir móð- una miklu og hittast örugglega af miklum kærleik. Ég votta þér Guðný, Simmi, Jonní, Dæja og Ása mína samúð. Helgi Helgason. Trúr vinur er öruggt athvarf, og auðugur er sá sem finnur hann. Hann Jakob eða Kobbi okkar hefur nú kvatt þessa jarðvist en með söknuði kveðjum við þennan heiðursmann. Við viljum þakka alla þá hlýju og þitt einstaka viðmót í okkar garð, frá því að við, þá unga fjölskyldan árið 1982, fluttum í kjallarann hjá ykkur Guðnýju þinni á Löngufit 12. Þið voruð okkur þeir yndislegustu nágrann- ar sem við höfum kynnst. Enda nutu börn- in okkar þess að vappa í kringum Kobba sinn á lóðinni eða í bíl- skúrnum, að sjá hvað hann var að bardúsa þá stundina, af nógu var að taka. Ekki spillti að vinátta við dóttur ykkar Ásu, þá heimasætu, og síðar hennar fjölskyldu hefur haldist allar stundir síðan. Við höfum átt margar góðar samveru- stundir og þær minningar munum við geyma með virðingu og hlýju í hjörtum okkar. Englar Guðs vaki yfir og verndi ykkur í sorg og söknuði, elsku Guðný og fjölskyldan öll. Með kveðju, Elín Birna, Ómar, Valgeir, Aníta og fjölsk. Fyrsta minning mín um ömmu er þar sem hún heldur á mér í stofunni og er að segja mér hvað dýrin heita. Það var engin mynd á því að dýrin væru öll kölluð „kiss“ eins og kisa. Þegar ég minnist æsku minnar er amma þar iðulega með. Hún var alltaf til staðar í næsta húsi og alltaf jafn góð, hress og kát. Hún var með í för þegar ég fékk að kaupa mína eigin skólatösku. Og báðar vorum við hæstánægðar. Ég með bleiku töskuna og amma sam- gladdist mér innilega. Það var líka gott að hafa ömmu í næsta húsi þegar maður átti eitthvað bágt. Einu sinni kom hún mér til bjarg- ar þegar ég var ein heima skæl- andi því ég átti að labba ein í sundtíma. Amma sá til mín úr stofuglugganum sínum, kom yfir, huggaði mig og fylgdi mér í sund- ið. Þegar ég kom austur í vor að heimsækja ömmu tók ég eftir hvað kletturinn fyrir framan húsin okkar er í raun lítill, í minning- unni var klettaklifrið heljarinnar puð og mikið lagt á sig til þess að komast á leynistaðinn, litla syllu. En þegar þangað var komið þurfti iðulega að gera pissupásu á leik og þá var oftast farið til ömmu. Í einni þannig ferð okkar Guðnýjar var mjög gaman. Við hlógum allar mikið þegar amma gerði okkur grein fyrir því að ég var með kæk og sagði „héddna“ í öðru hverju orði. Síðan fengum við líka alltaf eitthvað gott í gogginn áður en við fórum aftur út í leik. Við krakk- Helga Björnsdóttir ✝ Helga Björns-dóttir, fyrrver- andi húsfreyja á Desjarmýri á Borg- arfirði eystra, fædd- ist í Hnefilsdal á Jökuldal 7. júlí 1919. Hún andaðist á Heilbrigðisstofn- uninni á Egils- stöðum 3. júní síð- astliðinn og fór útför hennar fram frá Egilsstaðakirkju 9. júní. arnir vorum alltaf velkomin hjá ömmu. En núna er elsku amma farin á annan fallegan og góðan stað. Það er gott að vita til þess að hún er ekki ein. Núna hefur hún afa sér við hlið. Ég er þakklát fyrir allan þann kærleik og hlýju sem amma gaf mér. Það er dýr- mæt gjöf að eiga góða að. Og svo sannarlega var amma einstök kona. Guð blessi þig, elsku amma. Þín Hrefna Þórey. Mín kæra frænka, Helga Björnsdóttir, lést á Heilbrigðis- stofnuninni á Egilsstöðum 3. júní sl. tæplega 89 ára að aldri. Þar með er langri lífsgöngu mætrar konu lokið. Helga var yngst systkinanna frá Hnefilsdal sem voru ellefu að tölu og var hún síðust þeirra til að kveðja þennan heim. Hún ólst upp í Hnefilsdal í stórum systkinahópi á fjölmennu menningarheimili og rætur þeirra systkina voru djúpar í Jökuldælskri mold. Í kvæðakverinu Í skímu haust- mánans eftir Stefán Björnsson, bróður Helgu, er m.a. kvæðið Hnefilsdalur. Dálítill bali með blómum og grasi, bærinn er horfinn, tyrft yfir sárin. Undir þessu grasi eru grafin gullin mín og fyrstu tárin. Hér kirjar Hnefla villtra vatna söng. Víghóllinn dylur bein frá gleymdri öld. Álfkonan blá á mjórri mittisspöng við Mælihólinn sést um tunglskinskvöld. /// Dyrfjöllin sofa í mjúkum mánalitum. Mildur dagur hefur verið kvaddur. Reyrgresið angar ungt í mínum vitum. Áin niðar hvar sem ég er staddur. Ég man Helgu fallega, bjart- leita og broshýra unga stúlku sem heimsótti okkur er við vorum flutt norður í Eyjafjörð. Ég man hana glaðsinna húsfreyju á stóru barn- mörgu heimili þar sem með hlýju þeli var hlúð að ungum sem öldn- um. Alltof ung varð hún ekkja, sjö barna móðir, er hún missti sinn góða eiginmann Ingvar Júlíus Ingvarsson frá Desjarmýri á Borgarfirði eystra árið 1974. Þar var Helga húsfreyja frá 1944 til 1980. Börnin sjö voru hvött til mennta og eru öll nýtir einstak- lingar sem eiga góðar fjölskyldur. Nöfn barna, maka þeirra og af- komenda eru skráð með minning- argreinum um Helgu í Morgun- blaðinu 9. júní sl. Á Desjarmýrartímabilinu sá ég Helgu sjaldan, hún fór ekki oft af bæ, vakti yfir búi og börnum, enda störfin endalaus sem biðu verkfúsra handa. Hennar eigið sjálf hafði ekki forgang, fjölskyld- an, heimilið, vinir og nágrannar nutu umhyggju hennar. Borgar- fjörðurinn var þá ekki í alfaraleið, en ættarbönd og vinátta voru milli Helgu og foreldra minna alla tíð. Helga var bæði litla systir og kær mágkona. Pabbi hringdi vikulega í systur sína síðustu árin sem hann lifði, þeim báðum til ánægju og mömmu þótti mjög vænt um Helgu og var það gagnkvæmt. Best man ég Helgu eftir að hún flutti að Mánatröð á Egilsstöðum, gisti hjá henni er leiðir lágu aust- ur. Hún umvafði mig hlýju og tengdi mig aftur austfirskum rót- um. Minnti á Guðríði móður sína með snyrtimennskunni, hugulsem- inni og handavinnunni og föður sinn, Björn, með röggseminni, fróðleiknum og dugnaðinum. Stórt skarð er nú fyrir skildi og tómið sem þessi góða móðir, tengdamóðir, amma og frænka skilur eftir verður seint fyllt. Konur eins og Helga, jafn- greindar, glaðsinna og óeigin- gjarnar sem hún, jafnumvefjandi ástvini sína og samferðafólk um- hyggju og fórnfýsi, eru ómetan- legar. Á kveðjustund er mér efst í huga þakklæti fyrir að hafa átt Helgu að föðursystur, þakklæti fyrir vináttu hennar og hlýju. Öll- um ástvinum hennar votta ég inni- lega samúð og sendi þeim hlýjar kveðjur, Anna Þrúður Þorkelsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.