Morgunblaðið - 02.08.2008, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2008 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
STJÓRNIR hluta-
félaganna Kaupþings
banka hf. (KB) og
Sparisjóðs Reykjavík-
ur og nágrennis hf.
(SPRON) hafa komið
sér saman um sam-
runaáætlun sem felur
í sér að KB yfirtaki
eignir og skuldir
SPRON með samruna
félaganna. Sá þáttur
þessa samruna sem
snertir skattamál
hluthafa verður gerð-
ur hér að umtalsefni.
Í 51. grein tekju-
skattlaganna ( nr. 90 /
2003 ) segir orðrétt :
„Sé hlutafélagi slitið
þannig að það sé al-
gjörlega sameinað öðru hlutafélagi
og hluthafar í fyrrnefnda félaginu
fái eingöngu hlutabréf í síð-
arnefnda félaginu sem gagngjald
fyrir hlutafé sitt í félagi því sem
slitið var, þá skulu skiptin sem slík
ekki hafa í för með sér skatt-
skyldar tekjur … “ Í þessari laga-
grein er eitt lítið orð sem skiptir
höfuðmáli. Þetta orð er eingöngu !!
Samkvæmt íslenskri orðabók þá
þýðir orðið : aðeins, bara, einungis.
Það stendur ekkert um að orðið
geti þýtt hitt og þetta og hvað sem
er, allt eftir hvað menn vilja. Ein-
falt. Eingöngu.
Í fundarboði stjórnar SPRON
stendur að við samrunann fái hlut-
hafar í SPRON hluti í KB banka
hf. og hluti í Exista hf. sem endur-
gjald fyrir hvern hlut í SPRON hf.
Augnablik! Hluti í Exista við sam-
runa SPRON við KB banka? Ekki
getur í þessu tilviki orðið eingöngu
átt við um hluti í Exista hf. Það er
útilokað að orðið eingöngu geti átt
við hlutabréf í Exista hf. þegar um
er að ræða samruna KB og
SPRON. Við þennan fyrirhugaða
samruna þýðir orðið eingöngu ein-
faldlega hlutabréf í KB banka fyrir
hlutabréf í SPRON og ekkert ann-
að. Eftir munnlegar álitsgjörðir
frá mörgum endurskoðendum þá
þykir mér ljóst að ekki er um sam-
runa að ræða samkvæmt 51. grein
tekjuskattslaganna. Var það hug-
mynd stjórnar SPRON að fela
þessa staðreynd fyrir hluthöfum
sínum í orðskrúði samrunaáætl-
unar? Það má hins vegar vel vera
að þessi aðgerð SPRON og KB
standist sem samruni í samræmi
við hlutafélagalögin.
En hvað er þetta þá sem stjórn
SPRON er að gera?
Skipti á eignum og
vörum er sala. Það er
einmitt það sem þessi
svokallaði samruni er.
Þetta er sala skv.
tekjuskattslögunum.
Stjórn SPRON ætlar
að kalla saman hlut-
hafafund hinn 6.
ágúst nk. til að láta
hluthafana samþykkja
að selja hlutabréfin
sín í SPRON og fá
sem greiðslu hluta-
bréf í KB og Exista.
Einföld aðgerð í ör-
væntingu hlutabréfa-
hrunsins en furðuleg
afglöp að láta sér
detta í hug að fara
þannig að því. Kalla
það samruna sem er
ekkert annað en sala
samkvæmt tekju-
skattslögunum. Svona
gera menn ekki – aldrei. Viðlíka
afglöp kalla á frávísun í öllum
íþróttagreinum.
Það geta orðið margvíslegar af-
leiðingar af sölu hlutabréfa í stað
samruna og er ekki möguleiki að
tíunda slíkt hér í grein. Það skipt-
ir líka máli í þessu sambandi hvort
hluthafi í SPRON er einstaklingur
eða hlutafélag. En ætlaði stjórn
SPRON ekki að gæta hagsmuna
allra í málinu?
Ég hefi ekki lagaþekkingu til að
segja til um hvort fundarboð, sem
boðar samruna, er fullnægjandi
þegar ekki er minnst á í fund-
arboðinu að afgreiðsla á fund-
arefninu standist ekki sem sam-
runi samkvæmt
tekjuskattslögunum. Ég veit ekki
einu sinni hvort lögfræðingar yrðu
sammála um hvernig ætti að túlka
þetta því það eru alltaf a.m.k.
tvær hliðar á öllum málum þar
sem þeir koma nærri. En án efa
munu einhverjir vilja kanna hvort
rétt sé að málum staðið.
Niðurstaða mín er að ekki er
um að ræða samruna KB og
SPRON skv. tekjuskattslögunum .
Verði fundurinn haldinn miðviku-
daginn 6. ágúst ætti hins vegar
fundarstjóri að taka mál nr. 1 um
samrunann af dagskrá þar sem
dagskrárliðurinn er ranglega
kynntur í fundarboði. Þetta er
ekki fullkominn samruni heldur
sala. Ég held það yrði SPRON og
hluthöfunum beinlínis hættulegt
að halda þennan fund ef afleiðing-
arnar gætu orðið málarekstur út
af lögmæti hans.
SPRON – um und-
arleg vinnubrögð
Sigurður Tómasson
skrifar um sam-
runaáætlun KB
og SPRON
»Niðurstaða
mín er að
ekki er um að
ræða samruna
KB og SPRON
skv. tekju-
skattslögunum.
Sigurður Tómasson
Höfundur er endurskoðandi og
hluhafi í SPRON.
VIÐRÆÐUSLIT
WTO eru mörgum
hugleikin. Flestir sem
tjá sig telja neyt-
endur hafi orðið af
vænum ávinningi. En
er svo? Frá því að
viðræðulotan, sem
kennd er við Doha
hófst 2001, hafa orðið
grundvallarbreyt-
ingar á matvælaframboði í heim-
inum. Oftar er nú rætt um mat-
vælaöryggi, hvort þjóðir eigi eða
hafi aðgang að mat. Ótrúlegt á 21.
öldinni. Þá er flestum kunnugt um
að matarverð fer hækkandi í flest-
um löndum. Hækkun eldsneytis og
matvæla kyndir undir verðbólgu,
ekki bara á Íslandi. Ein af afleið-
ingum samkomulags sem fyrir lá í
Genf er sú að mat-
arverð í heiminum
hækkar, en hérlendis
er jafnan talað eins og
það hefði bara orðið
til að lækka verð.
Samdráttur í fram-
lögum til landbúnaðar
getur hins vegar ekki
haft aðrar afleiðingar
en að matarverð
hækki, í viðbót við
hækkanir sem nú þeg-
ar eru framkomnar.
Afleiðingar lækkunar
tolla á heimsviðskiptin eru smá-
vægileg. Heimsmarkaður með
landbúnaðarvörur er afar lítill.
Þannig eru Nýsjálendingar með
um þriðjung af öllum heims-
viðskiptum með landbúnaðarvörur,
þ.e. kjöt og mjólk. Forstjóri WTO
mat umfang tollalækkana á land-
búnaðarvörum skv. fyrirliggjandi
samkomulagsdrögum sem 35 millj-
arða dollara á heimsvísu. Það eru
rúm 7% af áætluðum fjárlagahalla
Bandaríkjanna – bara á þessu ári.
Niðurfelling útflutningsbóta, sem
Ísland aflagði um 1990, mun einn-
ig valda miklum hækkunum.
Er þá ekkert að óttast?
Í framhaldi af viðræðislitum hef-
ur verið spurt: breytist þá ekkert
hér á landi? Bændasamtökin hafa
lýst sig tilbúna til viðræðna um
breytingar sem falla að þeim hug-
myndum sem lágu á borði samn-
ingamanna í Genf. Það höfum við
reyndar þegar gert í samningum
okkar, mjólkursamningi frá 2004
og samningi um starfsskilyrði
sauðfjárræktar frá 2007. Þar er
leitast við að aðlaga okkar um-
hverfi að reglum WTO. Þá hafa
stjórnvöld einhliða þegar lækkað
tolla um tugir prósenta og samið
um frekari innflutning á búvöru.
Aðgerð sem bændur finna veru-
lega fyrir nú þegar. En neytendur
kannski síður. Það er sérstakt um-
ræðuefni. Þá er í meðförum Al-
þingis frumvarp um innleiðingu á
matvælalöggjöf ESB sem breytir
samkeppnisaðstöðu okkar veru-
lega. Mörgum þætti þegar nóg að
gert í að herða að kjörum einnar
stéttar. Sem líkingu mætti skýra
þetta sem svo að launþegi hefði
þegar afsalað sér hluta vinnutím-
ans til annarra og að auki gefið
verulega eftir af kjörum sínum og
réttindum, án þess að fá nokkuð á
móti.
Íslensk landbúnaðarvara er
tæplega helmingur af matvælainn-
kaupum okkar. Ísland býr við
frjálslyndi í viðhorfum til heims-
viðskipta með búvöru. Hingað er
flutt án verulegra eða nokkurra
tolla búvara annarra ríkja. Hvort
sem þau tilheyra þriðja heimunum
eða ekki. Hvers vegna fást þær
vörur ekki á heimsmarkaðsverði
hér? Lækkuð framlög til landbún-
aðar á heimsvísu munu hækka
matarreikning íslenskra heimila.
Enda er staðreyndin nú að hækk-
að matarverð í heiminum, ásamt
gengislækkun, hefur birst okkur í
20-25% hækkun á innfluttri mat-
vöru, undanfarna mánuði. Langt
umfram hækkun innlendrar bú-
vöru. Við þökkum fyrir það nú að
búa að íslenskum landbúnaði og
innlendri framleiðslu. Án hans
hefðum við mun hærri matarreikn-
ing og tilsvarandi verðbólgu. Að
ógleymdum áhrifum á lánin okkar.
Við verðum að sjá heildarmynd-
ina, en ekki svarthvítu stillimynd-
ina um íslenskan landbúnað sem
ætíð er reynt að sýna. Að íslenskir
bændur og landbúnaður standi í
vegi fyrir bættum hag neytenda.
Svo er alls ekki.
Bændur gegn neytendum?
Haraldur Bene-
diktsson skrifar um
landbúnaðarmál
» Við verðum að sjá
heildarmyndina,
en ekki svarthvítu stilli-
myndina um íslenskan
landbúnað sem ætíð
er reynt að sýna.
Haraldur Benediktsson
Höfundur er formaður
Bændasamtaka Íslands.
Bréf til blaðsins
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
Í MÖRG ár stjórnaði ég fyrirtæki
sem var með rekstur og húseign á
horni Skúlagötu og Höfðatúns, þar
sem nú er kallað Höfðatorg. Ég
kynnti mér vel þennan reit og sá
að mjög margar byggingar á hon-
um voru lélegar og úr sér gengnar
og augljóst að þær yrðu flestar
rifnar innan nokkurra ára. Jafn-
framt lá fyrir að staðsetningin var
einstök, alveg í útjaðri miðborg-
arinnar.
Á þessum tíma var mikil um-
ræða um framtíðarstaðsetningu
listaháskólans og áhugi fyrir því
þá – eins og nú – að tengja hann
miðbænum.
Ég skrifaði því Hjálmari H.
Ragnarssyni bréf (sennilega 10 ár
síðan) og vakti athygli hans á
þessum reit. Ég sagðist ekki sjá
betur en að staðsetningin væri frá-
bær fyrir listaháskólann og nægi-
legt væri rýmið, þegar búið væri
að rífa alla húskofana á svæðinu.
Hjálmar má eiga það að hann
svaraði mér fljótt og vel og sagðist
myndu koma bréfinu á framfæri
við byggingarnefnd eða stjórn
skólans. Aldrei heyrði ég meira
um þessa hugmynd mína.
Nú 10 árum er staðan þessi:
Snjallir verktakar hafa keypt upp
öll húsin á þessum Höfðatúnsreit
og eru byrjaðir að byggja þar
miklar byggingar fyrir skrifstofur
á þessum besta stað í bænum.
Listaháskólinn er hins vegar bú-
inn að missa af tækifærinu og ver-
ið er að reyna að troða honum við
Laugaveginn með því að fjarlægja
átta hús sem verða fyrir.
Ég er ekki frá því að yfirvöld
skólans hefðu átt að gefa hug-
mynd minni meiri gaum á sínum
tíma!
EINAR ÖRN THORLACIUS,
Svarfhóli, Hvalfjarðarsveit.
Listaháskólinn – gömul hugmynd
Frá Einari Erni Thorlacius
NJARÐVÍKURKIRKJA er fallegt
og vandað hús. Þar hafa staðið
margar kirkjur allt frá 1109 að því
best er vitað. Timburkirkja stóð
þar á undan þessari og sagnir eru
um að þegar hún átti að end-
urbyggjast greindi menn á um
efnisval. Margir í söfnuðinum
töldu að hún ætti að byggjast aft-
ur úr tré en Ásbjörn Ólafsson og
Ingveldur Jafetsdóttir kona hans
voru þeirrar skoðunar að guðshús
bæri að byggja á bjargi úr höggnu
grjóti en það þótti of kostn-
aðarsamt. Ásbjörn og Ingveldur
voru efnað athafnafólk og buðust
til til að fjármagna kirkjubygg-
inguna ef þeirra óskaleið yrði far-
in. Á það var fallist. Veturinn 1884
var farið að draga að grjót á sleð-
um og Magnús Magnússon stein-
smiður frá Miðhúsum í Garði var
ráðinn til að högga til grjótið og
hlaða síðan kirkjuveggi. Hann
hafði lokið námi í þeirri list við
byggingu Alþingishússins. Kirkjan
var síðan fullbyggð og vígð 18. júlí
1886. Kirkjan er alíslensk smíð en
heiðurinn af því á Magnús Magn-
ússon frá Miðhúsum sem bæði
teiknaði þetta fallega guðshús, hjó
til steininn og stjórnaði verkinu.
Þess má geta Hörður Ágústsson
listmálari telur að Magnús hafi
einnig séð um tréverk innanhúss.
Þess má geta hér að nýlokið er
lögn á hitaveitu í kirkjuna með
látlausum ofnum, einnig heitu og
köldu vatni, svo og handlaug. Var
það gert í samráði og góðu sam-
starfi við Friðunarnefnd kirkna.
Gamli Njarðvíkurbærinn, sem var
ættaróðal Ásbjarnar en er nú
safnhús og stendur alveg í ná-
munda við kirkjuna, hefur nú
fengið myndarlega viðgerð og
endurnýjun innanhúss að til-
stuðlan bæjarstjórans í Reykja-
nesbæ, Árna Sigfússonar, sem
tekið hefur þessu öllu á mjög já-
kvæðan hátt. Eftir að fram-
kvæmdum lauk hafa kirkjan og
safnhúsið verið opin öllum til sýn-
is frá 13-17 alla daga og verður
svo í sumar.
EINAR G. ÓLAFSSON
heildsali í Njarðvík.
125 ár frá ákvörðun um byggingu
Njarðvíkurkirkju úr steini
Frá Einari G. Ólafssyni
Óðalið Njarðvík, var reist 1906 er nú safnhús, og Njarðvíkurkirkja.