Morgunblaðið - 15.11.2008, Blaðsíða 10
10 Fréttir
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2008
Þeir kallast nú á á síðum Morgun-blaðsins fyrrum samstarfsmenn
í fjölmiðlafyrirtækjum Baugs: Gunn-
ar Smári Egilsson og Jón Ásgeir Jó-
hannesson.
Fyrst lýsti Gunnar Smári því yfirað heildarskuldir félaga undir
stjórn Jóns Ásgeirs væru yfir þús-
und milljarðar íslenskra króna.
Jón Ásgeir segir íMorgunblaðinu
í gær að Gunnar
Smári gleymi að
nefna að á móti
skuldum félaganna
þriggja sem hann
nefnir séu eignir.
Og skuldirnar séu 900 milljarðarkróna.
Mér þykir því rétt að upplýsaGunnar Smára og aðra áhuga-
menn um stöðu umræddra fyr-
irtækja um að samanlagðar eignir
Baugs, Stoða og Landic Property
um mitt þetta ár námu tæplega
1.200 milljörðum króna,“ segir Jón
Ásgeir.
Baugur er í rekstrarerfiðleikum.Stoðir eru í greiðslustöðvun.
Eignir Landic Property hafa hrap-að við fall fasteignamarkaðarins
á Norðurlöndum.
Í raun skipta eignirnar engu máli íbólu,“ skrifar Gunnar Smári í gær.
Nú er bólan sprungin. Og eign-irnar hafa hrapað í verði. Mörg
fyrirtæki reyna hvað þau geta að
bjarga þeim verðmætum sem eftir
eru.
Er í ljósi þessa raunhæft að stjórn-
arformaður Baugs í Bretlandi miði
við eignastöðuna eins og hún var um
mitt þetta ár?
Jón Ásgeir
Jóhannesson
Óraunhæf eignastaða
!
"
#$
%&'
(
)
*(!
+ ,-
.
&
/
0
+
-
!
" #
!
12
1
3
42-2
*
-
5
1
%
6!(78
9 4
$
(
" #
$!
" %%
&% &
$!
:
3'45 ;4
;*<5= >?
*@./?<5= >?
,5A0@ ).?
& &
&
& &
& & &
*$BC
"
#
$
%
!
*!
$$B *!
'(
)
%
%(
%
! *
<2
<! <2
<! <2
'! ) $+ %, $#-%. +$/
D! -
62
&
#
'%(
!
&
)
*
B
+
$
(
!
&
,
*
%( *
-
. ( '
!
&
,
01++ %%22 $+ % %3
%, $#
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://morgunbladid.blog.is/
HALLDÓR STAKSTEINAR
VEÐUR
Eftir Ágúst Inga Jónsson
aij@mbl.is
NÝTT svæði hefur verið skipulagt
á vegum Hestamannafélagsins
Fáks í Víðidal. Þar er ráðgert að
rísi ellefu byggingar fyrir hesthús
og atvinnustarfsemi af ýmsum toga
sem tengist hestamennsku. Um er
að ræða breytingu á deiliskipulagi
og hefur breytingin verið auglýst af
hálfu borgarinnar.
Skipulagið felur í sér þyrpingu
níu stakra bygginga á einni hæð
með risi og einnig tvær stærri
byggingareiningar, að hluta á
tveimur hæðum, sem áætlað er að
geti sinnt umfangsmeiri þjónustu
fyrir allt Fákssvæðið og alla hesta-
menn.
Eyrnamerkt hestamennsku
„Með þessari breytingu verður
allt svæðið eyrnamerkt hesta-
mennsku,“ segir Bjarni Finnsson,
formaður Fáks. „Svæðið hefur ver-
ið á hendi borgarinnar þar til nú,
en í sumar var gerð þverpólitísk
samþykkt í borgarráði um að Fák-
ur fengi þetta svæði og myndi síð-
an endurúthluta. Svæðið er hugsað
til framtíðar og þótt nokkrir hafi
sýnt uppbyggingu áhuga á ég síður
von á að ráðist verði í fram-
kvæmdir á næstu mánuðum miðað
við hvernig ástandið er í þjóðfélag-
inu.
Þarna er hugmyndin að koma
fyrir starfsemi af ýmsum toga. Ég
get nefnt verslanir, hestahótel,
söðlasmiði, járningamenn, tamn-
ingamenn, reiðskóla og þjónustu
við fatlaða. Þarna á að vera marg-
breytileg þjónusta á einum stað
frekar en að hún sé innan um og
saman við þennan venjulega hest-
húsarekstur,“ segir Bjarni.
!
"
70
Fákur stækkar við
sig í Víðidalnum
Hestatengd starfsemi og þjónusta
Tæpast byrjað að byggja í vetur
Í HNOTSKURN
»Breytingin nær til suðvest-urhluta hestaíþrótta-
svæðis Fáks sem á núverandi
skipulagi er skilgreint sem
uppgrætt bílastæði.
» Innan svæðisins er lögðáhersla á góðar reiðleiðir
og aðskilnað bílaumferðar og
reiðstíga.
»Flóðvarnargarðar innansvæðisins hafa verið fluttir
til að skapa rými fyrir skipu-
lagssvæðið.
GUNNAR I. Birgisson, bæjarstjóri í
Kópavogi, segir skil SMI á þremur
lóðum á Glaðheimasvæðinu ekki
vera mikinn fjárhagslegan skell fyrir
bæinn. „Þetta eru tafir fyrir Kópa-
vogsbæ um eitt til tvö ár. En fram-
kvæmdirnar hefðu ekki tafist svona
ef við hefðum ekki átt í deilum við
Garðabæ,“ segir Gunnar. Samkomu-
lag hefur náðst um svæðið.
Á lóðunum átti að byggja versl-
unarhúsnæði. „Við erum þarna með
verðmætasta byggingarlandið undir
viðskipti og verslun við mestu um-
ferðaræð á landinu.“ Bærinn þurfi
því ekki að kvíða framhaldinu.
„Núna þarf að samþykkja aðal-
skipulag á Glaðheimasvæðinu; við
erum ekki komin lengra. Síðan þarf
að samþykkja deiliskipulag. Tillögur
liggja fyrir að deiliskipulagi frá
Kaupangi, sem fékk úthlutað um 60
prósentum af þessu svæði, og síðan
þurfum við að leggja fram deiliskipu-
lag fyrir hin fjörutíu prósentin af
svæðinu,“ segir Gunnar. Kaupangur
ætli að standa við sínar áætlanir.
gag@mbl.is
Ekki mikill fjárhagslegur
skellur fyrir Kópavogsbæ