Morgunblaðið - 15.11.2008, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 15.11.2008, Blaðsíða 12
12 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2008 NICOTINELL Fæst nú hjá okkur! ®Nicotinell er samstarfsaðili Krabbameinsfélagsins Fæst á sölustöðum Skeljungs á höfuðborgarsvæðinu Aðólf Asael Bói Eiðar Eikar Júní Míó Robert Rúbar Skær Snæbjartur Sporði Styrr Thór Tonni Uxi Vincent Vinjar Þjóðann Þróttur Öxar Asírí Bassí Bláey Daðína Eldlilja Elsí Grein Idda Jósefín Katrína Karlinna Lokbrá Lúna Maríkó Mýr Pía Skugga Sofie Sónata Vetrarrós Samþykkt á árinu Carlos Deimian Deimien Elio Fabio Ismael Johnny Lano Maggnús Marius Regin Ronald Theo Theó Alessandra Annalinda Diana Dórathea Franzisca Íslandssól Kona Josefine Veronica Zíta Hafnað á árinu FRÉTTASKÝRING Eftir Silju Björk Huldudóttur silja@mbl.is MANNANAFNANEFND hefur það sem af er ári kveðið upp 68 úr- skurði. Alls hafa borist fjórar um- sóknir um millinafn og voru þær allar samþykktar. Um var að ræða nöfnin Vatnsfjörð, Vattar, Brekkmann og Þor. Kynjaskipting umsókna vegna eiginnafna er nokkuð jöfn það sem af er ári. Þannig bárust 35 umsóknir um karlmannsnafn og var af þeim 21 nafn samþykkt en 14 hafnað. Alls bárust 30 umsóknir um kvenmannsnafn og voru 20 nöfn samþykkt en 10 hafnað. Á árunum 2004 til 2006 bárust mannanafnanefnd samtals 258 um- sóknir um eiginnafn, 120 um karl- mannsnafn og 138 um kvenmanns- nafn. Á umræddu þriggja ára tímabili samþykkti nefndin um 60% umsókna. Var um þriðjungur umsókna um ís- lenskt nafn en tveir þriðju umsókna um erlent nafn eða erlendan rithátt. Þetta kemur fram í grein Baldurs Sigurðssonar sem nú bíður birtingar í Hrafnaþingi 5, ársriti íslenskukenn- ara á menntasviði Háskóla Íslands. Baldur er dósent við HÍ og einn þriggja nefndarmanna í mannanafna- nefnd. Í grein sinni bendir Baldur á að þegar nöfn eru samþykkt séu tveir möguleikar. Annars vegar að nafnið sé að gerð og rithætti samkvæmt ís- lenskri málhefð og því samþykkt án athugasemda. Hins vegar að nafnið uppfylli ekki ákvæði laganna um ís- lenskan búning en sé samþykkt vegna hefðar. Nefnir hann sem dæmi um hvoru tveggja nöfnin: Geiri, Stína, Kaktus, Ljósálfur, Náttmörður, Nóv- ember, Súla, Julian og Nicole. Þeim nöfnum sem hafnað er má skipta í tvo hópa. Annars vegar er um að ræða erlend nöfn með erlendri stafsetningu eða erlend að gerð, en slíkt nöfn eru um það bil 60% þeirra nafna sem hafnað hefur verið. Nefnir hann sem dæmi: Anastasia, Diana, Christofer, Kim, Magnus og Sven. Hins vegar er að að ræða íslensk nöfn sem bera í sér eitthvert frávik í staf- setningu, endingu, kyni eða samsetn- ingu sem geri það að verkum að það beygist ekki eðlilega í íslensku. Nefn- ir hann sem dæmi: Mizt, Ástmary, Hnikarr og Jóvin. Aðólf, Júní, Maríkó og Skugga samþykkt Alessandra, Fabio, Maggnús, Regin og Ronald var hafnað Morgunblaðið/Jim Smart Hvað á barnið að heita? Þetta er sennilega ein mikilvægasta spurningin sem allir foreldrar standa frammi fyrir enda ljóst að margt felst í nafninu. Eftir Ylfu Kristínu K. Árnadóttur ylfa@mbl.is „ÞAÐ er mjög mikil stemning í hópnum og í samfélaginu öllu,“ segir Eiríkur Hansson, kennari við Grunnskóla Hornafjarðar, en Klak- arnir, lið skipað nemendum í 7. bekk skólans, unnu fyrir skömmu Íslandskeppnina í Legó- hönnunarkeppninni (e. First Lego League). Í maí nk. halda Klakarnir til Danmerkur til að taka þátt í Evrópukeppninni. Er þetta annað árið í röð sem lið frá skólanum ber sigur úr býtum í keppninni en í fyrra voru það Ísjak- arnir sem hrepptu titilinn. Tölvustýrt Legó-vélmenni Þetta er í fjórða skiptið sem keppnin er hald- in hér á landi en sú hefð hefur skapast í Grunnskóla Hornafjarðar að þátttakendurnir komi úr 7. bekk. Eiríkur neitar því ekki að nú sé komin dálítil pressa á nemendurna í 6. bekk sem taka þátt í keppninni að ári liðnu. Þeir geta þó ekki byrjað að æfa sig þar sem fyr- irkomulag keppninnar er þannig að 10. sept- ember er þraut gefin út og hafa þátttakendur þá tvo mánuði til að undirbúa sig fyrir keppn- ina. Keppnin er fjórþætt. Smíða þarf vélmenni úr tölvustýrðu Legó og forrita það til að leysa ákveðnar þrautir. Þá þarf að leysa rannsókn- arverkefni, skila dagbók um það og loks flytja skemmtiatriði. Þema rannsóknarverkefnisins í ár var loftslagsbreytingar og gróðurhúsaáhrif. Klakarnir rannsökuðu hvernig þessir þættir hefðu áhrif á Jökulsárlónið og Vatnajökul og fengu upplýsingar hjá jarðeðlisfræðingi, rekstr- araðilum Jökulsárlónsins, veðurfræðingum og Jöklasafninu á Höfn. Hvað skemmtiatriðið varðar eru Klakarnir allir í tónlistarnámi og spiluðu þeir lagið Ríðum sem fjandinn með Helga Björnssyni. Eiríkur segir íbúa Hornafjarðar afar ánægða með sig- urinn. „Við reynum að njóta þess að fá svona góðar fréttir og veltum okkur aðeins upp úr því,“ segir hann og bætir við að í tilefni þessa góða árangurs hafi bæjarstjórnin boðið þátt- takendunum og liðsstjórunum til kvöldverðar. Sigursælir Klakar að austan Ljósmynd/Björn Gísli Arnarson Meistarar Hornfirðingarnir snjöllu, ásamt kennurunum, sælir og glaðir með verðlaunapeningana. Krakkar frá Höfn í Hornafirði Legómeist- arar annað árið í röð HÁTEIGSSKÓLI heldur upp á 40 ára afmæli sitt í dag, laugardag, þegar opið hús verður á milli kl. 12 og 15. Skólinn fagnar því um leið að 100 ár eru frá því að forverinn, Æf- ingadeild Kennaraskólans, hóf starfsemi með því að bjóða fyrst upp á kennaramenntun árið 1908. Sýningar hafa verið settar upp um allt hús og unnu kennarar, nem- endur og starfsmenn að því hörðum höndum í gær að undirbúa daginn. Var hefðbundnu skólastarfi þá vik- ið til hliðar. Á vef skólans kemur fram að sýn- ingarnar verði bæði sögulegs eðlis og af starfinu í dag, í máli og mynd- um. Nokkur kaffihús verða starf- rækt á staðnum. Veitingar verða ókeypis og í gamaldags íslenskum stíl. Núverandi og fyrrverandi starfsmenn, nemendur og aðrir vel- unnarar skólans eru velkomnir. Háteigsskóli fagnar 40 ára afmæli sínu Fertugur Mikið verður um dýrðir í Háteigsskóla í dag með opnu húsi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.