Morgunblaðið - 15.11.2008, Page 22

Morgunblaðið - 15.11.2008, Page 22
22 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2008 BREYTINGAR sem gerðar hafa verið á lögum um atvinnuleys- isbætur, um rétt starfsfólks til hlutabóta ef starfshlutfall þeirra er skert, hafa að markmiði að sem flestir geti verið virkir þátttak- endur á vinnumarkaði. ASÍ bendir á í útskýringum á nýju reglunum að vilji fyrirtæki bjóða starfsmönnum tímabundið, skert starfshlutfall, t.d. úr 100% í 80%, gilda almennar reglur kjara- samninga og laga. Það þýði að starfsmenn eigi rétt á að starfs- kjörum þeirra sé sagt upp með þeim uppsagnarfresti sem hver og einn á. Það er síðan val hvers og eins hvort hann tekur slíku boði eða ekki. Leiti fyrirtæki til starfsmanna sinna um að skerðingu á starfshlut- falli með tilheyrandi lækkun launa komi til framkvæmda án uppsagn- arfrests getur hver og einn hafnað slíku og gert kröfu um að uppsagn- arfresturinn sé virtur. Ef starfsmenn fallast ekki á að skerða starfshlutfall sitt án und- angengins uppsagnarfrests eiga þeir eftir sem áður rétt til hlutabóta úr Atvinnuleysistryggingasjóði. Réttur til greiðslu hlutabóta kemur til ef skerðingin er að frum- kvæði atvinnurekenda vegna sam- dráttar í starfseminni. Sama gildir ef starfsmaður hefur misst starf sitt að öllu leyti og ræður sig í minna starfshlutfall en hann var áður í hjá nýjum atvinnurekanda enda eigi hann ekki kost á öðru. omfr@mbl.is Eiga rétt á uppsagnarfresti Hlutabætur hvetja fyrirtæki til að halda fólki í vinnu í rekstrarerfiðleikum DÆMI um áhrif lagabreytinganna um hlutabætur skv. útreikningum ASÍ:  Launamaður var í 100% starfi. Starfshlutfall hans er minnkað í 75% og hann sækir um 25% atvinnuleysisbætur á móti. Hann getur þá verið samtals á 25% tekjutengdum atvinnuleysisbótum í tólf mánuði samhliða 75% starfi í stað þriggja mánaða áður. Eftir þann tíma getur hann átt rétt á hlutfalls- legum grunnatvinnuleysisbótum þar til hann hefur verið samtals þrjú ár á at- vinnuleysisbótum.  Launamaður hefur 400.000 kr. í mánaðarlaun fyrir fullt starf en þarf að minnka við sig starfshlutfall um 50% vegna samdráttar. Hann sækir um 50% atvinnuleysisbætur en hefði talist að fullu tryggður samkvæmt lögunum hefði hann misst starf sitt að öllu leyti. Ef hann hefði misst starf sitt að öllu leyti hefði hann átt rétt á hámarki tekjutengdra atvinnuleysisbóta eða 220.729 kr. á mánuði. Þar sem hann sækir um 50% bætur á hann rétt á 110.365 kr. á mánuði. Tekjur hans fyrir 50% starfshlutfallið sem hann gegnir áfram verða þá 200.000 kr. og hafa ekki áhrif á fjárhæð tekjutengdra atvinnuleysisbóta. Munu tekjur mannsins og atvinnuleysisbætur því nema 310.365 kr. (200.000 + 110.365) á mánuði í allt að sex mánuði.  Auk þessara upphæða greiðast 5.439 kr. á mánuði með hverju barni undir 18 ára aldri. Tekjutengdar bætur SELIRNIR eru nú helsta aðdráttarafl Húsdýra- og fjöl- skyldugarðsins eftir að nautið góðlega, Guttormur, hvarf af sjónarsviðinu. Skólahópar jafnt sem fjölskyldur fylgjast með því daglega þegar selunum er gefið kl. 11 og 16 dag hvern. Selirnir leika þá við hvern sinn fingur og njóta athyglinnar í botn. Um helgar eru það svo hestar og hringekja sem draga flesta í garðinn. Þá gengur lestin vinsæla einnig hringinn og börnin geta fengið far. Nú eru dýrin í Húsdýragarðinum í vetrarhárum og hestarnir t.d. kafloðnir. Það er því mjúkt að setjast á bak en teymt er undir börnum í garðinum um helgar. sunna@mbl.is Líf og fjör alla daga vikunnar í Húsdýragarðinum Morgunblaðið/Golli Sjúklega sætir og sívinsælir selir „ÞETTA er alveg gríðarlegt áfall fyrir okkur. En við erum búin að óttast það núna síðustu tvær til þrjár vik- ur að svona kynni að fara,“ segir Elliði Vignisson, bæj- arstjóri í Vestmannaeyjum, um ákvörðun ríkisstjórn- arinnar í gær að fresta smíði nýs Herjólfs. Viðræður við þýska skipasmíðastöð höfðu leitt til niðurstöðu um verð og afhendingartíma ferjunnar en stöðinni hefur nú verið tilkynnt að ekkert verði úr samningum vegna aðstæðna í efnahagslífinu og smíði nýrrar ferju verði boðin út á ný þegar betur árar. „Það er búið að búið að tvífresta því að svara tilboð- inu. Þannig að við óttuðumst þessa stöðu,“ segir Elliði í samtali við mbl.is í gær. Hann segir smíði nýrrar ferju vera langstærsta hagsmunamál samfélagsins í Vest- mannaeyjum. Eyjamenn búi við mjög erfiða stöðu þar sem flug á Bakkaflugvelli hafi verið lagt niður yfir vetrartímann. „Það voru 30.000 farþegar sem ferð- uðust í gegnum Bakkaflugvöll á seinasta ári. Herjólfur er orðinn 16 ára gamall. Hann er bilaður í dag, sem þýðir það að hann þarf að fara í slipp,“ segir Elliði. Bæjarstjórinn segir mörg sveitarfélög munu endur- skoða forsendur áætlana í mars og ríkið muni vænt- anlega endurmeta stöðuna þá. „Ég vona að menn sjái það að við getum ekki frestað þessu í langan tíma þótt við höfum skilning á erfiðri stöðu. Þá hlýtur ríkið að halda úti grunnþjónustu eins og samgöngum.“ Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Notaður áfram Herjólfur í viðgerð í Slippnum á Akureyri á dögunum. Hann siglir áfram á milli lands og Eyja. „Þetta er gríðarlegt áfall“ Ríkisstjórnin ákveður að fresta smíði Vestmannaeyjaferju „VIÐ getum stað- ið við allar skuld- bindingar sem við höfum gert gagn- vart öðrum þjóð- um en getum ekki farið út í ný verk- efni á árinu 2009,“ segir Sighvatur Björgvinsson, framkvæmda- stjóri Þróunar- samvinnustofnunar Íslands, um áhrif þess að framlög til þróunarsamvinnu verða skorin niður á næsta ári. Á þessu ári fékk Þróunarsam- vinnustofnun 1.550 milljónir á fjárlög- um en fær 1.300 milljónir á næsta ári, skv. tillögum utanríkisráðuneytisins. Þá verður hætt við að auka framlögin um 510 milljónir króna eins og gert hafði verið ráð fyrir í fyrri tillögu til fjárlaga 2009. „En íslenska krónan segir þér svo litla sögu vegna þess að allir okkar samningar í útlöndum eru gerðir í bandarískum dollurum. Og ef þú horfir bara á það, þá höfum við verið að ráðstafa á þessu ári, árið 2008, um 24 milljónum dollurum en verðum á næsta ári að ráðstafa um 13 milljón- um dollara,“ segir Sighvatur. Verkefni Þróunarsamvinnustofn- unar eru öll tímabundin, sum eru til eins árs og renna út á næsta ári, önn- ur eru til lengri tíma og allt upp í tíu ár, að sögn Sighvats. Ekki verði hætt við verkefni sem renna út á næsta ári og hefðu að öllu óbreyttu haldið áfram, ef ekki hefði komið til niður- skurðarins. Hætta við hafnargerð Sighvatur segir að mikil áhersla sé lögð á að standa við öll loforð, hann sé enda nægur álitshnekkirinn sem Ís- land hafi orðið fyrir þótt landið hlaupi ekki frá loforðum sínum. Þau verkefni sem hætt verður við eru m.a. hafnargerð í Sri Lanka, byggðaþróun í Níkaragva, félagsleg verkefni í Mósambík o.fl. Starfsmenn Þróunarsamvinnu- stofnunar á Íslandi eru 10-11. Um 30 Íslendingar starfa fyrir stofnunina erlendis og nokkru fleiri heimamenn eru í vinnu fyrir hana. Um 30-40 eru ráðnir til tímabundinna verkefna. runarp@mbl.is Getur staðið við skuldbindingar Framlög fara úr 1.550 milljónum í 1.300 Í HNOTSKURN » Á fjárlögum 2008 fékkÞróunarsamvinnustofnun 1.550 milljónir. » Lagt er til að hún fái 1.300milljónir árið 2009. » Hætt verður við ný út-gjöld upp á 510 milljónir.Sighvatur Björgvinsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.