Morgunblaðið - 15.11.2008, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 15.11.2008, Blaðsíða 30
30 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2008 Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is UPPHÆÐIN er stjarnfræðileg. Á hverjum degi flytja Bandaríkin inn olíu frá Mið- Austurlöndum fyrir sem svarar hundrað millj- arða króna, miðað við núverandi gengi. Og ef fram heldur sem horfir mun þessi upphæð aðeins hækka með auknum innflutn- ingi og hærra olíuverði þegar líða tekur á öldina. Slík eignatilfærsla vegur þungt í bandarísku efnahagslífi og það er því ekki eingöngu af umhverfisástæðum sem Barack Obama, nýkjörinn for- seti Bandaríkjanna, hyggst beita sér fyrir því að innan tíu ára verði dregið úr olíunotkuninni heimafyrir sem nemur flæði olíunnar frá Mið-Aust- urlöndum og Venesúela, markmið sem í ljósi sögunnar telst róttækt. Á sama tíma eru Kínverjar og Ind- verjar, um 40 prósent jarðarbúa, að byggja upp stóra og orkufreka sam- gönguflota, þróun sem er einkar at- hyglisverð í ljósi þeirra ummæla Fathi Birol, eins höfundar árlegar orkuspár Alþjóðaorkustofnunarinn- ar (IEA) í ár, að til að koma í veg fyr- ir alvarlega framboðskreppu þurfi að auka olíuframboðið um sem nem- ur fjórfaldri olíuvinnslu Sádi-Arabíu. Sagði Birol að þrátt fyrir að enginn vöxtur yrði í heimseftirspurninni á næstu 22 árum þyrfti umrædd vinnsluaukning að koma til svo vegið yrði upp á móti minnkandi vinnslu í þeim lindum sem þegar væri dælt úr. Eitt brýnasta úrlausnarefnið Vart þarf að taka fram að miðað við neyslumynstur undanfarinna ára er afar erfitt að sjá fyrir sér að heimsvinnslan staðni fram að 2030. Eiginlega er óhætt að fullyrða að slík stöðnun sé óhugsandi með hliðsjón af fyrirhugaðri aukningu í skipa- og flugumferð, einkum í Asíu. Því sýnist eðlilegt að stuðla að aukinni sparnýtni samgöngutækj- anna og má í því samhengi rifja upp það loforð Obama að ef hann yrði forseti myndi hann beita sér fyrir því að árið 2015 verði ein milljón tengil- tvinnbíla á götunum vestanhafs, sem eyði aðeins 1,6 lítrum af eldsneyti á hundraðið. En þar ræðir um bíla, á borð við Volt, tengiltvinnbíl General Motors, sem ganga fyrst á rafhleðslu en skipta svo yfir á eldsneyti. Á Volt- inn að koma á markað árið 2010. Hyggst Obama beita sér fyrir skattaívilnunum til að greiða götu slíkrar bílaframleiðslu, sem og fram- leiðslu endurnýjanlegrar orku, eink- um vind- og sólarorku, ásamt því sem haldið verði áfram á braut etanólframleiðslu. Hefur forsetinn verðandi sett markið á að árið 2012 komi 10 prósent frumorkunnar úr endurnýjanlegum orkuuppsprett- um, hlutfall sem hækki í 25% árið 2025. Með því að fjárfesta 15 millj- arða dala á ári í áratug verði stuðlað að sköpun fimm milljóna starfa í iðn- aði í kringum hreina orkuvinnslu. Má þar nefna smíði vind- og sólar- orkuvera og þróun og smíði bygg- inga sem draga stórlega úr orkuþörf. Öllum árum verði róið að sjálfstæði í orkumálum  Obama boðar breytta orkustefnu  Milljón tengiltvinnbíla verði í umferð 2015 Ný öld Obama hyggst stuðla að uppbyggingu vind- og sólarorkuvera og nýrrar kynslóðar hreinni kolaorkuvera. Barack Obama Brot úr bílasögu 1908 Algengt er að miða upp- haf bílaaldar í Bandaríkjunum við þau tímamót þegar Ford Model T rann af færibandinu í fyrsta sinn í verksmiðju Ford Motor Company í bílaborginni Detroit í Michiganríki. 1973 Fyrri olíukreppan, á ár- unum 1973-74, hafði varanleg áhrif á bandarískan bílamarkað með því að stuðla að mikilli söluaukningu í sparneytnum bifreiðum frá Evrópu og Japan, á borð við þessa Toyotu Co- rollu. Í hönd fór niðurlægingar- skeið í bílaborginni Detroit. 2003 Spencer Abraham, þá- verandi orkumálaráðherra Bandaríkjanna, beitir sér fyrir lögum sem kveða á um skatta- afslátt sem samsvari kaup- verði bifreiða sem vega 2,7 tonn eða meira. Lögin, sem Bush forseti samþykkti 2003, ýttu undir útbreiðslu stórra, eyðslufrekra bifreiða. Banda- ríkjaþing samþykkti hert lög um eldsneytisnýtni 2007. STJÖRNUFRÆÐINGUM á Havaí hefur tekist að ná fyrstu myndunum af reikistjörnum utan sólkerfis okkar, þar með talið infrarauðum myndum og ljósmyndum af sólkerfinu sem um ræðir. Reikistjörnurnar snúast um sól- stjörnuna HR 8799, sem er um 1,5 sinnum massameiri en sólin okkar. Myndirnar marka tímamót sökum þess að hingað til hafa stjörnufræð- ingar beitt tveimur óbeinum aðferðum við stjörnuleit; útreikningum á þyngdaráhrifum reikistjarna á sólstjörnur og svo leit að þeim skugga sem reikistjarna varpar á geislun sólstjörnu þegar hún snýr í átt að áhorfanda. Um 300 reikistjörnur hafa fundist með þessum aðferðum, en að sögn Bruce Macintosh, stjarneðlisfræðings við Lawrence Livermore-rannsóknarstof- una, er þetta í fyrsta sinn sem myndir nást af heilu sólkerfi. baldura@mbl.is                                        ! "  # $ "  % & % ' # $ "  ( $ )* #  +* , * # #-./0&'./+#+..+         !            6)) 7$ " #  $  % " #  $  & !"# 89, : '() * + , - $.  # $(   . %    / $(   0/ $  1"   *   $/.  $ )  . $(  1 . $. .     . 2   $   # ( + * / % .  1"  3 +  )  %   )  . $(  %$( # ( +    )   )  #*# $  * $/)   . %2 ) $/  Líf eins og á jörðinni? Eftir Baldur Arnarson baldura@mbl.is NEÐRI deild rússneska þingsins studdi í gær með yfirburðum tillögu þess efnis að stjórnarskránni verði breytt svo að embættistíð forsetans lengist úr fjórum árum í sex. Um fyrstu umferð var að ræða og verð- ur frumvarpið að fara í gegnum aðra og þriðju umferð eftir helgi til að hljóta endanlegt samþykki, áður en það verður svo tekið fyrir í efri deildinni og í þingum héraðanna. Með hliðsjón af atkvæðagreiðsl- unni á þinginu, þar sem 388 þing- menn neðri deildarinnar studdu til- löguna en 58 voru henni mótfallnir, ætti leiðin að vera greið og frum- varpið að hljóta endanlega máls- meðferð í næsta mánuði, áður en það verður loks að lögum. Fastlega hefur verið reiknað með því að Vladímír Pútín forsætisráð- herra myndi sækjast eftir forseta- embættinu á ný, eftir að síðara kjörtímabili hans lauk í fyrra. En samkvæmt stjórnarskránni varð hann þá að sitja hjá að minnsta kosti eitt kjörtímabil, áður en hann byði sig fram að nýju. Endurkomunni hraðað? Stjórnmálaskýrendur telja þann hraða sem viðhafður er við meðferð breytingartillögunnar vísbendingu um að Pútín hyggist sækjast eftir forsetaembættinu fyrr en áður var talið, jafnvel nokkru fyrir kosning- arnar 2012, þegar kjörtímabili Dí- mítrís Medvedev forseta lýkur. Er þar meðal annars horft til þess að Pútín vilji beita kröftum sínum í þágu endurreisnar hagkerf- isins, sem farið hefur illa út úr bankahruninu og mikilli lækkun ol- íuverðs. Skýrt var frá breytingartillög- unni í fyrstu stefnuræðu Medvedevs í síðustu viku, á sama tíma og öll at- hygli heimsbyggðarinnar var á for- setakosningunum í Bandaríkjunum. Ef marka má könnun Levada Centers er staða tvímenninganna, Medvedevs og Pútíns, í rússneskum stjórnmálum sterk, þrátt fyrir ágjöfina í efnahagsmálum. Sam- kvæmt henni hefur stuðningur við Pútín lækkað um 5 prósent, niður í 83 prósent. Medvedev kemur þar skammt á eftir, nú segjast 7 pró- sent færri styðja hann, alls 76 pró- sent. Embættistíðin lengd  Stjórnarskrárbreytingu hraðað í gegnum rússneska þingið  Fer úr fjórum árum í sex  Greiðir fyrir endurkomu Pútíns Reuters Biðleikur? Pútín flytur erindi á þingi um efnahagssamvinnu Rússlands og Kína í Moskvu fyrir skömmu. Hann er sagður vilja takast á við kreppuna. Í HNOTSKURN »Kommúnistar reyndu að fáþví framgengt að tillögunni yrði vísað frá en höfðu ekki er- indi sem erfiði. »Pútín nýtur alþýðuhylli íRússlandi og er það meðal annars rakið til þess að fjöl- miðlar fjalla á næsta ógagnrýn- inn hátt um ríkisstjórn hans. »Sameinað Rússland, flokkurPútíns, fer með tögl og hagldir í báðum deildum rúss- neska þingsins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.