Morgunblaðið - 15.11.2008, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 15.11.2008, Blaðsíða 62
62 MenningFRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2008 Eftir Ingveldi Geirsdóttur ingveldur@mbl.is MÁLRÆKTARÞING Íslenskrar málnefndar og Mjólkursamsölunnar fer fram í hátíðarsal Háskóla Ís- lands á morgun. Á þinginu verða kynntar tillögur að íslenskri mál- stefnu sem Íslensk málnefnd hefur unnið að síðastliðin tvö ár. Vinnu við málstefnuna er nú lokið og er hún komin í hendur menntamálaráð- herra sem stefnir á að fá hana sam- þykkta á Alþingi. Guðrún Kvaran, formaður Ís- lenskrar málnefndar, segir mál- stefnuna taka saman stöðu íslensk- unnar á ellefu sviðum sem eru mjög mikilvæg í þjóðlífinu. „Meginatriðið í málstefnunni er að það er afar mikilvægt að hægt sé að nota ís- lensku á öllum sviðum þjóðlífsins,“ segir hún. Sviðin ellefu sem stefnan nær yfir eru: Íslenska í lögum, íslenska í leik- skóla, grunnskóla og framhalds- skóla, íslenska í vísindum og fræð- um, íslenska í fjölmiðlum, í listum, í tölvugeiranum, íslenska sem annað mál, íslenskukennsla erlendis, ís- lenska í viðskiptum og íslenska í há- skólum sem Guðrún telur mjög mik- ilvægt svið. „Við teljum háskólann gríðarlega mikilvægan kafla því þaðan kemur fólkið sem fer að vinna á hinum fjölbreyttu sviðum þjóðlífs- ins og ef það getur ekki tjáð sig al- mennilega á íslensku missum við kannski einhver svið.“ Viðskipti og háskólar í hættu Guðrún segist hafa meiri áhyggj- ur af íslenskunni í viðskiptum og í háskólum en á öðrum sviðum. „Margt bendir til þess að menn vilji fara meira yfir á ensku á þess- um tveimur sviðum en kannski æskilegt er, á kostnað móðurmáls- ins. Það þarf líka að gæta að ís- lensku í fjölmiðlum,“ segir Guðrún en bætir við að íslenskan standi samt almennt sterkt. „En það þarf að vera á verði og hafa möguleika á að grípa inn í, ekki með valdboði, heldur meira til að breyta afstöðu og hugarfari á sumum sviðum og fylgjast með. Til þess er málstefnan mjög gagnleg, hægt er að fylgjast með því á hverju sviði fyrir sig hvort þarna sé eitthvað til að hafa áhyggj- ur af sem í hugsunarleysi getur haft alvarleg áhrif,“ segir Guðrún sem mun flytja erindið Tilurð íslenskrar málstefnu og vinna við hana á morg- un. Hátíðardagskráin hefst í hátíð- arsal Háskólans kl. 14 og stendur til 15.30. Þar flytur menntamálaráð- herra ávarp og veitir verðlaun Jón- asar Hallgrímssonar. Auk Guðrúnar flytur Haraldur Bernharðsson úr Íslenskri málnefnd erindið Meg- indrættir íslenskrar málstefnu. Halldór Jörgensson, fram- kvæmdastjóri Microsoft Íslandi, ræðir um íslensku í tölvugeiranum. Skólakór Kársness syngur og tveir grunnskólanemar eru með upp- lestur. Myndin af Jónasi Jónasarfyrirlestur Menningar- félagsins Hrauns í Öxnadal verður fluttur í Þjóðmenningarhúsinu kl. 14 á morgun, sunnudag. Í þetta skiptið er það Tryggvi Gíslason, magister og formaður Menningarfélagsins, sem flytur fyrirlesturinn „Myndin af Jónasi Hallgrímssyni“. „Þetta er tvíþættur fyrirlestur hjá mér, annars vegar fjalla ég um þá mynd sem Íslendingar hafa í huga sér af Jónasi. Upphaflega var hann listaskáldið góða en síðan verður hann í huga margra drykkfelldur ut- angarðsmaður í lýsingu Halldórs Laxness. Það er því mikil breyting að vera listaskáldið góða árið 1845 og svo útigangsmaður 1929. En síð- an hefur myndin að vísu breyst í huga fólks, meðal annars vegna ævi- sögu Jónasar eftir Pál Valsson sem kom út 1999,“ segir Tryggvi. „En meginuppistaða fyrirlestrarins er í rauninni ljósmyndin, sem ég kalla svo, af Jónasi. Í Listasafni Íslands hefur varðveist teikning eftir séra Helga Sigurðsson af Jónasi og færi ég rök fyrir því að hún sé eins konar ljósmynd gerð með teiknivél sem hét Camera Lucida. Svoleiðis að rúsínan í þessum fyrirlestri er kenn- ing mín um það að varðveitt sé, sem ég leyfi mér að kalla, ljósmynd af Jónasi Hallgrímssyni.“ Einnig mun Tryggvi fjalla um teikningar, mál- verk og ýmis önnur myndverk sem hafa verið gerð af Jónasi. Íslenskan stendur almennt sterkt Morgunblaðið/Kristinn Ljóðskáldið Stytta af Jónasi Hallgrímssyni stendur í Hljómskálagarðinum. Dagur íslenskrar tungu er haldinn hátíðlegur á afmælisdegi hans.  Dagur íslenskrar tungu haldinn hátíðlegur á morgun  Tillögur að íslenskri málstefnu kynntar í Háskólanum  Rætt um myndina af Jónasi Hallgrímssyni í Þjóðmenningarhúsinu Guðrún Kvaran Tryggvi Gíslason LEIKHÓPURINN Draumasmiðjan DÖFF- RÆTUR frumsýnir Hvar er (K)Lárus? í dag í Kópavogs- leikhúsinu. Þetta er kolsvört kómedía og fjallar um leit að manninum Lárusi sem virð- ist hafa gufað upp. Verkið er eftir Má Ólafsson og leik- stjóri er Jan Fiurasek. DÖFF-RÆTUR er áhuga- mannaleikhópur skipaður heyrnarlausum einstaklingum. Verkið er raddað af Margréti Pétursdóttur leikara fyrir þá sem ekki skilja táknmál. Næstu sýningar eru 21. og 22. nóvember. Hægt er að nálgast miða á www. draumasmidjan.is. Leiklist Draumasmiðjan leitar að Lárusi Úr verkinu Hvar er (K)Lárus?. KARLAKÓR Reykjavíkur, í samvinnu við Reykjavíkurborg, býður gestum og gangandi til tón- leika í Tjarnarsal Ráðhúss Reykja- víkur í dag kl. 15. Yfirskrift tónleikanna er Áfram veginn og á dagskránni eru hefðbundin karlakóralög, sem hafa orðið á vegi kórsins á 82 ára ferli hans. Með þessum tónleikum leitast Karlakórinn við að létta fólki lífið og stappa í það stálinu í árferðinu sem nú ríkir. Jafnframt vill kórinn þakka landsmönnum fyrir dyggan stuðning og samfylgd í áranna rás. Aðgangur er ókeypis. Tónlist Stappar stálinu í fólk með tónleikum Karlakór Reykjavíkur æfir. BJARNI Björgvinsson opnar sýningu á mál- verkum í Grafíksafni Ís- lands, sal Íslenskrar graf- íkur á morgun, sunnudag. Bjarni lauk BA-námi frá Listaháskóla Íslands árið 2000, áður hafði hann m.a. stundað nám við Mynd- lista- og handíðaskóla Ís- lands. Hann situr í stjórn Íslenskrar grafíkur. Sýningin verður opnuð á morgun kl. 16 og er Grafíksafnið opið fimmtudag til sunnudags kl. 14.00-18.00. Aðgangur er ókeypis. Grafíksafnið er í miðbæ Reykjavíkur, við Tryggvagötu 17, hafnarmegin. Myndlist Bjarni sýnir í Grafíksafni Íslands Bjarni Björgvinsson DAGUR íslenskrar tungu hefur verið haldinn hátíðlegur á fæð- ingardegi Jónasar Hallgríms- sonar, hinn 16. nóvember, síðan árið 1996. Í ár er liðið 201 ár frá fæðingu Jónasar. Á þessum degi veitir menntamálaráðherra Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar og tvær viðurkenningar. Verðlaun- in eru veitt einstaklingum sem hafa með sérstökum hætti unn- ið íslenskri tungu gagn í ræðu og riti, með skáldskap, fræði- störfum eða kennslu og stuðl- að að eflingu hennar, fram- gangi eða miðlun nýrrar kynslóðar. Auk þess er heimilt að veita stofnunum og fyr- irtækjum sérstaka viðurkenn- ingu fyrir stuðning við íslenska tungu. Meðal verðlaunahafa eru: Vil- borg Dagbjartsdóttir, Þórarinn Eldjárn, Matthías Johannessen, Megas, Guðrún Helgadóttir og Sigurbjörn Einarsson. Efling tungunnar  Í Ráðhúsinu verða tónleikar í boði Reykjavíkurborgar kl. 13. Þar mun Fífilbrekkuhópurinn ásamt Gradualekór Langholtskirkju flytja vinsæl lög Atla Heimis Sveinssonar.  Í Þjóðmenningarhúsinu kl. 16 verður Lárusar Pálssonar, leikara og leikstjóra, minnst í tilefni af út- komu ævisögu hans eftir Þorvald Kristinsson. Sigurður Skúlason leikari les úr bókinni, Viðar Egg- ertsson fjallar um störf Lárusar í útvarpi og Gunnar Eyjólfsson leik- ari minnist hans.  Dagur Orðsins verður haldinn í þriðja sinn í Grafarvogskirkju. Sr. Friðriks Friðrikssonar verður minnst í tilefni af því að 140 ár eru liðin frá fæðingu hans. Minning- arstund verður í Hólavallagarði kl. 9. Þrjú erindi um Friðrik verða flutt í Grafarvogskirkju kl. 10- 10.40. Messa hefst kl. 11 þar sem þrír kórar syngja sálma sr. Frið- riks, m.a. Karlakórinn Fóstbræður.  Hljómsveitin Spilmenn Ríkínís flytur forna íslenska tónlist og leik- ur á gömul hljóðfæri á tónleikum í Tónskóla Sigursveins D. Krist- inssonar, Engjateigi 1 kl. 15.  Í Listasafni Árnesinga í Hvera- gerði verður málþing til heiðurs Sigurjóni Ólafssyni myndhöggvara í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá fæðingu hans. Aðalsteinn Ingólfs- son og Æsa Sigurjónsdóttir list- fræðingar ræða um list Sigurjóns í opinberu rými og alþjóðlegu sam- hengi. Málþingið hefst kl. 14.  Minningardagur verður haldinn á Hólum í Hjaltadal um séra Bolla Þóri Gústavsson víslubiskup, áður prest í Laufási. Guðsþjónusta hefst í Hóladómkirkju kl. 14. Að loknu kirkjukaffi hefst dagskrá í kirkj- unni, þar sem Hjörtur Pálsson flyt- ur erindi um sr. Bolla og Gerður Bolladóttir flytur nýtt tónverk eftir Önnu S. Þorvaldsdóttur við ljóða- flokkinn Almanaksljóð eftir föður sinn. Einnig verður frumflutt ný út- setning við ljóð Jónasar Hallgríms- sonar, „Ég bið að heilsa“. Brot af dagskrá sunnudagsins MYNDLISTARMAÐ- URINN Guðmundur Thor- oddsen opnar sýningu sína, Sullur, í Galleríi Týnda hestsins kl. 18 í dag. Þar má sjá verk sem fjalla að miklu leyti um vellandi nið- urgang samfélagsins. Guðmundur er fæddur 1980. Hann lauk BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2003 og hefur unnið að myndlist síðan. Hann hefur tekið þátt í fjölda samsýninga hérlendis og erlendis og á tvær einkasýningar að baki, Rjómaísland í 101 gallerí og Neðangarðs í Íbíza Bunker. Gallerí Týnda hestsins er að Skólastræti 1. Sullur í Týnda hestinum Myndlist Guðmundur Thoroddsen
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.