Morgunblaðið - 15.11.2008, Síða 64
64 MenningFÓLK
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. NÓVEMBER 2008
Ása Richardsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Íslenska dansflokks-
ins, hefur verið valin varamaður
Ásmundar Stefánssonar, formanns
bankaráðs Nýja Landsbankans. Ása
hefur starfað sem stjórnandi í
menningu og listum í fjölda ára og
mun þetta vera í fyrsta sinn sem
kona úr menningargeiranum er
valin til starfa í bankaráði í landinu.
Ása varamaður í
bankaráði NLB
Fólk
FRÁ og með deginum í dag hafa nýjir tímar tek-
ið við í leiklistarlífi Grindavíkinga. Í fyrra stofn-
uðu tveir grindvískir atvinnuleikarar, þeir Víðir
Guðmundsson og Bergur Þór Ingólfsson, form-
lega félagsskapinn GRAL (Grindvískir atvinnu-
leikarar). Markmið þeirra er að setja upp leik-
sýningar er tengjast grindvískri sögu eða
menningu í Grindavík og standast ýtrustu kröf-
ur er gerðar eru til atvinnuleikhúsa í landinu.
Fyrsta sýningin, 21 manns saknað, verður frum-
sýnd í kvöld. Um er að ræða frumsaminn einleik
um ævi séra Odds V. Gíslasonar er fæddist árið
1836 og er þekktur í sögunni sem mikill brask-
ari. Bergur leikstýrir en Víðir fer með hlutverk
allra þeirra er koma við sögu. „Þetta var nú fyrst
eiginlega bara brandari,“ segir Bergur, heið-
arlega, um félagsskapinn GRAL. „En svo datt
það upp í hendurnar á okkur að fara og gera
leiksýningu þarna. Við gerðum stefnulýsingu og
svo tók bæjarstjórnin vel í þetta. Allt í einu vor-
um við komnir með styrki frá Menningarráði
Suðurnesja. Nú erum við komnir með fjögurra
ára plan. Þetta var bolti sem hlóð utan á sig.“
Sorglegt og kómískt í senn
Séra Oddur er viðfangsefni fyrstu uppsetn-
ingar GRAL. „Við segjum sögu hans frá vöggu
til grafar. Tíðarandinn er mjög sorglegur, enda
er þetta á tíma þegar 20% þjóðarinnar fluttust úr
landi. En margt er mjög kómískt í þessu. Þetta
er skemmtileg saga.“
biggi@mbl.is
Brandari sem varð að fjögurra ára plani
Gral Víðir Guðmundsson fer með öll hlutverk í ein-
leik um Séra Odd en Bergur Þór leikstýrir.
Rúm vika er í tónleika Sigur
Rósar í Laugardalshöll og þótt enn
sé ekki uppselt fer hver að verða
síðastur að tryggja sér miða á þessa
síðustu tónleika Sigur Rósar í dá-
góðan tíma. Sveitin kemur fram á
tónleikum í kvöld í París og sam-
kvæmt venju er löngu uppselt á
tónleikana. Upphitunarsveit Sigur
Rósar á þessum síðasta legg ferð-
arinnar er íslenska sveitin For a Mi-
nor Reflection og sveitin hefur
heldur betur notið þess að teika
sveitina um Evrópu. Á þeim átta
tónleikum sem sveitin hefur nú
þegar komið fram á hefur hún selt
um 800 geisladiska og slatta af bol-
um merktum sveitinni. Svo greið-
lega gekk á geisladiskana fyrstu
dagana að panta þurfti annað upp-
lag frá Íslandi. For a Minor Reflec-
tion hitar upp fyrir Sigur Rós í
Höllinni ásamt Parachutes.
Gengur hratt á
geisladiska FAMR
Aðdáun
búlgarskra
fjölmiðla á Ás-
dísi Rán virð-
ist takmarka-
laus. Ekki
hefur hún að-
eins prýtt for-
síðu eins
helsta karla-
tímarits Búlg-
aríu og verið gestastjórnandi hjá
Jay Leno þeirra Búlgara, heldur
hefur tímaritið Slava nú kosið hana
fallegustu konu Búlgaríu.
Ásdís Rán fallegust
í Búlgaríu
ÞAÐ er engu líkara en Vilhelm Anton Jóns-
son og hinir liðsmenn 200.000 naglbíta hafi
blásið nýju lífi í Lúðrasveit verkalýðsins er
hefur tvöfaldast að fjölda eftir að rokksveitin
hóf undirbúning með sveitinni fyrir nýja
plötu er kemur út á næstunni. Þetta þýðir
auðvitað að tónleikaferðir út á land eru stór-
framkvæmd eins og Villi hefur fengið að
kynnast síðustu daga, en sveitirnar leika
saman í kvöld í Íþróttahöllinni á Akureyri,
sem er stærsti vettvangur til tónleikahalds í
heimabæ Naglbítanna.
„Liðsmenn Lúðrasveitarinnar eru komnir
upp í 60 manns og svo mæta foreldrar og far-
arstjórar með,“ segir Villi er gaf sér varla
tíma í gær til þess að ræða við blaðamann í
síma. „Stór hluti sveitarinnar er nefnilega
undir 18 ára þannig að þetta eru um 100
manns sem koma hingað norður út af þessu.
Þau koma öll í rútu sem túbuleikari sveit-
arinnar náði að redda og keyrir sjálfur. Svo
erum við að fá inni hér í skólum auk þess
sem Félag íslenskra bókagerðarmanna lánar
okkur húsnæði fyrir gistingu. Allir fá svo að
borða kjötsúpu frá Goða og Friðriki fimmta í
hljóðprufunni.“
Tónleikarnir verða einnig þeir fyrstu er
Naglbítarnir halda í heimabæ sínum í ein
fjögur ár og hefur forsala gengið vel.
biggi@mbl.is
Morgunblaðið/Kristinn
Naglbítarnir Villi segir það stórkostlega tilfinningu að vera með 60 manna hljómsveit á bak við
sig en Lúðrasveitin hefur tvöfaldast frá því að samstarfsverkefnið hófst, fyrr á þessu ári.
Stórframkvæmd
200.000 naglbítar og Lúðrasveit verkalýðsins
spila í Íþróttahöllinni á Akureyri í kvöld
Tónleikarnir hefjast kl. 20. Árstíðir hita upp.
Aðgangseyrir er 2.500 kr.
Eftir Jóhann Bjarna Kolbeinsson
jbk@mbl.is
„ÞEGAR við vorum búnir að gera
þessa plötu vorum við svo ánægðir
með hana að við vildum bara hafa
hana samnefnda sveitinni,“ segir El-
ís Pétursson, Elli, bassaleikari
hljómsveitarinnar Jeff Who?, um
aðra plötu sveitarinnar sem kom út í
gær. Platan er töluvert ólík þeirri
fyrstu, Death Before Disco, sem
kom út árið 2005 - er ekki eins hrá
og frumburðurinn, heldur útpældari
og poppaðri með bæði syntum og
strengjum. „Það er meira lagt í hana
þannig séð. En það má ekki gleyma
því að síðasta plata var fyrsta plata
hljómsveitar þar sem enginn hafði
gert plötu, nema Tobbi [fyrrv.
hljómborðsleikari] að vísu.“
Death Before Disco náði töluverð-
um vinsældum, og þá sérstaklega
lagið „Barfly“ sem óhætt er að segja
að hafi orðið einn mesti slagari síð-
ustu ára á Íslandi. Aðspurður segir
Elli að þeir séu ekki orðnir leiðir á
að vera sífellt tengdir við lagið.
„Nei alls ekki, við erum mjög
stoltir af því. Þegar við erum að
spila reynum við hins vegar að lesa
hvort fólk ætlist til þess að við spil-
um það. Ef fólk vill það er það ekk-
ert mál – þá tökum við það bara.“
Það er hins vegar ljóst að
„Barfly“ er ekkert „one hit wonder“
því fyrsta lagið af nýju plötunni,
„Congratulations“, er strax orðið
mjög vinsælt. „Það er bara í „power-
play“ á öllum stöðvum, fyrir utan
Útvarp Sögu held ég. En ég held að
það sé reyndar eiginlega engin tón-
list þar,“ segir Elli og hlær.
Það er ekki bara vegna góðrar
tónlistar sem Jeff Who? nýtur vin-
sælda því kynþokkinn hreinlega lek-
ur af sveitinni, enda kvenfólk oft í
meirihluta á tónleikum hennar.
„Maður kannast alveg við þessa
umræðu, þótt maður sé ekkert að
pæla í þessu þegar maður er uppi á
sviði. En við fögnum því að geta
höfðað til breiðs hóps – það er ekk-
ert mjög algengt að svona rokkband
nái til hins kynsins,“ segir Elli og
viðurkennir að það sé kannski fyrst
og fremst söngvaranum Bjarna Lár-
usi Hall að þakka hversu margar
stúlkur sækja tónleika sveitarinnar.
„Maður myndi alveg skilja það ef
Einar Bárðarson væri að setja sam-
an hljómsveit og myndi setja Badda
í forgrunn,“ segir Elli og hlær.
„Hann var nú bara feiminn fyrst
þegar við vorum að byrja, en svo tók
hann að sér að syngja, einfaldlega
vegna þess að hann var bestur í
því.“
Morgunblaðið/Kristinn
Ferskir Félagarnir í Jeff Who? ætla að fagna útgáfu nýju plötunnar með tónleikum á Nasa föstudagskvöldið 28. nóvember næstkomandi.
Engin „one hit wonder“ sveit
Jeff Who? sendir frá sér sína aðra plötu Meira popp og pælingar en á fyrstu
Jeff Who? á rætur að rekja til
Menntaskólans í Reykjavík, en
fjórir af fimm meðlimum sveit-
arinnar voru í skólanum og kynnt-
ust þar. „Valdi hljómborðsleikari
var hins vegar í Versló – kemur úr
höfuðvígi Mammons. Þetta er því-
líkt stílbrot,“ segir Elli í léttum
dúr.
Ævintýrið hófst þegar Baddi og
Elli tóku þátt í söngkeppni MR árið
2000 ásamt Bjarka Hvannberg
vini sínum. Þar sungu þeir lagið
„Nookie“ með hljómsveitinni Limp
Bizkit, en tókst þó ekki að sigra. Í
kjölfarið spiluðu þeir saman undir
ýmsum nöfnum, meðal annars
Dagger, Panikk, Panill og Útfari.
Jeff Who? var svo formlega
stofnuð árið 2004.
Dagger, Panikk og Útfari