Skinfaxi - 01.03.1925, Side 1
Til lesendanna.
pó að sú breyting hafi orðið á útgáfu Slcinfaxa, að
liér eftir verði hann gefinn út sem ársfjórðungsrit,
en hefir að undanförnu verið mánaðarrit, verður ldut-
verk hans hið sama og- áður. Hér eflir sem hingað til
á liann að vera andlegur miðill ungmennafélaga um
alt Island og boðberi nýrra lmgsjóna, en með útgáfu-
breytingunni batnar aðstaða hans. Nú gefst honum
kostur á að heimsækja alla sem eru i Sambandi U. M.
F. I., og hann vill heimsækja miklu fleiri, lielsl hvern
þann, sem komið hefir auga á markmið unginennafé-
laga og skilur kjörorð þeirra: „Islandi alt“. Allar góð-
ar leiðbeiningar lil æskulýðsins er honum kært að flytja,
hvort sem þær birtast í bundnu eða óbundnu máli.
Skinfaxa er ljóst, að æskulýð Islands er þörf góðra
ráða, því að innan skamms hefir hann stórt og ábyrgð-
armikið starf með höndum, þegar framtíð landsins
hvílir í skauti lians. ]?að er æskulýðurinn, sem markar
örlagaspor nýfrjálsu Fjallkonunnar. ]?ví er vel að allir
þeir, sem unna íslensku þjóðerni og treysta sönnum
manndóm, láti til sin heyra i málgagni ungmennafé-
laganna; með þvi leggja þeir stein i þjóðfélagsbyggingu
hins unga íslenslca fullveldis. Skinfaxi óskar þess, að
sér auðnist að kveikja leiðarljós, sem lýsi æskulýð lands-
ins svo vel, að hann sjái hvað valdið hefir örlögum
þjóðarinnar á liðnum öldum, skilji, að það var fyrir
manndómsskort valdasjúkra og eigingjarnra manna,
1