Skinfaxi - 01.03.1925, Page 12
12
SKINFAXI
reið upp á hæð eina, er var i nánd við orrustuvöllinn.
Horfði hún þaðan á Ijardagann, og lét síðan kalla jarl
á fund sinn. Lá þá við sjálft, að flótti brysti í lið jarls.
.Tarl kom til fundar við drotningu. Segir drotning
honum, að hann muni aldrei sigur vinna, ef hann leyfi
eigi mönnum sínurn framgöngu, af því að hann vilji
sjálfur standa fremstur í fylkingu. Mun eigi liða á
löngu, ef þessu heldur áfram, að víkingar sigri. Kveð-
ur hún lionum betra að standa aftanvert við fylkingar
og stýra þaðan sókninni.
Jarl fór að ráðum drotningar og vann sigur daginn
eftir. Yíkingar féllu sem liráviði, er hermenn jarls
geystust fram, svo að ekkert stóðst fyrir þeim. Fékk
nú jarl friðað ríki sitt. pótti orrusta þessi allfræg.
Jarlinn heitir Vilji, drotning hans heitir Skynsemi,
hermennirnir heita Hugsanir. Yikingarnir erlendu heita
Erfiðleikar, en hinir, sem innlendir eru heita: Ástriður.
peir, er höfðu mannaforráð mikil í fornöld, þóttu
menn að meiri. pað liöfðu goðar og aðrir höfðingjar.
En mannaforráð eru oft minna virði en mikil hugsana-
forráð. pau í'orráð geta allir öðlast, sem vilja. Eru þau
öllum nauðsynleg, en nauðsynlegust eru þau þeim, er
vinna hugsjónum og vilja hrinda mörgu og heillavæn-
legu í framkvæmd.
pér, ungmennafélagar, hafið komið auga á foringja-
hugsun, — hugsjónina, sem fólgin er í stefnuskrá yðar.
Hún á í höggi við marga erfiðleika, eins og allar hug-
sjónir, sem eilthvað að kveður. En þér hafið öll hugs-
anaforráð, eruð eins konar andlegir goðar, er getið veitt
henni vígsgengi. Erfiðleikajötnar láta oft og tiðum
ófriðlega mjög og skjóta mörgum skelk í bringu. pér
munið því þurfa að ganga fram fylktu liði, raða hugs-
un við hugsun og brynja þær orðum og athöfnum. Og
fari svo, að skipulagið verði gott, munið þér sanna, að
erfiðleikajötnar eru í ætt við Mökkurkálfa. Hann liafði