Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.03.1925, Qupperneq 21

Skinfaxi - 01.03.1925, Qupperneq 21
SKINFAXI 21 in austan Rangárþings í fjarska á bak við. Til suðurs er Flóinn og opin útsýn til hafs. Land U. M. F. í. er alvaxið birki að heita má. En skógurinn er lágur og kræklóttur — óvíða yfir mann- hæð. Vöxtulegastar og fegurstar eru hríslurnar í hrekk- um og hjöllum, þar sem snjór liggur á vetrum og hlíf- ir gróðrinum — fyrir beit, og þó einkum fyrir fi'osti og ísingum. Á hæðum og berangri er kjarrið gisnara, kyrkingslegra og meira um kal. Eins og fyr er drepið á, er prastaskógur að eins lilill hluti úr allstóru skóglendi. En hann er „hjartað úr skákinni“. Kjarrið utan hans er lægra og óræktarlegra en innan. Ber l'leira en eitt til þess. Tangi sá, er skóg- urinn er á, er fjarst bæjum, og liefir af þeirri sök og þvi, að þar liggur meiri snjór en í kring, sloppið að nokkru hjá átroðningi búfjár á liðnum timum. Án efa hefir skógurinn einnig tekið framförum síðan liann kom í eigu U. M. F. og var girtur, þó að sú framför sé miklu minni, en vera ber, eins og síðar mun vikið að. Höfuðprýði skógarins eru reynitré tvö. ]?au standa sitt á hvorum stað og eru gömul orðin og stórvaxin, einkum annað. Hafa þau dregið að sér athygli skógar- gesta, einkum stærra tréð. Ber það minjar þess, að þar hafa ekki allir komið gætnir né góðviljaðir. Ilafa menn skemt sér við það, að rista fangamörk og ártöl i börk trésins, og skorið við það sundur æðar þær, er liggja undir berkinum og flytja greinunum næringu. Eru margar greinar þegar dauðar af þessum sökum, og tréð alt óbragðlegra en ella mundi. — Fyrir tveimur árum var girl fyrir frckari skemdir með öflugum gaddavirsgirðingum umhverfis reynitrén. Skógarbotninn er vafinn gróðri, fjölbreyttum og Prýðilegum. Vcx þar margskonar lyng, víðir og ara- grúi blómjurta. — Fuglalíf er fjörugt á þessum slóð- um. I skóginum sjálfum er mest af þröstum, og ber hann nafn með rentu. Eru þeir söngmildir og gæfir.

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.