Skinfaxi - 01.03.1925, Page 42
42
SKINFAXI
Við skulum ei liarma þótt skilinn við sért
og í skarð þitt ei finnist þinn liki.
pú vormaður dóst og þú vormaður ert
í vormanna framtíðar riki.
Orð þitt var traust, eiris og örugg þin sál
og á þér var stöðugt að byggja.
Efndánna brautin þér aldrei varð hál,
á aðra þú vildir ei skyggja.
Altaf það reyndist þín stefna og slarf
stöðugt þitt umhverfi að bæta,
og búa þeim komandi ágætari arf
'þeim arfi, sem þú varðst að sæta.
Eflaust mun Huld lengi halda þér jól
í hjörtunum meðlima sinna,
og glæða þær kendir, sem andi þinn ól
inst í hug meðbræðra þinna.
Með því að gera það, þakkar hún þér
með því, sem er dýrustu launin.
Harmandi ástvinum huggun það cr
og helst mýkir saknaðar kaunin.
peir, sem þér stöðugast stóðu við hlið,
i starfi er flestum lét blýna,
geta nú einhuga ornað sér við
ástkæra minningu þína.
Lands vors guð, hann mun leiða þig inn
til lifsins á æðsta sviði,
og þaðan mun vinfastur vilji þinn
verða oss hér bræðruin að liði.
■ ■ v ■
Aðalbjörn Pétursson.
I t f t