Skinfaxi - 01.03.1936, Síða 1
Skinfaxl I. 1938.
Nýtt fjör í U. M. F.
Bréf frá sambandsstjóra.
Kæri ungmennafélagi!
Má ég biðja þig að lesa þetta bréf mitt með athygli
og hugleiða það, sem ég liefi að segja i því — ekki
aðeins meðan þú ert að lesa það, heldur og á morg-
un og næstu daga. Má eg biðja þig að svara fyrir þitt
leyti þeim spurningum, sem ég varpa liér fram —
svara þeim fyrst og fremst í orði og verki heima fyr-
ir; síðan einnig bréflega til sambandsstjórnar U.M.F.
í., ef þér sýnist. Og má eg loks biðja þig að ræða
þetta bréf mitt, og hugsanir þinar um það, við félaga
þína, á fundum og utan þeirra. Og ekld aðeins við
félaga þína, lieldur einnig við aðra æskumenn, sem
þú hittir og um almenn mál hugsa.
Það, sem ég vil ræða um við þig og biðja þig að
hugleiða, er þetta: Ungmennafélögunum og lands-
sambandi þeirra hefir stórhrakað síðasta áratuginn.
Félögin eru nú eins og máttlaus svipur eða skuggi
hjá þeirri eldheitu æskulýðshreyfingu, sem reis hér
á landi fyrir 30 árum. Svo mikil er nú orðin deyfð
þeirra, hugsjónafátækt, aðgerðaleysi, snerpuskortur,
að eigi verður við slikt unað. Ungmennafélagsskap-
urinn verður að gera sér þetta ljóst tafarlaust, og ráða
annað hvort við sig að hrökkva eða stökkva; að duga
eða drepast; að safna frjálshuga og dáðríkri æsku
landsins enn á ný til að vinna með skaphita og ósér-