Skinfaxi - 01.03.1936, Page 6
6
SKINFAXI
um samvinnubyggðir. Grein Einars Kristjánssonar i
næstsíðasta hefti er á sömu línu. Og enn fyr hefir
verið stefnt í sömu átt með ritgerðum Aðalsteins Ei-
ríkssonar skólastjóra.
Og nú tel ég vera tíma til kominn, að Ungmenna-
félögin reyni að hefja nýja og öfluga æskulýðshreyf-
ingu, með þeirri stefnu og til þeirra starfa, sem eg
vona, að þér séu ljós af framanrituðu máli. Vilt þú
leggja lið þitt til þess?
Fyrir mér vakir, að starfað verði með liku sniði
og sænska J.U.F. gerir, og lýst er í grein i síðasta hefti.
Barnadeildir með hagrænu ræktunarstarfi heima fyrir,
sjálfstæðum búskap unglinganna. Til þess þurfum vér
að fá æskulýðsráðunauta, eins og Sviar hafa, röska,
áhugasama, fróða, ráðuga, unga menn. Mun eg leita
samvinnu við búnaðarmálastjóra og landbúnaðarráð-
herra um þetta efni, og reyna að fá aðstoð þeirra til
að ná í framlag frá Rockefeller-stofnuninni, eins og
Svíar hafa, til að launa ráðunautana. Barnadeildirnar
eiga að undirbúa æskuna og tengja liana við sveit-
irnar. Og gegn um þær á að ryðja þekkingu og nýj-
ungum i ræktun (kornyrkju t. d.) braut inn á heim-
ilin.
Eldri deildirnar vinna almennara, að skipulagningu
og framkvæmdum. Þær eiga að knýja fram samvinnu-
byggðir, viðunandi menningarumbætur, byggðasöfn o.
s. frv. Rannsaka fyrst, hvað gera þarf; framkvæma
það svo. Hlutverk þeirra á að vera að skapa æsku
sveitanna atvinnuskilyrði,framtíðarverkefni, lifsmögu-
leika heima í sveitunum. — Félög þorpa og kaup-
staða eiga að vera reist á svipðan hátt, aðeins mið-
uð við atvinnuskilyrði þeirra staða. Allt á þetta svo
að geta verið ein samtaka heild í sjálfstæðis- og menn-
ingarmálum og almennum atvinnumálum allrar þjóð-
arinnar.
Þetta framtíðarmál verður aðalverkefni sambands-