Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.03.1936, Side 14

Skinfaxi - 01.03.1936, Side 14
14 SKINFAXI í öðru lagi verður hér aldrei nein heilsteypt upp- bygging eftir byltinguna, jafnvel þótt æ viðþolslaus- ara ástand knýi fram sjálfa valdatökuna, ef hinn markvisa undirbúning mannlegrar orkunýtingar vant- ar, þannig, að það sé aðeins fáum einum ljóst, hvert stefnir, og hvílíkt óhemju átak, hvílíkt óhemju erfiði, þekkingu og úthald þarf til þess að grundvalla virki- legt verklýðsríki, og skapa þvi öryggi og þróunar- möguleika um ófyrirsjáanlega framtið. 1 þriðja lagi getur engin verklýðsbylting né sam- virk uppbygging náð fullkomlega tilgangi sinum, nema því aðeins, að inntak liennar sé sjálf vegsemd mannlegleikans, nema þvi aðeins, að augljóst sé, að það er „hið dýrmætasta og mikilvægasta af allri þeirri stórkostlegu auðlegð, sem til er í heiminum," sem verið er að frelsa: þú og ég, hinn venjulegi al- þýðumaður, með öllum sínum þrotlausu möguleikum. Og til hvers er verið að frelsa hann? Er kannske verið að frelsa hann til þess að hann geti síðan ró- legur lagt hendur í skaut sér, „haft það gott“, eins og það heitir á máli hins metnaðarlausa borgara, nóg að borða, góð húsakynni, tóbak í pípuna, vin í glasið — og allt þetta með sem minnstri áreynslu og fyrirhöfn? Nei og aftur nei. Þeir, sem lialda, að takmark byltingarsinnaðrar baráttu, samvirkrar upp- byggingar, stéttlauss þjóðfélags, sé slæpingsháttur, hóglifi, hvíld i einliverjum heilögum anda litilþægr- ar sjálfsánægju, þeir skilja eklci tilgang sósíalismans, — þeir verða að læra betur lögmál tilverunnar. Takmarkið er einmitt hið gagnstæða, nefnilega það, að breyta hugsjónasnauðu, arðrændu matarstriti ann- ars vegar og vonlausu, siðspillandi atliafnaleysi liins- vegar, í markvíst menningarstarf, óslitna framleiðslu sameiginlegra verðmæta, vitrænt sköpunarverk, sem knýr mannsorkuna til hinna itrustu átaka í þjónustu lífsgildanna, margfalt voldugri og göfugri átaka, en

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.