Skinfaxi - 01.03.1936, Blaðsíða 21
SKINFAXI
21
fram yfir þær dauðu, að þær má styrkja og bæta
fram eftir öllum aldri, og gera þær fljótvirkari og
hentugri til liinna ýmsu starfa.
Ráðið til þess er að læra að þekkja þær, eins og
góður bifreiðarstjóri lærir að þekkja bifreið sína, og
færa sér i nyt þau lögmál, sem líkami vor verður að
hlíta. Þau lögmál eru óbreytanleg. Ef vér brjótum
þau, er oss ætíð hegnt að makleikum. Þar er eng-
um undanbrögðum hægt við að koma. En ef vér fær-
um oss þau i nyt, verðum vér meiri og betri menn.
Öll lækning er fólgin i því einu, að hagnýta lög-
mál náttúrunnar, líkamanum til styrktar. Um krafta-
verk eða yfirnáttúrlega hluti er ekki að ræða. En
margt er enn eftir óþekkt í rilci náttúrunnar, sem
menn þó hafa komizt upp á að hagnýta sér, án þess
að fá skilið það til hlitar.
Uppeldi og hirða líkamans hefir til skamms tíma
verið mjög vanrækt og orðið út undan í nútíma-
menningu vorri. Að vísu er til fjölmenn stétt i landi
voru, læknarnir, sem margir hverjir liafa lagt mik-
ið gott til þessara mála, en hafa þó aðallega skoðað
það sem sitt hlutverk að gera við, ef eitthvað bilar.
Margir ágætir sérfræðingar eru í ýmsum greinum,
en enginn hefir ennþá tekið líkamsuppeldi og upp-
eldisfræði sem sérfræðinám. Er hér þó sýnilega stórt
verkefni framundan, fyrir áhugasama, unga menn,
sem hafa huga á því, að láta gott af sér leiða. —
Menn með slíka þekkingu eru margir til i nágranna-
löndum vorum, og meðal allra menningarþjóða.
Skólaskoðunin, sem nú er löggilt, hefir komið mjög
miklu góðu til leiðar og á eftir að gera það betur.
Kennarar og heimilisfeður fylgjast nú betur með
heilsufari og öllum þroska nemendanna en áður var,
og augu manna eru smátt og smátt að opnast fyrir
því, að hlutverk skólanna er ekki það eitt, að troða
í nemendurna bóklegum fræðum.