Skinfaxi - 01.03.1936, Qupperneq 39
SKINFAXI
39
Hjá þjóðinni ólu einstakir menn á andúð gegn bann-
lögunum og efldu viljann til þess að brjóta þau. Og nú,
þegar bannið er afnumið, er bindindisfélagsskapurinn
ekki að eins lamaður, heldur algerlega máttvana.
Fyrir 30 árum var þörf, nú er nauðsyn, til að efla
hvern þann félagsskap, sem vinnur að bindindismál-
um. Þetta sannar, ekki aðeins hin gífurlega fjárhæð,
sem árlega er varið lil áfengiskaupa, og aldrei meira
en einmitt siðan bannlögin voru afnumin, heldur og
fyrst og fremst liin andlega og likamlega lömun og
rot, sem vínnautninni er samfara, og eykst ár frá ári,
og sem sýnilega er að ná æskunni meira á sitt vald, en
nokkru sinni fyr, og það svo að segja jafnt konum sem
körlum. Nú er það æskunnar að spyrna við fótum og
láta ekki lengur skeika að sköpuðu um þau mál. Hún
á að fylkja sér um þann félagsskap, sem vill, ekki að~
eins vernda hana, heldur og tryggja hana fyrir fram-
tíðina. En það er ekki nóg, að ganga í félagsskapinn
og undirskrifa lög og reglur, heldur þarf hver einstak-
hngur, fyrst og fremst, s j á I f u r að halda trúlega sitt
heit og skyldur við félagsskapinn og gerast virkur þátt-
takandi í starfinu. Hinn mesti ósigur hvers félagsskap-
ar er það, að lians eigin meðlimir vanhelgi eða felli
merkið. ,
Hin íslenzka æska mun, ef hún framfylgir hugsjón-
um ungmennafélaganna, ekki aðeins verða fær um að
taka á sig ábyrgð og framkvæmdir fyrir sitt þjóðfélag,
heldur og fá breytt því almenningsáliti, sem nú ríkir
vor á meðal um eitl og annað, þar á meðal um notkun
áfengis, og sem öllu öðru fremur elur og glæðir vín-
nautnar-ástríður fólks. Þá verður hún líka fær um,
vegna andlegrar, líkamlegrar og fjárhagslegrar að-
stöðu, að bæta úr ýmsum þeim meinum, sem mannleg
skammsýni og þröngsýni, ásamt vits- og fjármuna-
plógnum Bakkusi, liefir valdið. (
1 skauti framtíðar liggja mörg mál óleyst. Þau bíða