Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.03.1936, Page 40

Skinfaxi - 01.03.1936, Page 40
40 SKINFAXI með tækifæri handa hverjum þeim, sem vill reyna krafta sína við lausn þeirra. Vér tókum ræktunarmálin i upphafi á stefnuskrá vora. Þau eru enn í fullu gildi. í þeim er nú breiðara viðhorfa að koma, þar sem nýbýlamálin blasa við. Með stofnun nýbýlahverfa, á þeim landssvæðum, sem vel eru til ræktunar fallin og bezt í sveit komið til sam- gangna, er bæði skapað meira atvinnuöryggi, sem felst í eigin framleiðslu, og trygging fengin sveitunum til handa um að halda æskunni þar, með þvi að skapa henni möguleika til stofnunar sjálfstæðra heimila og at- vinnulífs. Æskumenn! Leggið hér hönd á plóginn og styðjið þá, sem vinna að þessu máli, því að það er fyrst og fremst fyrir ykkur gert. Annað ræktunarmál vil eg benda á, sem eitt liið allra sjálfsagðasta áhugamál allra æskumanna og lcvenna. Það er 1 í k a m s r æ k t i n, íþróttaiðkanirnar. Oss, sem vitum, hversu órjúfanlegt er samband lík- ams- og sálarlífs, verður að skiljast það fyllilega, að jafnframt því, sem vér viljum efla andlega lieilbrigði, þurfum vér og að rækla líkama vorn. Hann getum vér hezl ræktað með skynsamlegum íþróttaiðkunum, ásamt heilbrigðu lífi. En vér eigum ekki að hylla metastefnu þá, sem rikl hefir um of í íþróttamálunum. Iþróttirnar eiga að verða almenningseign. Þá geta þær orðið sá aflgjafi ungum og gömlum, sem þær eiga að vera og þá fyrst ná þær tilgangi sínum. Að lokum skal eg benda á eitt mál, sem sérstaklega virðist bíða uppvaxandi æsku, jafnt hvar sem er á land- inu, það eru slysavarnirnar. I hvert sinn, sem Ægir heimtar sínar stórkostlegu fórnir, verða fleiri eða færri hamingjurof, og vér finn- um til sársauka og meðliðunar með hinum mörgu, sem fyrir því verða. En jafnframt finnum vér varnarleysi vort gagnvart þessum, oft svo trylltu, náttúruöflum. Þá finnum vér til ákafrar löngunar til þess, að reyna að

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.