Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.03.1936, Side 41

Skinfaxi - 01.03.1936, Side 41
SKINFAXl 41 skapa þessum mörgu mönnum, sem í hættunni standa og leggja fram líf sitt í viðureign Ægis, til þess að sækja björg og brauð handa sér og ástvinum sínum og allri þjóðinni, það öryggi, sem frekast er hægt þeim að veita. : Tökum þetta mál til stuðnings og átaka á komandi árum. Það getur hvorttveggja verið, að vér séum með því að vinna fórnarstarf, og líka að vér séum að vinna fyrir oss sjálf, því að enginn veit hvar næst verða skörð- in höggvin. Það hafa jafnan verið örðugleikarnir og erfiðustu viðfangsefnin, sem drýgst liafa orðið til þess að sameina mennina. Þegar þeir standa við hyldjúp óbrúaðra tor- færa, finna þeir fyrst sinn eigin vanmátt. Þá finna þeir, hversu einstaklingsorkan er takmörkuð, og þá fyrst verður þeim ljóst, að það verður aðeins með sam- starfi hægt að lyfta þeim björgum, sem einstaklingur- inn fær ekki bifað. Þetta var stofnöndum ungmenna- félaganna Ijóst, og þetta verður ljósara með ári hverju. Það sanna hin margvíslegu félög, sem stofnuð eru. Með hverju ári rísa upp margskonar stétta- og atvinnufélög, allt upp af þeirri rót sprottið, að með vaxandi menningu þroskast skilningur manna á nytsemi og nauðsyn sam- vinnunnar. t Á æskunni og hinni uppvaxandi kynslóð byggjast vonir vorar um bættan hag lands og þjóðar. Hún hefir h'fið í sér falið og i því er krafturinn fólginn. Islenzkir æskumenn og konur, sýnið í verki aðdáun yðar á hinum fornu afreksmönnum, sem þér löngum dáið og i mörgu að verðleikum, með því að sameina hina dreifðu krafta yðar, og beina þeim til styrktar og stuðnings hverju því máli, sem aukið geti heill og hamingju þjóðar vorrar. Þá fyrst eruð þér trú hugsjónum ungmennafélag- anna. Gerið þær að yðar hugsjónum. ; Minnumst hins liðna í sögu þessa félagsskapar, og

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.