Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.03.1936, Page 62

Skinfaxi - 01.03.1936, Page 62
62 SKINFAXI Vorsól\ Vor fósturjörð þér heilsar hrími þakin, ó! himneskt sólarljós, er yorið boðar! Þú frjóvgar mold, sem faldi vetrarklakinn, þér fagna blómin, nærð og endurvakin. Þú sendir jörð og sævi Ijós, Þú sigrar vetrarríkið kalt. Hvert gullið geislabrot á guðdómsmátt, sem vermir allt. Ó! vorsól fríð, sem vonir allar glæðir! Þú vekur lífsins þrá úr alda hvarfi. Og frá þér stafa um geiminn gullnir þræðir, sem guðlegt tákn um andans „Sigurhæðir“. Þú sigrar efans sálarstríð, Þú sendir veikum hjálparráð. Hvert gullið geislabrot er glampi af drottins ríku náð. Tómas R. Jónsson. Stefán Jónsson: Sjálfstæði og ættjarðarást. (Brot úr erindi, fluttu 1. des. 1935). —--------— í freLsisbaráttunni við Dani, sem venju- lega er nefnd sjálfstæðismálið, var ættjarðarástin sterkur þáttur. En þessi tvö liugtök, sjálfstæði og ætt- jarðarást eða þjóðrækni, hafa nú á seinni árum hér fengið nokkuð nýja merkingu, þannig, að tveir sljórn- málaflokkar í landinu hafa tekið þessi orð upp í heiti sín, og er vandfarnara með orð oghugtök,þegarþauhafa

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.