Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.03.1936, Page 63

Skinfaxi - 01.03.1936, Page 63
SKINFAXl 63 þannig hlotið nýtt gildi og nýja merkingu. Eg ætla þó að fara hér nokkrum orðum um þetta efni. En eg tek það fram, að allt, sem eg segi um sjálfstæði og þjóð- rækni eða ættjarðarást, er miðað við hin gömlu hug- tök, óbundin öllum flokksheitum, á sama hátt og eg tala um framsókn þjóðarinnar án tillits til flokksheita. — En hafa skulum við það í huga, að undir merkjum þessara liugtaka hafa víða um heim verið unnin hin svivirðilegustu verk, og þessum viðkvæmu málum heitt til að æsa þjóð móti þjóð og kynflokk móti kyn- flokki, þótt þau, í innsta eðli sínu séu kyndlar i fram- sóknarbariáttu þjóðanna. — Orð og hugtök hafa þarna verið misnotuð, en þau hafa ekki glatað fegurð sinni, þrátt fyrir það. Mér er í minni kvikmynd, sem eg sá nokkrum árum eftir striðið. — Aðal-söguhetjan var rússneskur aðals- maður landflótta. Hann sást víða i glaumi stór- borganna, og stundum lifði hann í allsnægtum, — en hann var landflótta — og mitt í glaumnum rann skuggi yfir andlitssvip lians — þjáningadrættir fóru um and- litið — hann dró sig út úr glaumnum, tók undan klæð- um sínum lítinn leðurpoka, hellti á borðið lijá sér dökkri mold úr ökrum ættlands síns, og fór höndum um moldina á boröinu, eins og hjartfólgna, lifandi veru. — Andlitið ljómaði af ástúð og niðurbældri þrá. — Þessi sýning er mér allt af síðan ímynd hinnar sönnu ættjarðarástar.------- — Ættjarðarástin er i eðli sinu frumstæð. Hún er jarð- nesk tilbeiðsla. Hún er af sömu rótum runnin og ást barnsins á brjósti móðurinnar, sem liefir alið það og yljað. Ætljarðarástin, — hin sanna hreina ættjarðarást — er inngróin eðli mannsins, og hver sá maður, í hverju landi sem er, sem ekki ann átthögum og föðurlandi, er rótslitinn. Hann á ekkert föðurland lengur, þótt hann sé í sínu fæðingar- og foreldra-landi.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.