Skinfaxi - 01.03.1936, Qupperneq 71
SKINFAXI
71
gera þau fyrst og fremst meö því, að skapa þau verk-
efni og sjónarmið, sem æskan metur meira en áfeng-
ið, og sýna þeim drykkjusjúku nærgætni og vinna þá
frá áfengisástríðunni með alúð og nákvæmum skiln-
ingi. Ofstæki á ekki við, því að það getur beinlínis
orðið hættulegt, enda eru U. M. F. skyld að sýna frjáls-
lyndi sannrar æslcu, sem fyrst og fremst liefir bind-
indi vegna framtíðarinnar, en ekki sem kvittun fyrir
drýgðar gerðir horfinna ára.
Með háum röddum og sterkum rökum er nú mjög
talað um drykkfeldni hins yngra fólks í sambandi
við skemmtanalifið, og jafnframt tekið til þess, ef
haldin er fjölmenn skemmtisamkoma án ölæðis og
skemmdarverka. Það verður því ekki sagt, að útlit-
ið sé glæsilegt, á meðan hægt er að rökstyðja slíka
dóma. Og afleiðingarnar af þessu verða hinar verstu,
því að þær hafa í för með sér vantrú á æskunni og
öllum liennar athöfnum.
U. M. F. verða því að sjá þessa hættu, bæði gagn-
vart sér og sem þjóðfélagsmeinsemd, og gera þar skjót
átök.
Trúlegt þætti mér, að mikið mætti vinna á móti
þessu hættulega ástandi, með því að gera skemmt-
anirnar fjölbreyttari og bornar uppi af vinnu margra
einstaklinga, t. d. með íþróttum, sjónleikum, söng
o. fl. Með þvi væri þjálfað sig í gagnlegum mennt-
um og veitt holl og haldgóð skemmtun, sem marga
fýsir í. Væri þessa alltaf vel gætt, þætti mér ekki ólík-
legt, að samkomur yfirleitt fengju annan svip og
orðróm, en þær eiga nú við að búa. Auk þess er
þetta tilvalin fristundavinna, sem mundi veita mikla
gleði og glæða félagstengslin að miklum mun. Sam-
hliða þessu verða félögin að vera samhuga um það,
að uppræta bruggara og allskonar leynisala. Slíkt
væri hið mesta hreinsunar- og þjóðþrifastarf, sem
U. M. F. gætu beitt sér fyrir.