Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.03.1936, Side 87

Skinfaxi - 01.03.1936, Side 87
SKINFAXI 87 linga í fang sér, áður en þeim er vaxiS sjálfstæði og gagnrýni, og fleytir þeim með sér. Barnið og ungling- urinn er varnarlaust fyrir þeim áhrifum, sem aldar- háttur og bæjarbragur vekja. Barnið teygar það and- rúmsloft, sem því er búið, hvort sem það er illt eða gott. Því er það svo þýðingarmikið fyrir hvern sem er, að al- ast upp við heilbrigðan liugsunarhátt og mótast af holl- um félagsanda og göfugum tiflinningahætti. Sá, sem skilur þetta, veit, að hann er að leggja til efnið í ham- ingju yngra fólks. Framkoma þin er að móta lífskjör og liugsjónir litlu barnanna, sem verða eftirmenn þínir. Þú ert alltaf að greiða atkvæði um það, hver verða skuli hamingja þjóðar þinnar á komandi tímum. Þessi hugsunarháttur, þessi skilningur er stöðugt að móta þjóðlíf okkar meira og meira. Hann kýs feigð á gamlar stefnur og vekur nýjar hreyfingar, því að hann ei lífsskoðun. í skjóli hans hefir bindindishreyfingin vaxið og þroskazt. Ykkur finnst ef til vill, að bindindishreyfingin eigi örðugt uppdráltar þessi árin, og vegur hennar sé lítill. Mér skilst líka, að doktor Gunnlaugi finnist það. Og þetta er vissulega rétt, þegar miðað er við það, hvað ætti að vera og þyrfti að vera. En viðhorfið er nokkuð annað, ef við gætum þess, að fyrir einum hundrað ár- um var enginn bindindisfélagsskapur til hér á landi. Það eru aðeins laus fimmtiu ár síðan skipulögð starfsemi í bindindisátt hófst með þjóð okkar. Fimmtíu ár er lítill timi úr æfi þjóðar. Það er engin von til þess, að göfug hugsjón vinni fullnaðarsigur á þeim tíma. Slikt væri dæmalaust. Menningarlegt eða réttara sagt ómenning- arlegt erfðaböl þjóðarinnar þurrkast eklci út, nema fyrir ósleitilega baráttu beztu manna margra kynslóða. Það sannar öll sögumenntun. Alstaðar, þar sem sótzt er með rökum um áfengis- mál og vitið er tilkvatt, eru vínmenn í varnaraðstöðu. Enginn heldur því fram, að taumlaus drykkjuskapur

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.