Skinfaxi - 01.03.1936, Qupperneq 95
SKINFAXI
95
Það er fallegt af dr. Gunnlaugi, að ráðleggja skóla-
hörnum bindindi fram undir tvítugsaldur. En nú er
það lögmál, að börnin vilja sem fyrst verða menn. Því
vilja þau sem fyrst geta sýnt á sér þroskamerki. Eftir
kenningu herra doktorsins á tóbaksnautnin að vera
eitt þroskamerkið. Það er ráð til þess, að unglingarnir
verði sólgnir í tóbakið. Hitt væri sæmra að sýna það,
að enga hreysti eða manndóm þarf til að neyta tóbaks,
að það getur hver óvalinn glópaldinn, en hitt ætti að
vera keppikefli ungra manna að lifa heilbrigðu lífi við
hollar nautnir, sem auka manngildið.
, Þær staðreyndir, sem eg vil að síðustu rifja upp, eru
þessar: Áfengi og tóbak valda ósegjanlega miklu böli.
Þeirra vegna eyðileggst líf ýmsra manna. Venjur
hinna liófsömu laða til eftirbreytni og verða þúsund-
um til falls. Við förum engis góðs á mis við það, að
vera afsláttarlausir bindindismenn, en með því tökum
við virkan þátt í velferðarbaráttu þjóðarinnar. í þeirri
baráttu getur æskan fundið sér tilgang, sem gerir lífið
þess vert, að lifa því.
Þorláksmessudag 1935.
Bækur.
Jóhannes úr Kötlum: Samt mun eg vaka.
Þetta fjórða Ijóðasafn Jóhannesar úr Kötlum er kærkominn
fengur, engu síður en fyrri bækur hans, enda yrkja nú eigi
önnur ljóðskáld vor betur en hann. Og alltaf vex hann með
hverri bók, að Ijóðrænum yndisleik, myndauðgi og persónu-
legum krafti. Hér er hvert kvæðið öðru snjallara, og „Útlend-
ingur“ þó líklega fremst. Hefir eigi verið öðru sinni betur