Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1944, Side 37

Skinfaxi - 01.04.1944, Side 37
SKINFAXI 37 liðnum öldum, en sú heimild er ónothæf, meðan ekki eru til ýtarlegar örnefnaskrár úr öllum héruðum lands- ins. Margar erlendar þjóðir eru komnar mildu lengra á- leiðis með örnefnaskráningu en við. Á það við um frændþjóðir okkar á Norðurlöndum, sem allra þjóða hezt liafa notað örnefnaauð sinn. Við erum hér eftir- hátar þeirra. Þó er ekki svo að skilja, að ekkert liafi verið aðliafzt. Fornleifafélagið hefur liaft nokkra ör- nefnasöfnun með höndum, en það er fálækt félag og hefur fáum mönnum fyrir sig að bregða. Og þó að þvi hafi orðið dálílið ágengt, eru enn heilar sýslur, sem engu hefur verið safnað í. Nú er svo komið, að þetta mál fer ekki að þola neina hið lengur. Jarðir leggjast í eyði, plógur og lierfi bylla landinu og afmá ýmis sýnileg merki manna verka, fjölskyldur flytja milli hæja og héraða. Allt stuðlar þetta að því, að örnefni gleymist, ruglist og brjálist. Það er mjög sennilegt, að töluverður fjöldi örnefna fari i gröfina með hverjum gömlum manni, sem í valinn hnigur. Það er því bersýnilegt, að hafa verður hraðann á, ef bjarga á örnefnunum frá gleymsku. En liver á að vinna þetta nauðsynjaverk? Eðilegt er, að mönnum verði hugsað til ungmennafélaganna. Eng- inn hefur önnur eins skilyrði til þess. Þar er öflugur lelagskapur, sem telur sig vinna á þjóðlegum grund- velli og á fulltrúa hvarvetna um land allt. Það er lilca all-langt siðan á þelta var bent. Dr. Þorkell Jóhannes- son, landsbókavörður, ritaði grein í Samvinnuna 1930 um rannsóknir í íslenzkri atvinnu- og menningarsögu. Þessi ágæta grein var sérprenluð og send út um land á vegum Sambands ungmennafélaga Islands. Leggur Þorkell til í greininni, að ungmennafélögin beili sér fyrir örnefnaskráningu, hvert í sínu liéraði, enda þarf ekki að orðlengja, hve vel þau slanda að vigi, lil að vinna þella verk, svo augljóst sem það er. Samt hefur

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.