Skinfaxi - 01.04.1944, Síða 59
SKINFAXI
59
því, sem upphaflega var. Nemendur skólans eru nú
orSnir um 700 talsins, þótt námsgreinar séu elcki fleiri
en sjö, og segja má, að árangur af kennslunni hafi orðið
vonum betri, þótt strjálar póstgöngur valdi eðlilega
miklum örðugleikum. Reynsla sú, sem þegar er fengin
af relcstri skólans, bendir ótvírætt til þess, að bréfa-
skólar muni eiga jafn miklum vinsældum að fagna hér
á landi og annars staðar og eins nuðsynlegir. Þess má
vænta að Bréfaskóli S. í. S. verði stórum efldur á næst-
unni og væri þá ekki úr vegi, að hann leilaði samvinnu
við ýmis félagasambönd og veitti þeirn lið til fræðslu-
starfsemi í félögunum. Innan Alþýðusambands Islands
befur þegar verið rætt um stofnun bréfaskóla, og væri
ekki líldegt að Ungmennafélag íslands gæti veitt fé-
lögum sínum í sveitum landsins einhverja aðstoð með
bréfakennslu, ekki sízt ef námsflokkar væru stofnaðir
i félögunum um liverja þá námsgrein, sem mönnum
væri hugleikin? Þar gæti verið um svo margt að ræða
til nvtsemdar og fróðleiks hverjum einstaklingi og efl-
ingar félagslífinu. Er ekki ástæða til að athuga þetta
mál nánar?
Námskeið námsflokkanna.
Ákvcðið cr að halda námskeið i Háskólanum 15. inaí til 1.
júni n. k. fyrir fólk, er síðan lciðbeindi í námsflokkastarf-
scmi. Ilefir Ágúst Sigurðsson cand. mag. undirbúið námskeið-
ið í samráði við fræðslumálaskrifstofuna og verður liann
stjórnandi þess. Ágúst Sig. hefur unnið mjög að námsflokka-
starfsemi síðustu árin með góðum árangri. Á þessu nám-
skeiði verða stundaðar margar eftirsóknarverðar námsgrein-
ar og verða viðurkenndir kunnáttumenn leiðbeinendur í
hverri grein. Umsóknir eiga að sendast forstöðumanninum
sem fyrst. Væri vel, ef Umf. gætu sent sem flesta menn á
þetta námskeið, sem svo tækju að sé.r forustu þessara mála
i byggðarlögum sínum.