Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1944, Page 54

Skinfaxi - 01.04.1944, Page 54
54 SKINFAXI iöum fræðigreinum án nokkurrar leiðbeiningar eða livatningar. Það er langt siðan menningarfrömuðir í ýmsum lönd- um gerðu sér ljóst, live aðstaða allrar alþýðu manna var örðug í þessum málum. Reyndar var aðgangur að menntastofnunum um langt slceið talinn sérréttindi æðri stéttanna, en sú skoðun breyttist með frjálsara stjórnarfyrirkomulagi og auknu lýðræði i ýmsum lönd- um Evrópu. Alþýðufræðslan var stórum aukin og bætt, en þrátt fyrir fjölgun skólanna og greiðari aðgang að ])eim, var þó enn sem fyrr fjarri því, að allir gætu sótt þá. Til þess að bæta úr þessu varð að reyna nýjar að- ferðir. (Úr því að fólkið gat ekki sótt skólana, urðu skól- arnir að koma til fólksins. En þetta gat ekki orðið fyrr en samgöngur voru orðnar sæmilega góðar og góð skipun komin á um póstmál. Þetta varð i flestum lönd- um Evrópu og i Norður-Ameríku á 19. öldinni, og þá voru fyrstu bréfaskólarnir stofnaðir. Þegar póstgöng- ur voru komnar í viðundandi horf, var hægt að ná til allra þeirra, sem sjálfsnám vildu stunda, hversu langt sem þeir voru frá menningarmiðstöðvum landanna. Rréfaskólar voru stofnaðir nálega samtímis í ýmsum löndum, og vafi er á, hvert fyrst hefur orðið lil þess, þótt Bandarikin eigni sér heiðurinn af því. Bréfaskólar starfa með þeim hætti, að þeir taka að sér að veita hverjum, sem þess óskar, bréflega fræðslu um eitt eða fleiri tiltekin efni, gegn ákveðnu ^jaldi. Skólinn sendir nemandanum bréf með fræðslu um þetta efni og vísar honum á bækur, sem nauðsynlegt er að lesa. Þegar nemandinn hefur lesið bréfið og kynnt sér efni þess rækilega gengur hann frá úrlausnum sín- um á þeim viðfangsefnum, sem honum eru sett í bréf- inu, og sendir þær bréfaskólanum, ásamt fyrirspurn um það, sem honum kann að hafa veilzt örðugt að skilja eða Iiann æskir frekari upplýsinga um. Bréfa- skólinn fær bréfið þeim kennara sínum, er þessa náms-

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.