Skinfaxi - 01.04.1945, Page 3
SKINFAXJ
3
milli félaganna og lieiinsækja þau að minnsta kosti
tvisvar á ári. Segja þeim fréttir af því markverð-
asta, sem gerist þeirra á meðal og ræða hin fjöl-
þættu málefni, sem æskuna varðar. Hann væntir,
að félögin verði óspör á að segja sér fréttir af fram-
kvæmdum sínum og áformum, svo hann hafi sem
mest til að miðla öðrum.
í þessu liefti er einkum rætt um leikslarfsemi,
skólamál sveitanna, hókasöfn, örnefnaskráninguna,
auk hins venjulega kennsluþáttar í íþróttum. Allt
eru þetta starfsmál ungmennafélaganna i fremstu
röð. I næsta hefti mun meðal annars birtast grein
um samkomu- og íþróttahúshyggingar, en mörg Umf.
eru nú að vinna að þeim málum, um raforkumál-
ið, bókmenntaþáttur og margt annað, sem félögin
varða.
Nú e'r það ungmennafélaganna að vinna enn betur
að úthreiðslu Skinfaxa og lceppa að því marki, að
hann verði útbreiddasta og eilt hið álirifamesta tima-
rit landsins. Skinfaxi á að vinna trúlega að því að
vekja þjóðina og fá hana til að luigsa hátt, og þann
veg stuðla að því, að óskastundin, er lýðveldið var
stofnað, 17. júni 1944, verði íslendingum til ævar-
andi blessunar.
íslandi ailt!
Umf. Da.gsbrún í A.-Landeyjum 35 ára.
í tilefni af þessu afmæli hélt félagið veglegt samsæti fyrsta
vetrardag. Var þar fjölmenni saman komið af eldri og yngri
félögum Dagsbrúnar. Margar ræður voru fluttar, sungið og lesið
upp úr blaði félagsins, Glað. Guðjón Jónsson, hreppsstjóri
í Hallgeirsey, var kjörinn heiðursfélagi, en hann var lengi
einn af aðal forvígismönnum fél. og hefur alltaf verið traust-
ur stuðningsmaður þess. Umf. Dagsbrún hefur oft verið mjög
starfsamt félag og haft mikilvæg uppeldisáhrif á félagssvæði
sinu, þvi þar hafa margir mætir ungmennafélagar vaxið upp.
1*