Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1945, Page 26

Skinfaxi - 01.04.1945, Page 26
26 SICINFAXI Lögmenn, settir til þess að tryggja rétt og frið, taka mútum við. Mikils er nú aflað, en meira í súginn fer, minnkar sikill lxver. Illa stjórnað er. Ægilega hrörnun hið innra í sjálfri sér Samaría ber. Fólk, sem eltir glysið, en gleymir lífsins rót, glötun sinni mót dregur feigan fót. Fagrar eru göturnar, en gangan sjálf er Ijói. Gerið yfirbót. Elski ei fólkið land sitt og ekki guð síns lands, er ]>að dæmt til banns fjarlægt friði lians. Villist það og reikar í veröld syndarans veg liins dæmda manns. Frá U.M.F. Færeyja. Ungmennafélag Færeyja hélt nýlega ungmennaráðstefnu og hinn árlega aðalfund sinn í Þó.rshöfn við góða aðsókn. Þar héldu þeir ræður Sverrir Dahl. H. A. Djurhuus og Páll Pat- ursson. Sambandið telur nú 20 ungmennafélög, þar á meðal elzta ungmennafélagið í eyjunum, Ungmennafélag Velbastaðar og Kirkjubæjar, en ]>að félag ber hið undur fagra nafn „Sólarmagn“ og hefur starfað í 50 ár. Slofnendur þessa félags voru Sverrir Patursson blaðamaður, bróðir Jóhannesa.r Paturssonar, og Jó- hannes Dalsgarð bóndi í Velbastað, sem nú er nýlega látinn. Á aðalfundinum var nýr formaður kosinn, þar eð Páll Pat- ursson baðst undan endurkosningu. Kosinn var ungur maður Sverrir Fon. Hann var fyrir skömmu síðan settur bókaviirð- ur við amtsbókasafnið í Færeyjum í stað M. A. Jacobsen, sem er nýlátinn. (Samkv. upplýsingum frá Sámuel Davidson.)

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.