Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1945, Page 44

Skinfaxi - 01.04.1945, Page 44
44 SKINFAXI auk þess sem þjóðarmetnaður okkar lieimtar, að skýrslur okkar standi ekki að baki skýrslum ann- arra þjóða. — Já, þetta er mjög athyglisvert efni, og er ég þar alveg á sama máli. En livers má vænta um bókasafns- styrkinn næsta sumar? — Gera má ráð fyrir, að þá verði útlilutað talsvert meira fé en síðast. En um hlutfallið milli aðalstyrks og aukastyrks vil ég ekkert fullyrða, en líkur benda til, að aðalstyrkurinn hækki drjúgum. — Þetta samtal okkar er nú orðið alllangt, og hefur eingöngu beinzt að hinum beinu samskiptum sjóðs- ins og félaganna, skýrslum og styrkveitingum, en ekki að störfum safnanna heima fyrir. Væri gott að mega ræða um það efni siðar, ef tækifæri gefst. — Það væri mér ánægja. Hitt er eðlilegt, að Skinfaxi beini samtali fyrst inn á þá braut, svo að þau söfn, sem ungmennafélögin annast, verði ekki undir í sam- keppninni um hinn takmarkaða styrk. Styrkir koma þá líka að mestu gagni, ef þeir örva til meiri starf- semi heima fyrir — meiri heimatekna, almennari nota bókasafna og hætts bókakosts. Ungmennafélög hafa löngum beitt sér fyrir almennum hókalestri og stofnað og starfrækt bókasöfn, þótt þau fengju engan opin- beran styrk. En miklu ætti sú starfsemi að koma að meiri notum nú, þegar söfnin njóta þessara opinberu styrkja. — Bið ég svo Skinfaxa að bera gömlum fé- lögum kveðju og hvetja þá1 til: 1. að senda réttar skýrslur á réttum tíma. 2. að beita sér fyrir að stofna eða endurreisa bóka- safn í sínum lireppi, sé þar ekki starfandi safn. 3. að vinna að því, að almenningur hafi jafnan sem greiðastan aðgang að góðum og vel meðförnum bókakosti, Iivort sem ungmennafélagið sér um rekstur safnsins eða ekki.

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.