Skinfaxi - 01.04.1945, Qupperneq 52
52
SKINFAXI
gerðar eftir ýmsum skýrslum, sem töluðu skýru máli, hver
áhrif áfengisins eru fyrir einstaklinga og þjóðarheildina, og
liversu þau færast stöðugt í aukana. T. d. voru áfengislaga-
hrot 650 árið 1936, en 2470 árið 1941, og meðalaldur þeirra
kærðu lækkar stórlega. Aðeins 4 konur eru kærðar fyrir
áfengislagabrot árið 1931, en þær eru orðnar 58 árið 1940.
Þannig dæmi mætti lengi rekja, sem sanna ótvírætt, að sið-
ferðinu hnignar í hlutfalli við aukna áfengissölu. Og nú er
svo komið, að allt að 20% af tekjum ríkissjóðs þetta ár er
áætlaður gróði af áfengissölu. Er það rúmlega helmingi meira
en fyrir stríð.
Á einu borðinu stóð brennivínsflaska og umhverfis hana
voru 29 mjólkurflöskur. Þær kostuðu jafn mikið og hrenni-
vínsflaskan. Þar voru 18 ölflöskur. Svo mikið öl þarf mað-
urinn að þamba til þess að fá úr því næringargildi einn-
ar mjólkurflösku.
Annars var sýningunni skipt i 4 deildir. Nefndust þær
Bakkusarhof, Knæpan, Dómssalur og Fjórða deild, sem eink-
um sýndi hina jákvæðu bindindisstarfsemi.
Það er óhætt að fullyrða, að sýningin vakti marga til
umhugsunar um þann háska, sem þjóðinni er nú búinn af
hinni gegndarlausu áfengisneyzlu, og var henni að sjálf-
sögðu ágætlega tekið, þegar frá eru tekin hrakyrði Morgun-
hlaðsins í hennar garð. Hafa komið tilmæli frá Akureyri og
Akranesi um, að henni yrði komið þar fyrir.
Raforkumál.
Meðal siiærslu framfaramála, sem þjóðarinnar híða á næstu
árum, er að gera drauminn um raforku um allt landið að
veruleika. Tekur þetta mál einkum tii sveita og kauptúna.
Umf. eru öfiugust þar. Fer því ekki hjá því, að þau láti þetta
mál til sín taka og beiti áhrifum sínum til þess að herða á
framgangi málsins. Frumvarp milliþinganefndar í raforku-
málum dagaði uppi á síðasta þingi, en verður væntanlega
flutt aftur á því næsta. Grein um raforkumálið mun birtast
í næsta hefti.
Landgræðslusjóðurinn.
í síðasta hefti var sagt frá stofnun Landgræðslusjóðs og
þeirri samvinnu, er um hana varð. Skógræktarstjóri gerði
að tillögu sinni við stjórn U.M.F.Í., er hún tók sem loforð,
áð stjórn sjóðsins yrði skipuð 2 mönnum frá Skógræktar-
félagi íslands og 1 frá hverjum þessara aðila: U.M.F.I., Bún-