Skinfaxi - 01.04.1948, Blaðsíða 7
SKINFAXI
7
U.M.F.I. FJORUTIU ARA.
Samband ungmennafélaganna, U.M.F.I., varð fjöru-
tíu ára á síðastl. ái i. Það var stofnað á Þingvöllum
sumarið 1907. Afmælis þessa var sérstaklega minnzt
á útvarpskvöldvöku U.M.F.Í. á síðastl. vetri. Þar
flutti Bernharð Stefánsson alþm., sem var einn stofn-
endanna á Þingvöllum, minningar frá stofnfundinum.
Starf U.M.F.I. er nátengt allri starfsemi ungmenna-
félagshreyfingarinnar i heild, en hún átti fjörutíu
ára afmæli árið 1946. Var starfs ungmennafélaganna
þá rækilega minnzt i Skinfaxa.
Þessir menn hafa verið formenn sambandsstjórn-
ar frá byrjun til |)essa dags:
Jóhannes Jósefsson 1907—lí)08,
Helgi Valtýsson 1908—1911,
Guðbrandur Magnússon 1911—1914,
Guðmundnr Davíðsson 1914—1917,
Jónas Jónsson 1917—1921,
Magnús Stefánsson 1921—1924,
Kristján Iíarlsson 1924—1930,
Aðalsteinn Sigmundsson 1930—1938,
Eiríkur J. Eiríksson 1939 og síðan.
i
Þegar U.M.F.I. varð þrjátín éra, var gefið út mikið
minningarrit, Islenzk ungmennafélög þrjátíu ára eftir
Geir Jónasson. I þeirri bók eru störf sambandsins
rakin og þingum þess á því timabili rækilega lýst.
Er þar mikinn fróðleik að finna um starfsemi sam-
takanna.
Hér á eftir skrifar Helgi Valtýsson rithöfundur á
Akureyri minningar frá stofnfundinum, en liann var
annar sambandsstjórinn i röðinni, og auk þess ann-
ar fyrsti ritstjóri Skinfaxa.