Skinfaxi - 01.04.1948, Qupperneq 9
SKINFAXI
9
þessar mundir, ug var þar saman komið mikið mann-
val ungra áhugamanna viðsvegar af landinu. Yfir öllu
starfi voru blakti bláhvíti fáninn, sem ungmennafélag-
ar háru fyrstir manna fram i sólheiði þjóðlífsins, þótt
áður væri kunnur undir nafninu „stúdenta-fáninn“.
Var hann dreginn að hún á „Bárubúð“ á öllum fund-
um vorum og samkomum og eignaðist þannig smám
saman, og ósjálfrátt, ítök og fótfestu í hugum manna
og hjörtum. Var þetta sumum stjórnmálamönnum
vorum gleðiefni, en aftur á móti áhyggjuefni allmörg-
um öðrum. Og ekki sízt er nálgast tók konungskom-
una 1907. Minnist ég þess enn, að skömmu áður gerði
Ilannes ráðherra Hafstein mér hoð og hað mig að
koma heim til sin til viðtals. Spurði hann mig þá,
hvort satt væri, að vér ungmennafélagar hygðum á
fánaskrúðgöngu allmikla uin Almannagjá og niður
á Þingvöll dag þann, er hátíðahöld ættu þar fram að
fara í tiletfni af konungskomunni. Taldi liann, að slikt
myndi lalið óviðeigandi og jafnvel móðgun við hina
göfgu gesli þjóðarinnar. — Sagði ég ráðherra sem satt
var, að eigi hefði verið um þelta rætt né lnigsað. En
hitt væri vist, að vér myndum draga fána vorn að
hún yfir þingstað vorum, eins og vér hefðum gert frá
öndverðu á öllum fundum vorum og samkonnun hér
í bæ, og honiun væri kunnugt. Taldi ráðlierra ekkert
við það að athuga. Fór vel á ineð okkur i samtali
jiessu. Enda virti ég ætið Hannes Hafstein, mat hann
mikils og þótti innilega vænt um hann, þrátt fyrir
það að eigi ifóru saman stjórnmálaskoðanir vorar
nema að sumu leyti.......
Fulllrúar á |iessu fyrsta sambandsjiingi á Þingvelli
voru þessir:
Jóhannes Jósefsson, 1. fulltrúi U.M.F. Akureyrar,
Guðmundur Guðlaugsson, 2. fulltr. U.M.F. Akureyr...
Bernharð Stefánsson, fulltrúi U.M.F. Öxndæla,
Helgi Valtýsson, 1. fulltrúi U.M.F. Rcykjavikur„