Skinfaxi - 01.04.1948, Side 11
SKINFAXI
11
langt skeið. — Ella væri hugtak þetta aðeins klingj-
andi málmur og livellandi bjalla. — Hornsteinar sam-
handshugsjónarinnar voru: hinn kristilegi grundvöll-
nr starfsins og bindindisheitið, og nokkru síðar einn-
ig þegnskylduvinnan. — Þessum þrem liornsteinum
liafa ungmennafélögin siðan lcippt undan, smám sam-
an. Fyrst undir álirifum fyrri styrjaldar, og siðan
sökum kæruleysis og áhugaleysis fleiri eður tfærri
félagsmanna. — Og t. d. í dag myndi engum hópi ís-
lenzkra æskumanna hugkvæmast sú nauðsyn að leggja
svo trausta hornsteina hárra sala — þótt nú hugsi
allir í „hallar-stil“. En „hallir“ án traustra hornsteina
nefnum vér skýjaborgir, og er nú æskulýður vor
sérfræðingur i þeirri hyggingalist.....
Leilcur á því enginn vafi, að hinir fyrstu fulltrúar
á þingi U.M.F.I. hafa verið dásamlega skyggnir menn
og raunsæir.
Litill hópur litklæddra ungra Islendinga á Þing-
velli 1907, brennandi af eldlegum áhuga og dásamleg-
um djúpsæjum skilningi á kröftum sínum og hlut-
verki, i 'fylkingarbrjósti þjóðar sinnar, mitt í fjöl-
mennu glæsihafi erlendra og liérlendra gesta og þjóð-
höfðingja, undir ofríki erlends fána, — verður oss
gömlu ungmennafélögunum ógleymanlegur viðburð-
ur og hjartfólgin endurminning!
Helgi Valtýsson.