Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.1948, Síða 19

Skinfaxi - 01.04.1948, Síða 19
SKINFAXI 19 Eftir 1908 átti ég, þvi miður, þess ekki kost, sakir fjarveru, að taka virkan þátt í félagslífi U.M.F.V., sem ég hefði þó kosið. Er það skoðun mín, að ungmennafélagslireyfingin liafi átt sinn þátt í að skapa æsku landsins ný og betri viðhorf, hvatt hana til þjóðhollra starfa og gert hana hæfari til sóknar og varnar i baráttunni fyrir heill og frelsi lands og þjóðar. Að lokum er það ósk mín og von, að andi ung- mennafélagshreyfingarinnar megi sem lengst lifa með þjóðinni, þá mun henni vel farnast. Egill Hallgrírnsson. XJmf. Hvöt í Grímsnesi, liefur sent Skinfaxa félagsblað sitt — Ljósvakann — 12. árg. 3. tbl. og 13. árg. 1. tbl. Blaðið er fjölritað og 5 manna ritnefnd úr félaginu sér um útgáfu þess. Efni blaðsins er mjög fjölbreytt. Þar eru ferðasögur, kvæði, ýmsar hugleiðingar, myndagátúr og aðrar skemmtanir. Þá er rækilega minnzt 40 ára afmælis Hvatar, sem haldið var hátíð- legt 28. desember síðastliðinn. í blaðinu ræðir Garðar Þorsteinsson Mosfelli.þá liugmynd, að Grimsnesingar geri 5. júli — stofndag Búnaðarfélags ís- lands — að almennum hátíðisdegi bænda, með svipuðmn hætti og verkamenn og sjómenn hafa gert 1. mai og 1. sunnudag í júni að hátíðisdögum sínum. Tillögur hafa áður komið fram um almennan bændadag, 'en liöfundur vill að Grimsnesingar taki bændadag upp nú þegar. Blaðið er allt mjög læsilegt og sómi fyrir félagið að halda slíkri starfsemi uppi. Fonnaður þess er Böðvar Stefánsson, kennari frá Minni-Borg. 2*

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.