Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.1948, Side 33

Skinfaxi - 01.04.1948, Side 33
SKINFAXI 33 höfðu haldið í sameiningu um nokkurt árabil, en tféllu niöur um hrið. Yfirleitt lét liann sér annt um öll áhuga- og stefnumáf ungmennafélaganna og lagði þeim lið af alúð og dug. Hann virtist skilja til fulls þann höfuðtilgang félagsskaparins, að auka andleg- an og líkamlegan þroska félagana, svo að þeir yrðu nýtari þjóðfélagsþegnar. Hann vann líka sjálfum sér það traust sveitunga sinna og annarra, sem kynntust honum, að sjálfsagt þótti að fela lionum livert trún- aðarstarfið af öðru. Og liann var nógu ósérhlífinn til þess að taka við þeim og leggja sig allan fram til þcss að þau yrðu sem bezt af liendi leyst. Erfiði, lítil þökk, jafnvel vanþökk, liræddu hann ekki. Hann vissi fullvel, að vel unnið verk felur í sér full laun. Gestur heitinn var gæfunnar barn. Hann ólst upp á ágætu heimili foreldra sinna í stórum, glöðum systkinahópi. Hann átti mikið starfsþrek, andlegt og líkamlegt, og hann fékk tækifæri til að beita því. Hann eignaðist konu, sem stóð honum jafnfætis að mannkostum og alltaf stóð við hlið lians og vann með honum að ]>cirra sameiginlegu áliugamálum, en þau voru öll góð mál, sem þau áttu kost á að leggja lið. Hún átti — eins og bóndi hennar — virðingu og traust allra, scm kynntust henni. Við, ungmennafélagar í „Aftureldingu“, hörmum það að liafa orðið að sjá á balc þessum góðu félögum svo fljótt. Við vitum, að þau hefðu Iialdið áfram að bæta við sitt mikla dagsverk, þótt það væri þegar orðið glæsilegt að gæðum og vöxtum. En við gleðj- umst jafnframt yfir þvi, að liafa þekkt þau og borið gæfu til að starfa með þeim. Við þökltum þeim sam- starfið og vildum gjarna launa það að nokkru. Og ég veit livaða laun þau myndu kjósa og hvers þau myndu óska. Það er að sérhver ungmennafélagi hefði ætíð í huga og lifði eftir kjörorði ungmennafélag- anna: íslandi allt. TÁrus Halldórsson. 3

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.