Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1948, Page 37

Skinfaxi - 01.04.1948, Page 37
SKINFAXI 37 Frúin þegir stundarkorn og bíllinn brunar gegnum þykkan skóginn. En allt í einu opnast útsýni yfir stórt skóglaust svæði. Þar eru margar byggingar, leik- vellir og sléttar flatir. Á einum sta'ð í rjóðrinu er allstór eftirlíking af miðaldakastala meS turni og litl- um skotgötum, auSsjáanlega byggS til gamans. Við vatnsbakkann liggur stór bátur og snýr gapandi dreka- gini mót landi. Það cr eftirlíking af fornu víkinga- skipi. „Þctta er Lanakila," upplýsir frúin. „ÞaS er líka Aloha sumarver, stofnsett af þeim Gulickhjónum. Það erifyrir drengi á aldrinum (3—14 ára. Lanakila er einn- ig hawaiiskt orð og' þýðir siyraðu sjálfan þig, eða eitthvað þess háttar." Við förum hægt, og ég svipast vel um í þessu riki drengjanna. Er við höfum farið smáspöl til viðbótar, segir frúin fjörlega: „Og hér erum við þá komin. Þetta er Aloha Manor.“ Aloha Manor. Ég liafði ráðið mig sem vinnumann að Aloha Manor. Eiginlega hafði ég ekki hugmynd um, livers konar störf ég átti að vinna. Og mér var vel ljóst, að þau heiðurshjón, sem áttu þetta sumarver, höfðu i raun og veru gert á mér gustukaverk að talca mig hingað, næstum ótalandi útlending. Þau gerðu það eftir beiðni kunnigja sinna, sem ég liafði verið svo heppinn að komast í kynni við af hreinustu tilviljun. Og nú var ég hingað kominn. — En þetta varð fyrsta sumar mitt af þremur bér á Alolia Manor. Aloha Manor er sumarver fyrir fjölskyldur. Þang- að geta foreldrar komið með börn sin og dvalið um lengri ea skemmri tíma að sumrinu. Fóllc getur hvort sem það vill heldur annazt börn sín sjálft eða komið þeim fyrir i vöggustofu eða leikskóla meðan það dvelur á staðnum, annað Iivort aðeins að deginum

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.