Skinfaxi - 01.04.1948, Side 38
38
SKINFAXI
eða allan sólarhringinn. Eins eru börn tekin, án þess
að þau séu i fylgd með foreldrum sínum, jalfnvel þótit
þau séu ekki eldri en tveggja ára. Fólk á vmsum aldri
dvelur þar oft um lielgar eða lengur eftir ástæðum.
Þetta litla sumarsamfélag hér við Moreyvatn er því
harla margvísleg og misstór hjörð, en ekki ber á öðru
en allt blessist það prýðilega. Fyrir börn og nnglinga
Séð yfir Aloba Manor og Moreyvatn.
er snmar við Moreyvatn ævintýri, sem seint líður úr
minni, og margt fullorðið fólk dregur saman fé til
þess að koma hingað ár eftir ár.
Aloba Manor er gamall bóndabæi’, sem breytt var
í sumarver árið 1925 af núverandi eiganda þess, frú
Pierce, en liún er dóttir þeirra Gulicklijóna. Maður
hennar er prestur í nánd við New York, og á vorin
leitar tfjölskyldan hingað til fjallanna og starfar hér
sumarlangt. Hlöður og gripahús liafa ekki verið rifin,
heldur var þeim breytt í leikskála, matstöfur og
geymslur. Eru þau flest mjög úr sér gengin, svo að
eftir hverja hellidembuna, sem Iiérna gerir öðru