Skinfaxi - 01.04.1948, Síða 39
SKINFAXI
39
hverju, má víða sjá poll á góll'i. En hver fæst um
slíkt, þegar sólin ljómar á ný.
Svefnstaðir dvalargesta eru þrenns konar; herbergi
í heimahúsinu, litil bjálkahús og tjöld. Börnin sofa
flest í húsum, en stærri drengir þó stundum í tjöld-
um. Bjálkahúsin standa flest í skógarjaðrinum, og er
spölkorn milli þeirra. Þau eru fremur óvönduð liið
Bjálkahúsin i skógarjaðrinum.
ytra og ekki mikið i þau lagt að innan heldur. Samt
eru i þeim öllum arinn, vatnssalerni, rafmagn og bað.
— Tjöldin eru öll reist á trégólfum, sem standa á
staurum allhátt frá jörðu,svo að nokkur þrep eru
upp i þau. Er þetta gert til þess að gólfin fúni ekki
að vetrinum, en þau eru ekki rifin á haustin. Vinnu-
fólkið sefur flest í tjöldum, nema veitinga- og eld-
hússtúlkur, þær soí'a í heimahúsinu. Sameiginlegur
matskáli er fyrir fullorðna og stærri börnin, en
minnstu börnin matast út af fyrir sig með fóstrum
sínum. Er af fremsta inegni reynt að stuðla að þvi,
að þetta beri sem mestan keim af einu stóru heimili.
Að Aloha Manor dvelja stundum á annað lmndrað
manns.