Skinfaxi - 01.11.1949, Blaðsíða 68
132
SKINFAXI
liné aðeins bogin. Sleggjuhausinn hvilir i jörðu fyrir aftan
og til hægri við kastarann.
Undirbúningssveiflurnar hefjast meS því, aS sleggjuhausinn
or hafinn frá jörSu meS færslu arma upp og til vinstri. Lík-
amsþunginn er lagður i sveiflurnar með þvi að færa hann af
báðum fótum yfir á vinstri og hægri fót til skiptis. í sveifl-
unum er sleggjuhausinn næst jörðu fyrir framan kastarann,
en hæst á lofti, þegar honum er sveiflað upp aftur af höfði.
Þegar sleggjuhausinn er næst jörðu, eru armar teygðir, en
þegar sleggjuhausinn er hæst á lofti, eru armar beygðir um
olnboga, en hendur færðar rétt framan við andlit.
2
8
4
Hávaxnir kastarar eiga auðveldara með að lialda sleggju-
hausnum frá því að snerta jörðu, meðan lágvaxinn kastari
verður að lyfta henni nokkuð. Einnig eru yfirburðir þess há-
vaxna i þvi fólgnir, að langir armar hans veita sleggju-
hausnum lengri sveiflubraut.
Til þess að ná sivaxandi hraða i færslu sleggjuhaussins,
leggur kastarinn aukið átak i drátt sleggjuhaussins frá hæstu
stöðu hans niður á við svo aftur er líkamsþunginn lagður inn
í átak armanna frá lægsta punkti i braut sleggjuhaussins upp-
ávið. Milli þessa átaks og dráttarsviðs i sveiflubrautinni, er
þess gætt að ekkert í færslu arma, bolsveiflum né stöðu fóta
hamli hinum vaxandi hraða sleggjuhaussins.
Þegar kastarinn hefur náð þeim mesta hraða, sem honum
er unnt að veita sleggjuhausnum, leggur hann, frá þvi sleggju-
hausinn í lokasveiflunni nær hæstri stöðu, enn aukið átak
fóta, bols og arma í sveiflu sleggjunnar niður og upp yfir
vinstri öxl, þar sem hann fylgir sleggjunni eftir unz hann
sleppir gripi handa um handfangið og sleggjan þyrlast eins