Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1944, Qupperneq 6
Pétur Maack skipstjóri, Ránargötu 30, fæddur
11. nóv. 1892. Kvæntur, á fjögur uppkomin börn
á lííi, sonur hans, 1. stýrimaður, var með honum
á skipinu.
Pétur A. P. Maack, 1. stýrimaður, sonur skip-
stjórans, Ránargötu 2, f. 24. febr. 1915. Kvæntur,
átti 2 börn, 4 og 3 ára og eitt fósturbarn, 8 ára.
Jón Sigurgeirsson, 2 stýrimaður, ÁsvaHagötu28,
f. 9. nóv. 1912. Kvæntur, átti tvö börn, 5 ára og
á 1. ári.
Þorsteinn Þórðarson, 1. vélstjóri, Sólnesi við
Baldurshaga f. 19. maí 1892. Kvæntur, á 6 börn á
lífi, 2, 6, 10, 13, 15 og 17 ára. Sonur hans, Þórður,
var 2. vélstjóri á skipinu.
Þórður Þorsteinsson, 2. vélstj., Sólnesi við Bald-
urshaga, f. 10. maí 1924. Ókvæntur.
Hilmar Jóhannesson, kyndari, Pramnesveg 13, f.
4. marz 1924. Kvæntur.
Benedikt R. Sigurðsson, kyndari, Ilringbraut
147, f. 19. des. 1906. Kvæntur, átti 4 börn, 2., 6., 14..
og 15 ára.
Gísli Eiríksson, bátsmaður, Vífilsgötu 3, f. 1.
apríl 1894. Kvæntur og átti fimm uppkomin börn,
yngsta 14 ára.
Björgvin H. Björnsson, stýrimaður, Ilringbraut
207, f. 24. ágúst 1915. Kvæntur og átti 1 l)arn 2
ára.
Guðjón Björnsson, háseti, Sólvallagötu 57, f. 27.
febr. 1926. Ókvæntur, bjó h já foreldrum sínum.
Iíann var bróðir Björgvins.
Valdimar Guðjónsson, matsveinn, Sogamýrar-
bletti 43, f. 21. ágúst 1897. Kvæntur og átti þrjú
börn, 6, 8og' 11 ára og sá fyrir öldruðum tengda-
föður.
Guðmundur Einarsson, netamaður, Bárugötu
36, f. 19. jan. 1898. KvæntUr og átti 2 börn, 10 ára
og á 1. ári.
Guðmundur Þorvaldsson, bræðslumaður, Sel-
vogsgötu 24, Hafnarfirði, f. 7. des. 1899, kvæntur,
lætur eftir sig 6 börn og sá fyrir öldruðum for-
eldrum.
Sigurður V. Pálmason, netamaður, Bræðraborg-
arstíg' 49, f. 25. nóv. 1894, ekkjumaður, átti 5 börn.
Guðni Kr. Sigurðsson, netamaður, Laugaveg
101, f. 15. jan. 1893. Kvæntur.
Sæmundur Halldórsson, netamaður, Hverfisg.
61, f. 2. pi*íl 1910. Kvæntur og átti 1 barn árs-
gamalt.
Kristján Halldórsson, háseti, InnriNjarðvík, f.
20. marz 1906, átti 3 börn. Hann var bróðir Sæ-
mundar.
Jens Konráðsson, stýrimaður, Öldugötu 47, f.
29. sept. 1917. Kvæntur.
Jón M. Jónsson, stýrimaður, Hringbraut 152, f.
10. okt. 1014. Ókvæntur.
Valdimar Hlöðver Ólafsson, háseti, Skólavörðu-
stig 20A, f. 3. apríl 1921. Ókvæntur í foreldrahús-
Magnús Jónsson, háseti, Frakkastíg 19, f. 11.
ágúst 1920. Ókvæntur í foreldrahúsum. Ilann var
mágur Péturs 1. stýrimanns.
Jón Þ. Hafliðason, háseti, Baldursgötu 9, f. 19.
sept. 1915. Kvæntur og átti 1 barn á 1. ári.
Halldór Sigurðsson, háseti, Jaðarkoti Árnes-
sýslu (Ilverfisgötu 89), f. 26. sept. 1920. Ókvæntur.
Fyrirvinna móður sinnar er var ekkja og yngri
systkina.
Gunnlaugur Guðmundsson, háseti, Óðinsgötu
17, f. 15. jan. 1917. Kvæntur átti 1 barn.
Kristján Kristinsson, aðstoðarmatsveinn, Ilá-
teigi, f. 2. júní 1929. Ókvæntur.
Ari Friðriksson, háseti, Látrum, Aðalvík
(Ilörpugötu 9) f. 4. apríl 1924. Sá fyrir öldruðum
föður.
Jón Ólafsson, háseti, Keflavík, f. 22. marz 1904.
Ókvæntur.
Arnór Sigmundsson, háseti, Vitastíg' 9, f. 3. okt.
1891. Kvæntur.
Aðalsteinn Ámason, Efstasundi 14. Tvítugur,
ættaður frá Seyðisfirði. Ókvæntur.
Togarinn „Max Pemberton" var 323 rúihlestir
br., byggður í Englandi 1917. Aðaleigandi skþis-
ins var Halldór Þorsteinsson, skipstjóri í Háteigi.
Þótt skipið væri orðið þetta gamalt (26 ára) var
það talið með traustari skipum í togaraflotanum,
enda alltaf mjög vel við haldið og allur xitbúnað-
ur þess eins vandaður og frekast var völ á.
Pétur Maack skipstjóri var með þekktustu skip-
stjórum á togaraflotaniun, orðlagður aflamaður
og afburða sjómaður. Á skipinu var valinn maður
í hverju rúmi.
Hvað veldur? Frh. af 2. síðu.
Mann hnykkir við, þegar maður hugsar til þess, að meðalaldur togaranna er 26 ár. í
ófriðnum hafa skipin farist hvert af öðru: Bragi, Reykjaborg, Gullfoss, Sviði, Jón Ölafsson, Garðar
og Max Pemberton. Sömu afdrif vofa daglega yfir öllum togaraflotanum.
Sú spurning vaknar: „A ekki að tryggja það, að fórnir þessa tíma skapi ný, stœrri, betri
og öruggari skip þeirri stétt, sem fórnirnar fcerir og þjóðin á líísafkomu sína undir?“
Þetta uerður ekki gert, nema að Alþingi gjörbreyti um stefnu. Alþingi veröur að leyfa það,
aS ekki minna en helmingur af hagnaSi útgerSarinnar gangi til þess að byggja fullkomin nýtízku
skip, strax og aðstceður leyfa.
6
VlKINGUR