Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1944, Blaðsíða 31

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1944, Blaðsíða 31
Eftirlaunasjóður ................... 1.115.000 Varasjóður ......................... 1.808.000 Byg'gingasjóðm' skipa............... 4.500.000 Vátryggingarsjóður ................. 4.692.000 Arðjöfnunarsjóður .................... 450.000 Gengisjöfnunarsjóður ................. 348.000 En vátryggingarsjóður er ekki talinn af tekju- ufgangi, heidur eru greiðslur til lians taldar með iðgjöldum. Lagarfoss. Arður hluthafa. L upphafi lögðu menn ekki fé sitt í Eimskipa- félag Islands í þeim tilgangi, að vœnst væri eftir miklum arði af fénu. Féð var lagt fram til sam- hjálpar í þjóðfélaginu, til þess að reka það sliðru- orð af landsmönnum eyþjóðar, að geta ekki tek- ið samgöngur við útlönd í eigin hendur, því öld- um saman liafði þjóðin lifað sem ósjálfbjarga fangi, er varð, einkum ef út af bar, að eiga það undir annara náð, hvort fluttningar fengjust hingað eða eigi. Arður hluthafa hefir ckki verið mikill þessi 30 ár, lægri en sparisjóðsvextir, að meðaltali 3.4% á ári, og hefir af 20 millj. kr. tekjuafgangi verið varið samtals kr. t.424.258 í arð til hluthafanna eða tæplega 14. hluta tekjuafgangs. Þegar skipunum var fjölgaS. Eins og kunnugt er, skail heimsstyrjöldin fyrri á, sama árið og félagið var stofnað. Um þróun félagsins á fyrri árum, sagði fram- kvæmdastjórinn m. a.: Fyrra stríðstímabilinu má telja iokið 1919. Á því tímabili hafði félaginu græðst. 3.507 þús. kr. og af því hafði um 1500 þús. kr. verið notað til afskrifta af éignum félagsins, en um 1 milljón lögð í varasjóð. A næstu 10 árum lét félagið byggja 3 skip, „Goðafoss", „Brúarfoss" og „Dettifoss" ogkeypti „Selfoss“, enda voru þá allir sjóðir félagsins VlKlNGUR gengnir til þurrðar, þannig, að allt andvirði síð- asta skipsins (Dettifoss) varð að taka að láni, og skuldaði félagið á þriðju millj. kr. eftir þessi ár, aðallega ei’lendis. Fyrir styrjöldina munu skip Eimskipafélagsins lvafa flutt til landsins 3/4 af venjulegum verzlun- arvörum, að undanskildum kolum, salti, sementi og timbri. En er siglingar hófust og fluttninga- leiðir lengdust, varð skipastóll félagsins gersam- lega ónógur, eins og bezt sézt á því, að skip fé- lagsins fluttu til landsins árið 1938 46 þús. tonn af vörum, en árið 1942 aðeins 24 þús. tonn, en með leiguskipum voru það ár flutt 63 þús. tonn, eða yfir 2/3 fluttningsins. Þess er vert að geta um leið, að við megum gera ráð fyrir, að leiguskipin höfum við fengið vegna hernáms eða herverndar landsins, því aðr- ar hlutlausar þjóðir, sem hafa ónógan skipastól sjálfar, liafa engin leiguskip fengið hjá banda- mönnum og lent fvrir þá sök í miklum vandræð- um og vöruskorti. Skipin dýr í rekstri. | Þá er það mjög athyglisvert og alvarlegt fyrir framtíð íslenzkra siglinga og framtíð félagsins, hve íslenzku skipin hafa á síðustu árum verið dýr í rekstri. Það eru leiguskipin, er hafa gert félaginu kleift að reka skip sín, þó með stórtapi hafi verið. Nam tapið á rekstri félagsskipanna árið 1942 3\/> millj. Dettifoss. kr. En hagnaöur á leiguskipunum vóg það upp. Ef ekki hefði orðið tekjuafgangur af rekstri leiguskipanna það ár, sem nam allt að því, sem tapið var á eigin skipum, hefði félagið orðið að ha’kka flutningsgjöld sín miklu meira en gert hef- ir verið, ef ekki allt hefði átt að fara í strand, enda hefði megnið aí' flutningum þess verið brýn- ustu nauðsynjavörur, sem lægst flutningsgjöld eru greidd fyrir, en þau flutningsgjöld hafa aðeins hækkað um 134.5%, en eins og áður er sagt hafa heildarútgjöld félagsins hækkað um 304% 31

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.